Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Page 38
E g g e r t Þ ó r B e r n h a r ð s s o n
38 TMM 2013 · 3
1925 og stendur enn þótt margt hafi breyst með nýrri tækni. Í grunninn má
skipta myndunum í þessum gömlu albúmum í tvö megintímabil þar sem hið
fyrra nær til 1939 og það seinna fram um 1990. Annars vegar eru myndir
sem eru að mestu teknar í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu, einkum á
Hvammstanga. Þar bjuggu afi og amma til 1936 en þá fluttu þau með dætur
sínar tvær til Vestmannaeyja og bjuggu þar næstu þrjú árin og eignuðust
þriðju dótturina. Hins vegar er Reykjavíkurtíminn sem hófst 1939. Ýmsum
sem ég hef sýnt myndirnar hefur komið á óvart hversu margar myndir eru
til frá árunum 1925 til 1940 enda filmur dýrar sem og framköllun og ekki
áttu allir myndavélar. Framan af helgaðist myndagleðin öðrum þræði af því
hversu áhugasamur afi minn var um þessa tækni og að hann átti tiltölulega
auðvelt með að fá ódýra framköllun og filmur sem umboðsmaður norðan
heiða fyrir ljósmyndavöruverslun og ljósmyndastofuna Amatör í Reykjavík
en fjölskyldusagan segir að hann hafi að einhverju leyti fengið greitt fyrir það
starf í filmum og framköllun. Það hefur komið sér vel.
Um páskana 2011 byrjaði ég að skoða skipulega öll gömlu fjölskyldu-
albúmin í fórum móður minnar og systra hennar. Að lokum var ég með
liðlega þrjátíu myndaalbúm á skrifstofunni minni auk nokkur hundruð
lausra mynda. Á nokkrum mánuðum skannaði ég vel á þriðja þúsund
myndir en í sjálfu sér lýkur myndaleitinni seint því lengi er von á einum.
Í raun var þetta eingöngu grunnvinnan, þ.e. að vinna með albúmin sjálf,
skanna og finna út tímasamhengi, hverjir væru á myndum, tengsl milli
fólks og staða og annað í þeim dúr. Í framhaldinu er síðan hægt að vinna
markvissar með myndirnar og þá í stærra eða víðara samhengi.
Ég gerði þó dálitla tilraun síðla árs 2011 til þess að draga saman myndir
og sjá hvert það myndi leiða mig. Ég setti saman myndabók með einni
útgáfu af fjölskyldusögu í myndum
þar sem móðir mín er lykilmanneskjan
og myndavalið hverfist að mestu um
hana. Bókina kalla ég Öld í albúmum.
400 fjölskyldumyndir en myndasagan
hefst árið 1903 og endar árið 2002.
Myndirnar eru settar fram í tímaröð
með meginþunga á árin frá um 1930
til um 1970. Þessi tilraun sannfærði
mig enn frekar um mikilvægi þess
að vinna með albúmin og minn-
ingar tengdar myndunum því engu
var líkara en myndirnar lifnuðu við
þegar móðir mín, sem er fædd árið
1928, fékk bókina í hendur. Sögur og
frásagnir í tengslum við einstakar myndir streymdu fram og mér kom satt
að segja nokkuð á óvart hversu ljóslifandi atburðir og fólk stóðu henni fyrir
Ritið Öld í albúmum var tekið saman
árið 2011 og er 100 blaðsíður.