Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Side 10
10 11. janúar 2018FRÉTTIR
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
Ó
mar Alejandro Waldosson
segist hafa orðið fyrir fólsku-
legri líkamsárás af hálfu
fimm dyravarða á skemmti-
staðnum Kiki þann 11. ágúst síðast-
liðinn. Ástæðuna telur hann vera
persónulegar deilur á milli hans og
eins af starfsmönnum staðarins.
Hann hefur lagt fram kæru á hendur
staðnum og hyggst leita réttar síns.
Eigandi Kiki vísar ásökunum á bug.
Engar öryggismyndavélar nálægt
Í samtali við DV segist Ómar lengi
hafa verið fastagestur á Kiki og
vel þekktur á meðal starfsfólksins.
Hann hafi verið kunningi barþjóns
á staðnum en síðan hafi slest upp á
vinskapinn. Hann segir að deilurnar
og leiðindin á milli hans og um-
rædds starfsmanns hafi átt einhvern
þátt í því að hann varð fyrir líkams-
árás á Kiki þetta umrædda kvöld.
„Þegar ég kom inn á Kiki þá fóru
dyraverðirnir að elta mig út um allt
og létu mig ekki í friði. Það var mjög
óþægilegt. Ég ákvað þess vegna að
fara til barþjónsins, af því að ég mér
fannst líklegt að hann hefði eitthvað
með þetta að gera. Hann fór með
mig afsíðis svo við gætum spjallað
saman og tók mig með sér inn í litla
kompu sem er nálægt anddyrinu.
Mér fannst það frekar skrítið af því
að við höfðum aldrei farið þangað
til að tala saman, við töluðum alltaf
saman úti á reykingasvæðinu,“ seg-
ir Ómar og bætir við að inni í komp-
unni séu skiljanlega engar öryggis-
myndavélar.
„Við náðum samt eiginlega ekk-
ert að spjalla af því að skyndilega
var bankað á hurðina og ég heyrði í
dyravörðunum fyrir utan. Allt í einu
ruddust fjórir dyraverðir inn, ásamt
konu sem starfar sem dyravörður
á staðnum, en var ekki á vakt þetta
kvöld. Þau lokuðu dyrunum og
þarna réðust þau öll á mig, lömdu
mig í andlitið mörgum sinnum og
spörkuðu í mig. Það var líka haldið
fyrir muninn á mér og ég var tekinn
hálstaki. Ég gat ekkert varið mig. Þú
getur ímyndað þér hvernig það er
að vera laminn af mönnum sem eru
þjálfaðir í fangbrögðum. Ég hélt að
líf mitt myndi bara enda þarna. Þetta
stóð yfir í margar mínútur.“
Ómar segir að dyraverðirnir hafi
síðan loksins byrjað að sleppa tök-
unum og draga úr barsmíðun-
um þannig að hann náði að losa
sig. Hans viðbrögð hafi þá verið að
sparka frá sér, en hann segist hafa
verið ringlaður og hræddur á þessu
augnabliki.
„En akkúrat þá kom lögreglan
og sá þetta. Dyraverðirnir sögðu þá
auðvitað að ég hefði ráðist á þá, sem
er auðvitað ekki rétt.“
Læstur inni í 12 klukkustundir
Ómar var í kjölfarið handtekinn og
færður í fangaklefa. Hann segir:
„Lögreglan gaf mér ekki einu
sinni tækifæri á að tjá mig eða verja
mig, þeir drógu mig út í bíl og héldu
mér niðri á gólfinu í löggubílnum.
Þetta var ótrúlega niðurlægjandi.
Tveir af þeim stigu ofan á bakið á
mér. Þeir gerðu grín að mér, gerðu
grín að hreimnum mínum og sögðu
að ég ætti að læra að tala íslensku. Ég
missti allt álit á lögreglunni þarna.“
Ómar segist hafa þurft að dvelja
í fangaklefa á lögreglustöðinni við
Hverfisgötu í tólf klukkustundir
samfleytt, án þess að fá vott eða
þurrt. Hann hafi verið í miklu áfalli.
„Þegar mér var loksins sleppt þá
gat ég varla talað eða gengið. Sím-
inn var straumlaus og ég gat ekkert
hringt. Ég gekk frá lögreglustöðinni
og alla leið upp á Hringbraut þar
sem strætóbílstjóri gaf mér far upp
á spítalann í Fossvogi. Ég var allur
sjúskaður og illa farinn.“
Ómar fékk áverkavottorð á
bráðamóttöku en hann reyndist
vera tognaður í baki og með bólgur
og marbletti víða um líkamann.
Hann segist hafa liðið miklar þján-
ingar bæði vegna framkomu starfs-
fólks Kiki og vegna framkomu lög-
reglunnar þetta kvöld.
„Ég er greindur með kvíðaröskun
og þunglyndi. Ég var beittur ofbeldi
í æsku sem hefur haft mikil áhrif á líf
mitt og ég hef verið í endurhæfingu
vegna þess. Þetta vakti þess vegna
upp margar vondar tilfinningar.
Þessi árás skemmdi mjög stóran
part af endurhæfingunni.“
Ómar tjáði sig um atvikið inni
á lokuðum hópi á Facebook, sem
ætlaður er samkynhneigðum karl-
mönnum. Hann segir fjölmarga
hafa ritað athugasemd undir færsl-
una og tjáð sig um neikvæða reynslu
af skemmtistaðnum Kiki.
Eigandi Kiki hafi síðan sjálfur
skrifað athugasemd undir færsluna
og sagt að umræddir starfsmenn
yrðu sendir í leyfi þar til málið væri
búið. Það hafi hins vegar ekki verið
gert.
„Það er mjög neikvætt viðhorf til
staðarins innan „gay“ samfélagsins.
Margir sem hafa upplifað áreiti, of-
beldi, hommafóbíu og leiðinlega
þjónustu.“
Vill ná fram réttlæti
Ómar hefur nú lagt fram kæru
á hendur Kiki og einstaklingun-
um fimm vegna málsins og krefst
miskabóta. Aðspurður segist hann
hafa drukkið áfengi þetta kvöld, en
hann hafi þó alls ekki verið dauða-
drukkinn.
„Vinir mínir geta staðfest það. Ég
hef aldrei á ævinni verið blekaður,
enda finnst mér það niðurlægjandi.
Ég vil geta haft stjórn á
mér. Ég er með vitni sem segjast hafa
heyrt dyraverðina vera að monta sig
af því að hafa náð að berja mig. Ég
vil ná fram réttlæti og ég vil vara aðra
við þessum stað.“
Harma atburðarásina
DV hafði samband við Árna Grétar
Jóhannsson, annan eigenda Kiki, og
sendi hann frá sér meðfylgjandi yfir-
lýsingu vegna málsins.
Yfirlýsing Kiki Queer Bar í heild
sinni:
„Kiki Queer Bar er ekki og verð-
ur aldrei staður þar sem ofbeldi af
neinu tagi verður liðið, hvort sem
það er af hendi starfsmanna eða
gesta. Við hörmum þá atburðarás
sem átti sér stað umrætt kvöld en
kjósum að láta lögreglu og dómstóla
um að úrskurða endanlega í þessu
máli, verandi rétta og hlutlausa
leiðin að niðurstöðu.
Okkar viðbrögð voru strax á þá
leið að setja umrædda starfsmenn
í tímabundið leyfi meðan rætt var
við allt starfsfólk hússins sem var
að störfum umrætt kvöld og hlýða á
þeirra frásögn af aðdraganda, atviki
og eftirmálum. Var þeirra samróma
frásögn ekki á nokkurn hátt í sam-
ræmi við frásögn meints brotaþola.
Í kjölfarið höfum við farið í að
skerpa á okkar áherslum til þess að
Kiki Queer Bar geti ávallt verið sem
öruggastur áfangastaður í næturlífi
Reykjavíkur. Okkar markmið er og
verður ávallt örugg skemmtun fyrir
alla, sama hvaða rönd regnbogans
okkar gestir tilheyra.“ n
KÆRIR ÁRÁS DYRAVARÐA Á KIKI
n Telur að um skipulagða árás hafi verið að ræða n Endaði sjálfur í fangaklefa í 12 klukkutíma
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Ómar Alejandro Segist hafa
orðið fyrir árás fimm dyravarða.