Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 144
D ó m a r u m b æ k u r
144 TMM 2013 · 3
leið „Síðari ljóðabálkur (bókarauki,
sjónauki), sbr. Fjórðu bók. Þar kemur
inn, nokkuð óvænt miðað við það sem á
undan er komið, trúarleg, kristin skír-
skotun, jafnvel eins konar trúarjátning
sem um minnir á Opinberunarbókina
en er öllu fáorðari um leyndardómana:
Risinn reisir
mig við
Risinn sem er lambið.
Ég
risinn
á
ný.
Eftir þessa hraðferð gegnum bækurnar í
Bók bókanna verður að geta þess að
verkið hefst og endar á stökum ljóðum.
Fyrsta ljóðið, Faðir kistulagður, er fal-
legt og einlægt með hnitmiðuðum og
skýrum myndum. Hið síðasta, Sýnir og
rúnir, er engu síður hnitmiðað og skáld-
legt og fer vel að verkslokum. Raunar
eru einnig gjarnan á bókamörkum
nokkuð sjálfstæð kvæði sem marka skil
og styrkja byggingu verksins.
Það er ekki auðvelt að fjalla um svo
margbrotna bók í stuttu máli. Byggingin
er úthugsuð og á sinn ríka hlut í heildar-
merkingu verksins. Lesandinn kemst að
því að nokkuð svo yfirlætislegar fullyrð-
ingar sem felast í fyrirsögnum eru ekki
orðin tóm. Alljóðaverkið Bók bókanna,
bækur ljóðanna spannar í raun og veru
harla vítt tilverusvið, það svið sem
skáldskapurinn glímir við: glímu
mannsins við sjálfan sig og samfélagið,
ástina og dauðann, og skírskotanir til
ævafornra og nýrra goðsagna gefa ljóð-
unum dýpt og vídd. Myndmál er hnit-
miðað og áhrifaríkt.
Fyrri ljóðabækur Stefáns Snævars
hafa einatt virkað nokkuð galgopalegar
og torræðar, oft eins og ortar í hálfkær-
ingi, þrátt fyrir óumdeilanlegt hug-
myndaflug og víðfeðmar nútímalegar
skírskotanir. Með þessari bók virðist
mér að skáldinu hafi tekist að brjóta af
sér einhvers konar klakabrynju, svo að
engum ætti að vera vorkunn að skynja
það heita hjarta sem slær í ljóðunum.
Ekki leikur vafi á að lærdómur Stefáns,
menntun hans, hefur lagt honum lið við
að koma ljóðunum fyrir á áhrifaríkan
hátt í þessari sérkennilegu byggingu,
Bók bókanna, en lærdómurinn og sér-
staða útlagaskáldsins myndar þó hvergi
neina girðingu milli ljóðheimsins og
þess lesanda sem leggur leið sína inn í
þetta völundarhús bóka og ljóða.