Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Síða 37
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Orkufell ehf. er rafverktaka-fyrirtæki sem sinnir öllum tegundum af raflögnum. Fyrirtækið þjónustar fjarskipta- veitur, er í lagningu og tengingu ljósleiðara, setur upp hússtjórna- kerfi, brunaviðvörunarkerfi, örygg- is- og eftirlitsmyndavélakerfi, lýs- ingarbúnað og margt fleira. „Ég er sjálfur menntaður rafiðnfræðingur og rafvirkjameistari auk þess sem ég er löggildur raflagnahönnuð- ur. Því er starfsvið fyrirtækisins nokkuð vítt, en það þýðir líka að við getum boðið upp á heildarlausnir fyrir viðskiptavini okkar. Við sinnum bæði einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum. Það er ekkert verk- efni of stórt eða of lítið fyrir okkur. Einnig bjóðum við upp á að gera þjónustusamninga við viðskipta- vini okkar um reglubundið viðhald raflagna,“ segir Pálmi Gíslason, eigandi Orkufells ehf. Heimahleðslustöðvar fyrir rafbíla Sala rafbíla eykst með hverjum degi, enda ódýrari í rekstri og umhverfisvænn kostur. „Við höfum fundið fyrir mikilli aukningu í fyrir- spurnum varðandi val og uppsetn- ingu hleðslustöðva. Hleðslutækin sem fylgja rafbílunum teljast að mati Mannvirkjastofnunar til svo- kallaðra neyðarhleðslutækja. Þau hlaða almennt á tíu amperum og eru ekki ætluð til daglegrar notk- unar. Venjulegur veggtengill er hins vegar ekki gerður fyrir fyrir svo háan, stöðugan straum. Fólk tekur stundum eftir að snúran frá hleðslutækinu hitnar óeðlilega mikið og stundum brenna klærn- ar og tengillinn við álagið. Það er mikilvægt að fylgjast með hvort klærnar eru að hitna við hleðslu því þá getur skapast brunahætta og réttast að láta rafvirkja skoða hvort tengillinn þolir álagið sem hleðslutækið veldur og hvort ör- yggið sem ver lögnina að tenglin- um sé í lagi. Heimahleðslustöðvar hlaða á 16–32 amperum og geta því hlaðið rafbílinn að minnsta kosti 60% hraðar en neyðarhleðslutækin sem fylgja bílunum. Heimahleðslu- stöðvarnar eru þar að auki ætl- aðar til daglegrar notkunar,“ segir Pálmi. Hleðslustöðvar fyrir fjölbýli „Við bjóðum einnig upp á upp- setningu hleðslustöðva fyrir fjöl- býlishús. Þá setjum við, í samráði við húsfélög, upp álagsdreifðar hleðslustöðvar sem taka mið af stærð heimtaugar. Við erum ekki innflutningsaðilar að hleðslu- stöðvum heldur erum við ráð- leggjandi í því að finna kerfi sem hentar viðskiptavininum og getum svo boðið upp á heildarlausn við val og uppsetningu. Við vorum til dæmis að setja upp fyrsta flokks heimahleðslustöðvarkerfi í bíla- stæðahúsi í Kirkjulundi í samstarfi við Ísorku, þar sem bílastæði eru fyrir 35 bíla,“ segir Pálmi. Sendu fyrirspurn þér að kostnaðarlausu Á vefsíðu fyrirtækisins er hægt að senda skriflega fyrirspurn til fyr- irtækisins. „Það er mjög einfalt að senda okkur fyrirspurn í gegnum vefsíðuna okkar. Hvort sem það er í sambandi við val á hleðslustöð eða almenna raflagnavinna. Við svör- um eins fljótt og auðið er,“ segir Pálmi. Nánari upplýsingar má nálgast á orkufell.is Smiðjuvegur 4a, Græn gata, 200 Kópavogur Sími: 571-3233 Netpóstur: orkufell@orkufell.is Opið er alla virka daga frá 08.00–16.00. n ORKUFELL: Hlöðum rafbílinn rétt Þorsteinn Þorvaldsson, Þorsteinn Emilsson og Pálmi Gíslason Pálmi með heimahleðslustöð í bakgrunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.