Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Blaðsíða 9
Vo fa H i t l e r s
TMM 2013 · 3 9
virðuleg stemning ríki áfram í Listamannaskálanum. Þegar klukkan er langt
gengin í níu býður skáldið Halldór Laxness gesti þar velkomna, því næst lesa
Magnús Ásgeirsson og Lárus Pálsson úr verkum danskra og norskra skálda
og Árni Kristjánsson og Björn Ólafsson leika sónötu eftir Edvard Grieg. Að
því loknu hefst fyrsta listaverkauppboðið í sögu landsins. Um er að ræða
fjáröflun á vegum Bandalags íslenskra listamanna til stuðnings við þá Norð-
menn og Dani sem eiga um sárt að binda eftir áralangt hernám nasista.
Ætlunin er að bjóða upp um þrjátíu verk eftir tuttugu og fimm listamenn.
Uppboðshaldarinn beinir athygli viðstaddra að hverju listaverkinu á fætur
öðru. „Fyrsta, annað, þriðja, slegið,“ gólar hann í lok hverrar lotu og slær
eins og hnefaleikadómari í bjöllu á ræðupúltinu. Síðast er boðið upp eintak
af Friheden, minningarljóðum norska skáldsins Nordahls Grieg, árituðum
af ekkju hans. Bókin fer á 800 krónur sem þykir dágott því flest málverkin
hafa selst undir matsverði. Ásgrímur Jónsson á metið, mynd eftir hann er
slegin á 2000 krónur. Altaristafla sem frú Gréta Björnsson hefur gefið til
uppboðsins er óseld í lok kvöldsins en Laxness vekur athygli á að hún verði
til sýnis næstu daga í skemmuglugga í miðbænunum.8
9545
Á efsta bekk í Tjarnarbíói sitja ungskáldin Elías Mar, Jón Óskar og Hannes
Sigfússon og ræða svipleg örlög Guðmundar Kambans og tengsl þeirra
við dauða Jónasar Hallgrímssonar fyrir réttri öld síðan. Það hefur kitlað
hégómagirnd Elíasar að geta fyrstur manna sagt ýmsum kunningjum sínum
frá láti Kambans. Og ekki þykir honum verra
að geta upplýst í framhjáhlaupi að Laxness eigi
í lok mánaðarins að verða forseti listamanna-
þingsins sem verði einmitt helgað minningu
listaskáldsins góða. Þeir Hannes vilja vita
hvaðan Elías hafi heimildir sínar. „Ólyginn
sagði mér,“ hvíslar hann íbygginn rétt í þann
mund sem salurinn myrkvast.9 Á tjaldinu
birtast titlar einnar af þremur bandarískum
stríðsmyndum sem Elías sér í þessari viku.
Í fyrradag horfði hann á Uppreist um borð
með Humphrey Bogart í hlutverki fransks
blaðamanns sem leggur líf og limi í sölurnar
í baráttunni gegn grimmdaræði Þjóðverja.
Næsta sunnudag sér hann Tvífara Hitlers sem
fjallar um áform Gestapó um að ráða þýska
kanslarann af dögum og láta skuggamynd hans taka völdin. En í kvöld
rennur Einræðisherrann fyrir sjónum skáldsins. Þetta er pólitísk paródía
frá 1940 þar sem Charlie Chaplin bregður sér ýmist í hlutverk Adenoids