Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Side 35
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
Bjarni Ingvar Halldórsson, eigandi fyrirtækisins Lagnir og lóðir ehf., hefur gaman af vinnunni. Það
kemur sér vel því hann rekur nokkuð
umfangsmikla starfsemi í jarð- og
lagnavinnu með litlum mannafla og
vinnur mikið sjálfur. Bjarni vinnur fyrir
byggingaverktaka, fyrirtæki og stofn-
anir, en mest fyrir einstaklinga – til
dæmis þá sem þurfa að láta skipta
um lagnir, helluleggja, tyrfa og/eða
endurskipuleggja garðinn eða gera
fínt í kringum sumarbústaðinn. Fyrir
byggingaverktaka annast hann alla
þá jarðvegsvinnu sem þarf að fram-
kvæma áður en hús og önnur mann-
virki eru byggð.
„Ég er með nokkra starfsmenn á
sumrin en færri á veturna,“ segir Bjarni
en töluverðan tækjabúnað þarf til að
halda starfsemi hans gangandi: „Ég
er með gröfur, vörubíla, sendibíla og
svo ýmis minni tæki og búnað,“ segir
Bjarni en töluverður kostnaður er við
að endurnýja slíkan tækjabúnað svo vel
sé og stundum þarf að gera við fram á
nótt til að hafa öll tæki klár fyrir daginn.
„Ég er mjög mikið í drenlögnum, við
mokum fyrir og skiptum um allar lagnir
sem þarf, undir og við hús,“ segir Bjarni
en lagnavinna getur orðið aðkallandi
og er framkvæmd á öllum árstímum.
„Það er verst ef það er mikil snjókoma
eða mikið frost en annars getur þetta
farið fram hvenær sem er.“
Lagnir og lóðir ehf. annast líka ýmis
lagnaverkefni fyrir veitufyrirtæki og
leggur og endurnýjar lagnir fyrir fyrir-
tæki og stofnanir.
Styttist í vorverkin
Tíminn líður hratt, núna er kominn
janúar og áður en við vitum af fer vorið
að nálgast. Aðspurður hvaða verk sem
tengjast hans starfsemi fólk ætti að
huga að fyrir vorið segir hann:
„Vetur hér geta verið ansi umhleyp-
ingasamir og blautir þá verður fólk
mjög oft vart við leka í kjöllurum. Ýmist
eru þá lagnir ónýtar eða það vantar
drenlagnir í kringum hús – en það er
algengt í gömlum húsum. Þegar dren-
lagnir eru ónýtar endurnýjum við þær
og skiptum um allar lagnir sem þarf
undir og við húsið, hvort sem um er að
ræða fráveitu- eða neysluvatnslagnir.
Fólk nýtir þá oft tækifærið og breytir
staðsetningu niðurfalla, handlauga og
klósetta. Þar sem vantar lagnir setjum
við einfaldlega nýjar lagnir.“
Margir sem vilja umbreyta görðum
sínum og lóðum leita til Lagna og lóða
ehf. Bjarni segir gott að huga að slíkum
verkefnum um leið og frost fer úr jörðu.
Hann endurmótar garða, mokar fyrir
hellulögnum, sólpöllum og heitum pott-
um. Í sumarbústaðalöndum gerir hann
vegi auk þess að umbreyta görðum og
setja lagnir í og við sumarbústaði.
Verksvæði fyrirtækisins er allt suð-
vesturhorn landsins.
Nánar má fylgjast með starfseminni
á Facebook-síðunni Lagnir og lóðir. Til
að fá nánari upplýsingar eða tilboð í
verk er hægt að hringja í Bjarna í síma
891-9120 eða senda tölvupóst á net-
fangið vaxandivandi@gmail.com n
LAGNIR OG LÓÐIR EHF:
Lagnavinna, jarðvinna
og lóðavinna