Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Qupperneq 93

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Qupperneq 93
L ó ð r é t t h r e y f i n g TMM 2013 · 3 93 „Faðir, ó, faðir, hinsta ósk þín er svo hræðilegt svarthol!“ Þetta harmakvein gat af sér misskilning: svört moldarlögin sneru upp á mig eins og þau ætluðu að snúa af mér líkamann. Ég fann líka að lík forfeðra minn voru falin innan í fellingum jarðarinnar. Af líkunum stafaði leiftrandi fosfórljóma. Ofskynj- anir mínar vöruðu aldrei lengi: mér var illa við tilfinningasemi. Mestallan tímann steig ég upp skref fyrir skref. Steig upp! Eftir að ég hóf mínar lóðréttu hreyfingar fannst mér líf mitt snúast meira um öguð vinnubrögð, svefn, vinnu, svefn … Þessi reglusemi umbreytti líka huga mínum. Áður fyrr hafði ég unun af sundurlausum dagdraumum – um lögin í svörtu jörðinni, um forfeðurna, um Föður minn, um heiminn fyrir ofan og svo framvegis. Það var fyrir dagdraumana sem ég gat slakað á, þeir voru eins konar skemmtun, eins konar bragðgóður barrviðarvökvi. Nú var allt breytt. Dagdraumarnir voru ekki lengur sundurlausir; nú höfðu þeir markmið. Um leið og ég fór að hvíla mig tóku þessir tveir svörtu hlutir fyrir ofan mig að marka stefnu, og þeir drógu hugsanir mínar í sömu átt. Hvað var fyrir ofan? Í rauninni bara þessir tveir hlutir. Í hugrenningum mínum heyrði ég þá gefa frá sér undarlegt hljóð eins og frá hrossabresti vaktmanns: það var engu líkara en að einhver lemdi hrossabrestum hins forna fjalls í jörðina fyrir ofan og að hljóðið næði í alvöru til okkar þarna neðanjarðar. Ég hlustaði af athygli og hugsaði um þessa stóru svörtu hluti fyrir ofan. Á meðan ég var gagntekinn af þessu hætti hljóðið frá hrossabrestinum allt í einu og varð að hljóði okkar skordýranna – fjölmargra skordýra – þegar við borum í jörðina. Stundum heyrði ég líka óljóst að skordýrin voru að tala – hljóð sem ég hafði að líkindum heyrt fyrr. Ó, þetta hljóð! Var það ekki einmitt hljóðið sem ég hafði heyrt skömmu eftir að ég losnaði frá líkama föður míns? Faðir minn virtist enn vera á meðal okkar. Fyrir hans tilstilli fann ég fyrir stöðug- leika, trúnaði, einhverjum sérstökum spenningi. Í þessu lá nýtt svið fyrir ímyndunina. Ég áttaði mig á því að mér var vel við núverandi líf mitt. Þegar maður var alveg að ná markmiðum sínum, þegar maður teygði gogginn endalaust í átt að því sem vakti svo mikinn áhuga manns: leið manni þá ekki vel? Ég hugsaði reyndar ekki of mikið um þetta: ég var bara sæll með mínar nýju kringumstæður. Ég áttaði mig á því seint og um síðir að svörtu hlutirnir tveir fyrir ofan mig voru ekki bara alveg svartir heldur í óendanlegum litbrigðum á stöðugu iði. Því nær sem ég komst mörkunum því veikari og veigaminni sýndust kjarn- arnir verða, eins og þeir gætu komist í gegnum ljósið. Trúðu mér, líkami minn var nærri því að skynja ljós sem var bleikt og svolítið heitt. Þegar ég reyndi of mikið á mig einu sinni fann ég að ég hafði rifið upp einn kjarnann. Ég heyrði meira að segja brothljóð – tsja. Ég var bæði spenntur og hræddur. En eftir smástund áttaði ég mig á að það hafði ekki neitt gerst: þeir voru enn fyrir ofan mig. Allt var harla gott. Mikill kjáni gat ég verið: hvernig gat orðið ljóst neðanjarðar? Nú voru hlutirnir tveir svo snilldarlegir, svo seiðandi. Bergmálaði ekki enn einu sinni óskýr rödd Föður míns?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.