Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 54

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 54
S t e i n a r B r a g i 54 TMM 2013 · 3 Ellert kom einn heim og fórnaði höndum og um leið settist Katrín við símann og byrjaði að hringja niður listann yfir vini Andra. Hún talaði við hverja áhyggjulausa mömmuna af annarri sem sagði barnið sitt vera komið heim og nei, Andri væri ekki hjá þeim í mat. Hjá tveim þeirra, sem spurðu syni sína, fékk Katrín að vita að Andri hefði síðast sést á leikvelli við vestur- enda Ægisíðunnar, þar sem farið var í feluleik; eftir það hefði hann ekki sést en einn strákurinn sagðist halda að hann hefði hlaupið „í áttina að sjónum“. Þegar listinn var tæmdur klæddi hún sig í létta yfirhöfn og rauk út, leitaði um allt hverfið frá Melabúðinni að Neskirkju og á ströndinni við Ægisíðuna. Engir gemsar voru til á þessum tíma, því hljóp hún með reglulegu millibili heim til að athuga hvort Andri væri kominn og hringdi aðra umferð í mæðurnar sem fóru að deila áhyggjum hennar; ekkert meira hafði komið út úr börnunum varðandi afdrif Andra og tvær þeirra fóru út til að hjálpa henni að leita í kringum KR-völlinn og á Melunum næst Hringbrautinni þótt ólíklegt væri að hann hefði farið svo langt. Engin umferð var nú um Ægisíðuna, Katrín hljóp hana á enda og fann á sér að eitthvað slæmt hefði gerst. Hún fór aftur heim og hringdi í lögregluna sem sagðist ekkert geta gert en tók niður lýsingu á Andra og beindi lausum bílum á vakt í hverfið og út á Nes til að skima eftir honum. Það sem gerðist eftir þetta man Katrín óljóst nema að hún sat heima ásamt tengdamóður sinni meðan Ellert og bræður hans leituðu í öllum Vestur- bænum og víðar og áttu í samskiptum við lögregluna og þá í hverfinu sem hjálpuðu til við leitina. Þegar klukkan var að ganga sex næsta morgun var Andri ekki enn fundinn og lögreglan samdi fréttatilkynningu til að lesa í áttafréttum útvarpsins. Við sólarupprás fannst Andri loks inni í einum af grásleppuskúrunum við Ægisíðuna. Fyrr um nóttina hafði leitarfólk gengið þar hjá og hrópað nafnið hans en ekki kíkt inn í skúrana sem voru læstir. Nú þegar birti sást til hans um rifu á einum skúrnum þar sem hann sat flötum beinum úti í horni, svaraði engum spurningum og virtist raunar ekki heyra þær; augun voru opin en slakur svipur á andlitinu. Hár hans sem áður hafði verið dökkt var nú orðið skjannahvítt og í fasi var hann svo breyttur, eitthvað við þögn hans var svo fráhrindandi og sjúkt að þegar mamma hans kom hlaupandi voru fyrstu viðbrögð Ellerts að varna henni aðkomu; það tókst auðvitað ekki. Hún kastaði sér grátandi á hnén og faðmaði son sinn, hélt um hönd hans í sjúkrabílnum og vék ekki frá rúminu á spítalanum þar sem hann lá næstu vikurnar. Engir áverkar fundust á honum en læknar sögðu hann vera „í sjokki“ og það væri sjaldgæft – en ekki óheyrt – að háralitur fólks breyttist við áföll. Að nokkrum dögum liðnum fékk Andri aftur málið. Hann var undrandi yfir því að allt hárið hefði verið rakað af honum, mundi ekki hvað gerðist daginn sem hann hvarf og kvartaði undan vægum flökurleika. Brátt rifjaðist upp fyrir honum feluleikurinn og að líklega hefði hann hlaupið niður í fjöru en eftir það mundi hann ekkert. Þótt engin formleg rannsókn færi fram
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.