Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Side 129

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Side 129
TMM 2013 · 3 129 Kjartan Ólafsson Straumhvörf 21. ágúst 1968 Í 2. hefti Tímarits Máls og menningar fyrir árið 2013 birtist merkilegt viðtal Kristrúnar Heimisdóttur við Jóhann Pál Árnason heimspeking, sem lengi var pró- fessor við háskóla í Melbourne í Ástralíu. Í viðtalinu er Jóhann Páll m.a. spurð- ur um áhrif hernaðarinnrásar Sovétríkj- anna og fjögurra fylgiríkja þeirra í Tékkóslóvakíu í ágústmánuði 1968 á afstöðu stjórnmálahreyfingar íslenskra sósíalista til Sovétríkjanna. Í annars ágætu svari Jóhanns Páls við þessari spurningu er að finna þrjár missagnir sem ég tel mér skylt að leiðrétta, einkum vegna þess að hann gerir minn hlut í atburðarásinni hér heima á innrásar- daginn stærri en hann var. Jóhann segir að ég hafi samið hina harðorðu ályktun um innrásina og valdarán Rússa í Prag sem framkvæmda- nefnd Sósíalistaflokksins samþykkti á innrásardaginn, þann 21. ágúst, og er það rétt. Hins vegar lætur Jóhann fylgja með að í þeirri ályktun hafi verið lýst yfir að öllum flokkslegum tengslum við valda- flokka innrásarríkjanna yrði slitið en svo var ekki. Yfirlýsingin um að hafna öllum samskiptum við þessa flokka var ekki samþykkt fyrr en tæpum mánuði síðar og þá í framkvæmdastjórn Alþýðubanda- lagsins en með stuðningi flokksmanna Sósíalistaflokksins sem þar áttu sæti. Að þeirri samþykkt og aðdraganda hennar mun ég víkja hér nánar síðar. Önnur missögn í svörum Jóhanns Páls við fyrrnefndri spurningu Krist- rúnar er sú að þeir Einar Olgeirsson, Lúðvík Jósepsson og Magnús Kjartans- son hafi allir verið fjarverandi og því ekki setið fund framkvæmdanefndar Sósíalistaflokksins sem haldinn var strax á innrásardaginn, 21. ágúst. Lúð- vík var á fundinum en hinir tveir stadd- ir erlendis. Þriðja atriðið sem ég kemst ekki hjá að gera athugasemd við er sú staðhæfing Jóhanns Páls að þeir Einar, Lúðvík og Magnús hefðu viljað fara vægar í sak- irnar en gert var í nýnefndri ályktun Sósíalistaflokksins frá 21. ágúst eða yfir- lýsingunni frá 18. september um engin flokksleg samskipti. Þessi staðhæfing á við nokkur rök að styðjast hvað varðar Einar og Lúðvík en er hins vegar röng sé spurt um afstöðu Magnúsar Kjartans- sonar og mun ég víkja nánar að því síðar í þessum pistli. Áður en lengra er haldið verður að geta þess að ég var framkvæmdastjóri Sósíalistaflokksins frá 1962 og allt þar til f lokkurinn var lagður niður í lok árs- ins 1968. Í ágústmánuði á því ári var Alþýðubandalagið enn aðeins kosningabandalag en ekki fullgildur stjórnmálaflokkur. Er þarna var komið sögu hafði hins vegar verið ákveðið að leggja Sósíalistaflokkinn niður um næstu áramót og einnig lá fyrir að Alþýðubandalaginu yrði breytt úr kosn- ingabandalagi í formlegan stjórnmála- flokk á landsfundi þess sem haldinn var í byrjun nóvember þetta sama ár, 1968. Vík ég þá aftur að því sem gerðist hér heima á innrásardaginn, 21. ágúst 1968, og næstu dögum og vikum. Þess var áður getið að formaður sósíalistaflokks- ins, Einar Olgeirsson, var utanlands, að Á d r e p u r
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.