Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Side 46
46 FERÐALÖG 11. janúar 2018
heimili mitt og það mun aldrei
breytast,“ segir Katrín Sif.
Undanfarin tólf ár hefur
Katrín Sif tekið að sér ýmiss
konar leiðsögn, sérstaklega
í hestaferðum, yfir sumar
mánuðina á Íslandi en svo yfir
gefið landið þegar hausta tekur
og flakkað um heiminn í 8–9
mánuði. Það fer því fjarri að
hún sé að „safna“ löndum með
því að dvelja örstutt í hverju
landi fyrir sig. Hún tekur sér
tíma á hverjum stað og reynir
að kynnast innfæddum og
menningu þeirra.
„Ég er ekki í neinni sérstakri
keppni í að reyna að ferðast
til allra lands heims á sem
skemmstum tíma. Ég held að
sjálfsögðu utan um hvaða lönd
og staði ég hef heimsótt, en ég
er að gera þetta fyrir sjálfa mig,
fyrst og fremst. Ég upplifi oft að
aðrir séu spenntari yfir landa
fjöldanum en ég,“ segir Katrín
Sif.
Hún segist skipuleggja ferð
ir sínar þannig að hún dvelji
á svipuðum menningarsvæð
um. „Ég hoppa ekki á milli
heimsálfa enda er það dýrt
og mjög lýjandi. Ekki bara
ferðalagið heldur líka fyrir hug
ann að aðlagast sífellt mismun
andi tungumálum, siðum og
venjum. Til dæmis ferðaðist ég
um VesturAfríku í einni ferð,
NorðurAfríku í annarri ferð og
svo framvegis,“ segir Katrín Sif.
Hún á aðeins eftir að heim
sækja örfá viðurkennd ríki
en í þeim hópi eru Alsír, Ús
bekistan, Túrkmenistan, Mið
Afríkulýðveldið og Suður
Súdan. „Ég hef verið í
vandræðum með að fá vega
bréfsáritun til fyrstu þriggja.
Ástandið er ótryggt í hin
um tveimur og því hef ég að
eins beðið með að heimsækja
þau. Mér liggur ekkert á,“ segir
Katrín Sif.
Árstekjurnar aldrei yfir
milljón
Aðspurð hvort hún fái aldrei
nóg af þessum ferðalögum
segir hún: „Nei, ég kann mjög
vel að meta þennan lífsstíl.
Ég elska að vera frjáls og legg
ekki mikið upp úr veraldlegum
gæðum.“ Að hennar sögn hafa
útborgaðar árstekjur hennar
aldrei farið yfir eina milljón ís
lenskra króna og því þarf hún
að ferðast afar sparlega. Hún
segist nánast vera komin með
doktorsgráðu í að finna ódýrt
flug. „Ég er oft fengin til þess
að aðstoða fjölskyldu og vini
við að finna ódýr fargjöld. Mál
ið er að helstu leitarsíður eru
oft ekki með samning við sömu
lággjaldaflugfélögin. Það þarf
því að leita á nokkrum síðum
og þannig er hægt að púsla
saman ferð með hagstæðum
hætti,“ segir Katrín Sif.
Þar sem hún þarf að halda
vel utan um fjármálin á ferð
um sínum þá velur hún oft
ódýrasta valkostinn, hún ferð
ast því mikið með rútum. „Það
hefur ekki verið neinn lúxus að
fara í langar rútuferðir í Afríku
og nú síðast í Indlandi. En það
er mikil upplifun og maður fær
meiri innsýn í líf innfæddra.
Þetta er þó líklega ekki fyrir
alla,“ segir hún kímin.
Þegar kemur að gistingu þá
fer Katrín Sif óhefðbundnar
leiðir. „Ég gisti yfirleitt ókeyp
is hjá heimafólki í gegnum svo
kallað sófahopp (e. couchsurf
ing). Það er allur gangur á því
hvernig aðstæður eru í boði en
að mínu mati er þetta er afar
skemmtilegur ferðamáti,“ segir
Katrín Sif. Sem dæmi má nefna
að hún heimsótti Bangladess í
fyrsta skipti á dögunum og gisti
þá hjá tyrkneskum flugmanni
sem búsettur var í höfuðborg
landsins, Dakka. „Ég var bara
búin að gista í íbúðinni hans
í nokkra daga þegar hann var
skyndilega kallaður til vinnu.
Þá rétti hann mér bara lykl
ana og bað mig að læsa þegar
ég færi,“ segir Katrín Sif og
brosir. Hún segir að slíkt traust
og vinarþel sé regla frekar en
undantekning á ferðum hennar
og það sé meðal annars ástæð
an fyrir því hversu vel hún kann
að meta þennan ferðamáta.
Hún segist aldrei hafa lent í
neinum teljandi vandræðum
en vissulega hafi allra þjóða
vonbiðlar stundum gert hosur
sínar grænar fyrir henni. Það
hafi stundum reynst hvimleitt
en Katrín Sif leysti það með
því að ferðast um með hring á
fingri og gefa þar með í skyn að
hún væri lofuð. Það minnkaði
allt slíkt ónæði til muna.
Sér um norðurljósa-jógaferðir
Erindi Katrínar Sifjar til Íslands
í janúar er að taka að sér farar
stjórn í nýrri tegund af ferðaþjón
ustu, jógaferðum með áherslu á
að upplifa norðurljósin. „Líklegast
þekkjast slíkar ferðir hvergi annars
staðar í veröldinni og það verð
ur spennandi að taka þátt í þessu
verk efni. Þetta verða tvær ferðir
sem ég sé um núna í byrjun árs
með bandaríska ferðamenn. Það
verður spennandi að sjá hvernig til
tekst og þá verður vonandi fram
hald á,“ segir Katrín Sif.
Hún segir að sér hafi boðist
verkefnið í október í fyrra og
slegið til. Eina vandamálið var
að hún hafði vissulega iðkað
jóga en hafði ekki kennara
réttindi. „Ég sagðist einfald
lega ætla að græja það og fann
að lokum skemmtilegt mánað
arnám í Goa í Indlandi,“ seg
ir Katrín Sif. Þar dvaldi hún í
rúman mánuð í góðu yfirlæti.
„Ég kunni vel við mig í Goa.
Það er ekki sami hraðinn og
lætin þar og annars staðar í
Indlandi,“ segir Katrín Sif. Eftir
vikudvöl áttaði hún sig skyndi
lega á því að í rúmt ár hafði
hún ekki sofið jafn margar næt
ur í sama rúmi. „Það var mjög
skrýtin tilfinning. Ég er alltaf
á flakki og jafnvel þegar ég
kem heim til Íslands þá er ég
strax farin af stað í ferðir með
útlendinga sem leiðsögumaður
og þar sem hver nótt er á nýjum
stað. Ég kunni þó ágætlega við
að slaka á og klára námið,“ seg
ir Katrín Sif.
Hún reiknar með að taka
að sér enn fleiri verkefni sem
fararstjóri erlendis á næstu
árum. „Þetta er það sem ég
kann og lifi fyrir, að ferðast. Ég
fór með hóp til SuðurAfríku
fyrir nokkru síðan og það gekk
mjög vel. Ég mun starfa með
einhverjum hætti við ferða
mennsku í framtíðinni,“ segir
Katrín Sif. n
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
10-70%
HREIÐUR.ISAuðbrekka 6, 200 Kópavogur
Í Víetnam „Ég hoppa ekki á milli heimsálfa
enda er það dýrt og mjög lýjandi.
Ekki bara ferðalagið heldur líka fyrir
hugann að aðlagast sífellt mismunandi
tungumálum, siðum og venjum.
Katrín Sif undi
hag sínum vel í
Bangladess