Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Side 104

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Side 104
S v e t l a n a A l e x i e v i t c h 104 TMM 2013 · 3 í mál! Pabbi hennar kom og sagði: „Vertu ekki með þessari betlistelpu“. Ég skildi að ég hafði verið tekin og mér ýtt til hliðar. Ég átti að láta mig hverfa svo lítið bæri á. Auðvitað eru þetta orð fullorðinna, ekki barnamál. En til- finninguna … tilfinninguna man ég … Þetta er svo sárt að þú móðgast ekki lengur og vorkennir ekki sjálfri þér, allt í einu hefur þú fengið heilmikið frelsi. En þú vorkennir ekki sjálfri þér. Ef sjálfsvorkunnin er þarna enn þá ertu ekki búin að skoða dæmið nógu vel, kafa nógu djúpt, þú ert ekki enn farin burt frá fólkinu. En sértu farin þá þarftu alls ekki á fólki að halda lengur, það nægir þér sem þú finnur í sjálfri þér. Ég fór víst of djúpt á kaf … Það er erfitt að móðga mig. Ég græt sjaldan. Mér finnast venjulegar misgerðir hlægilegar, ergelsi milli kvenna líka … Mér finnst þetta vera svona show … lífsins show … En ef ég heyri barn gráta … og ég geng aldrei framhjá betlara … Ég mun aldrei ganga framhjá þeim. Ég man þessa lykt, lykt ógæfunnar … Það ganga yfir einhverjar bylgjur og ég er enn tengd við þær. Þetta er lykt bernsku minnar. Lyktin af mínum bleium. Ég er á göngu með Vlödju … við höldum á sjali úr geitarull … Fallegum hlut sem ætlaður er einhverjum öðrum heimi. Pöntunin er tilbúin. Vladja kunni að prjóna og á þessum peningum lifðum við. Konan borgaði okkur og segir svo: „Á ég ekki að skera nokkur blóm handa ykkur“. Hvað þá – áttum við að fá blómvönd? Þarna stöndum við, tvær betlistelpur í einhverjum poka- druslum … svangar og kaldar … Og við eigum að fá blóm? Við hugsuðum aldrei um annað en brauð en þessi kona skildi að við gátum hugsað um fleira. Þú varst innilokuð, múruð inni, og svo var opnaður fyrir þig ljóri … gluggi var opnaður upp á gátt … Það kemur í ljós að fyrir utan brauð … fyrir utan mat … er hægt að gefa okkur blómvönd! Það þýðir að við erum ekkert öðru- vísi en aðrir. Við … erum alveg eins … Þetta var brot á öllum reglum: „Á ég ekki að skera nokkur blóm handa ykkur“? Ég slít þau ekki upp, ég tíni þau ekki, þau eru afskorin í mínum eigin garði. Frá þessari stundu … Kannski var þetta minn lykill … mér var fenginn einhver lykill … Þetta umturnaði öllu hjá mér … Ég man þennan blómvönd … stærðar lokkablómavönd … Ég set þau niður við sumarbústaðinn minn á hverju vori. (Við sitjum einmitt við sumarbústaðinn hennar. Þar vex ekki annað en blóm og tré). Ég fór til Síbiríu ekki alls fyrir löngu … Borgin Zmeínogorsk … þangað sneri ég aftur … Ég leitaði að götunni okkar … húsinu okkar … kjallaranum okkar … En húsið var þar ekki lengur, búið að rífa það. Ég spurði alla: „En munið þið ekki?“ Einn gamall maður, já, hann mundi að falleg stúlka átti heima í kjallaranum, hún var veik. Fólk man betur fegurð heldur en þjáningu. Og blómvöndinn fengum við af því að Vladja var falleg. Ég fór í kirkjugarðinn … Rétt við hliðið stóð varðskýli með neglt fyrir glugga. Ég barði það utan lengi. Svo kom vörðurinn út, hann var blindur … Hvað á nú þetta að þýða? „Getið þér ekki sagt mér hvar útlagarnir voru grafnir?“ – „Æjá … þaaarna …“ sagði hann og sveiflaði hendinni upp eða niður, hver veit. Einhverjir menn fylgdu mér út í ysta horn garðsins … Þar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.