Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Qupperneq 2
2 11. janúar 2018FRÉTTIR hlutir sem þarf að banna sem allra fyrst Tóbak og veip Tóbak er ógeðslegt, meira að segja reykingarmenn eru sammála um það. Flestir vilja hætta en geta það ekki. Ástæð- an er fyrst og fremst aðgengi. Þess vegna er best að banna tóbak og þá myndi yf- irgnæfandi meirihluti reykingamanna verða pirraður í tvær vikur en svo hætta alfarið. Að- eins lítill hluti myndi kaupa sér pólskar sígarettur á svört- um markaði. Sólbaðsstofur Það er eitt að slaka á í sólbaði á erlendri sólarströnd, en að þramma inn í illa innréttað iðnaðrrými um hávetur á Íslandi er fullkomin tímaskekkja og sturlun. Hver vill líta út eins og þrútin rúsína? Fólk hefur ekki vit á að hætta þessu og því er rétt að banna þetta tafarlaust. Kommentakerfi fjölmiðla Hefur einhvern tímann eitthvað gáfulegt komið fram í athugasemdakerfum fjölmiðla? Eitthvað sem bætir einhverju við umræðuna? Kommentakerfi fjöl- miðla lætur fólk efast um að tjáningarfrelsið sé þess virði að berjast fyrir því. En þetta er lítill hluti þjóðarinnar sem hefur ekki stjórn á sér og því er best að banna verkfærið. Orkudrykkir Heil kynslóð barna er sturlast af orku- drykkjaneyslu og líka nokkrir blaðamenn. Þegar fólk hefur ekki vit fyrir sjálfu sér þá þarf ríkið að stíga inn í. Bönnum orkudrykki eða í versta falli byrj- um að selja þá í ÁTVR. Kjöt Kjötneysla er einhver vani sem hefur fest sig í sessi því ekkert betra var í boði. Forfeður okkar voru framheilaskaddaðir villimenn sem tóku upp þennan leiða sið. Út frá náttúruvernd- ar- og siðferðislegum sjónarmiðum er kjötneysla óverjanleg. Því er nauðsynlegt að banna sölu kjöts hið snarasta. Á þessum degi, 11. janúar 1569 – Fyrsta skráða hlutaveltan er haldin á Englandi. 1879 – Stríðið á milli Breska heims- veldisins og Zulu-ættbálksins í Suður- Afríku hefst. 1922 – Insúlín er í fyrsta skipti notað gegn sykursýki í mönnum. 1935 – Amelia Earhart flýgur fyrst manna, ein síns liðs, frá Hawaii til Kaliforníu. 1961 – Throgs Neck-brúin, sem tengir hverfin The Bronx og Queens, í New York, er opnuð fyrir umferð. Síðustu orðin „Ég skulda mikið, ég á ekkert; afganginn ánafna ég þeim fátæku.“ – Endurreisnarrithöfundurinn, munkurinn og margt fleira, François Rabelais (1494–1553) Í desember á síðasta ári var nýráðnum lögfræðingi hjá Samgöngustofu sagt upp störf­ um áður en viðkomandi hóf störf. Samkvæmt heimildum DV var ástæðan var sú að í ljós kom að maðurinn hafði nokkrum mánuð­ um fyrr fengið skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að hafa hótað fyrrverandi ástkonu sinni lífláti og sært blygðunarsemi hennar. „Umræddum ráðningarsamningi frá því í desember var sagt upp með lögmætum hætti áður en við­ komandi hóf störf,“ var það eina sem Þórhildur Elínardóttir, sam­ skiptastjóri Samgöngustofu, vildi segja um málið. „Ég ætla að drepa þig hehehe“ Umrætt starf lögfræðings á lög­ fræðideild Samgöngustofu var auglýst í nóvember og rann um­ sagnarfrestur út í lok þess mánað­ ar. Tilkynnt var um ráðningu mannsins fyrri hluta desember en eins og áður segir hóf maðurinn aldrei störf. Ástæðan var sú, sam­ kvæmt heimildarmanni, að upp komst um áðurnefndan dóm sem féll þann 27. september 2017. Maðurinn, sem þá starfaði sem lögreglumaður, var dæmdur fyrir að senda skilaboð á konu, í gegn­ um samskiptamiðilinn Snapchat, sem innihéldu alvarlegar hótanir. Ummælin sem hann var ákærður fyrir voru eftirfarandi: „Ætlaru að ríða mér á eftir? […] Viltu mig? Ríddu mér dóninn þinn […] Ríddu mér beibe“ „Fokking mella […] Þú eyði- lagðir líf mitt. Ég ætla að að drepa þig hehehe“ „Litla fokking hóran þín Þúrt hóra A […] Það er það sem þú ert Hóra Hóra. Ekkert nema hóra. Ég hata þig. Fokking deyðu A“ „Éttu drullu hóra. Hata þig. Mun brjóta þig. Ef þú kemur ná- lægt mér. Hata þig. Fokking hata þig“ „Ja, ég fokking vona að þú dey- ir. Ógeðið þitt. Ég hata þig útaf líf- inu. Þú eyðilagðir líf mitt. Þú fokk- ing eyðilagðir það. […] Ég mun fkn láta þig gjalda fyrir það“ Baðst ítrekað afsökunar Maðurinn og konan höfðu átt í skammvinnu ástarsambandi og átt nokkra ástarfundi eftir að því lauk. Þegar umrædd skilaboð bár­ ust konunni var hún heima hjá systur sinni en maðurinn var úti að skemmta sér. Óskaði hann eft­ ir því að hún myndi sækja hann en þegar hún hafnaði því rigndi yfir hana ógeðfelldum skilaboðum. Systur hennar ofbauð framkoma mannsins og áframsendi skila­ boðin til lögreglunnar. Í dómnum kom fram að mað­ urinn bar við mikilli ölvun. Hann kvaðst muna eftir fyrstu skila­ boðunum en ekki þeim sem á eftir komu. Þá kom fram að hann baðst strax afsökunar á gjörðum sínum þegar rann af honum og marg­ ítrekaði þá afsökunarbeiðni. Fyrir dómi sagði hann að honum þætti vænt um konuna og hafi ekki vilj­ að henni neitt illt. Í dómsorði kom fram að dómurinn véfengdi ekki að mað­ urinn iðraðist gjörða sinna og tek­ ið væri tillit til að hann aðhafðist ekkert til að hrinda hótunum sín­ um í framkvæmd. Var maðurinn dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, til tveggja ára, og til að greiða 808.067 krónur í sakar­ kostnað. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Hætti við ráðningu lögfræðings Frelsi er gjörsamlega ofmetið fyrirbrigði enda sýnir það sig aftur og aftur að fæstir hafa vit fyrir sjálfum sér. Fólk leyfir sér hluti sem veita því gleði og unað til skamms tíma en skaðar mögulega heilsu þess til langs tíma litið. Þetta er hvorki rökrétt né skynsamlegt. Allsherjar foræðishyggja og bönn eru líklega lausnin. DV tók saman fimm hluti sem nauðsynlegt er að banna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.