Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 38

Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 38
38 Litli-Bergþór Bláskógaskóli í Reykholti er nú orðinn skóli á grænni grein, en skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár, en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Markmið verkefnisins er að: • Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku. • Efla samfélagskennd innan • Efla alþjóðlega samkennd og tungumála- kunnáttu. • Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Grænfánaverkefninu á Íslandi er stýrt af Landvernd, sem er aðili að alþjóðlegu samtökunum FEE. Stýrihópur um Grænfána er Landvernd til fulltingis um allt sem viðkemur verkefninu. Umhverfisnefnd Bláskógaskóla í Reykholti var kosin vikuna 6.-10. febrúar. Í öllum bekkjum voru þeir sem höfðu áhuga á að starfa í nefndinni beðnir um að gefa sig fram og síðan kosið á milli þeirra aðila. Í umhverfisnefnd eru: 1. bekkur, Íris Anna Gunnarsdóttir Fréttir úr Bláskógaskóla Grænfánamynd af 4. bekk og á henni eru: Efri röð frá vinstri: Guðrún Steinunn Jónsdóttir, Máni Arnórsson, Fjölnir Þór Morthens, Baltasar Breki Matthíasson, Lilja Björk Sæland, Bjarni Harald Kristinsson, Dagmar Sif Morthens. Neðri röð frá vinstri: Herdís Lillian Jensen, Hrefna Erla Hannesdóttir, Elsa Dögg Grétarsdóttir, Freya Linda Andrea Mattsson. skólans. • Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan. • Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur. • Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál. Valáfangi í tálgun á unglingastigi. Nemendur að velja sér greinar sem þeir síðan útbjuggu taflkarla úr. Leiðbeinandinn á myndinni er Halldór Guðnason, frá Efra-Seli.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.