Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 10

Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 10
10 Litli-Bergþór tvær mætar konur, sem voru í fullri vinnu hjá ónefndri veitu við að gera nákvæmlega það sama og Rósa er að gera fyrir Blá- skógaveitu. Það sér fyrir endann á framkvæmdum við dæluhúsið í Reykholti. Verið er að endurnýja hitaveitu í Sólbrautinni ásamt því að setja niður kaldavatnslögn og fráveitu. Það þarf varla að taka það fram að í alla skurði er sett ídráttarrör fyrir ljósleiðara. Á Laugarvatni stendur til að endurnýja og svera hitaveitustofn að iðnaðarhverfi og leggja aðveitu og fráveitu í Herutúnið en þar eiga að rísa nokkur raðhús. Til að tryggja nægt vatn austanmegin Tungufljóts verður farið í að leggja lögn yfir Tungufljót úr stofninum. Nú er svo komið að kaldavatnsveitan ger- ir ekki mikið meira en anna núverandi vatnsþörf. Í athugun er að virkja nýtt vatnsból við Steiná. Bjarni Daníelsson, sviðsstjóri Framkvæmda- og veitusviðs Bláskógabyggðar.. Dæmi um verkefni sviðsstjóra. - Neðri endinn á Ottó, hinn endinn að ná í tennisspaða, sem stíflaði fráveitukerfið á Laugarvatni. Óskar í Goðatúni og Benni Skúla að skipta um loka fyrir ofan loftskiljuna frá Reykholtshver.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.