Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 20
BAKSVIÐ
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Stéttarfélagsaðild er mest á Íslandi
af Evrópulöndum og þótt víðar væri
leitað. Þetta kemur fram í rannsókn
sem Gylfi Dalmann Aðalsteinsson,
dósent við viðskiptafræðideild Há-
skóla Íslands, vinnur nú að.
Meðaltal stéttarfélagsaðildar á Ís-
landi á árunum 1999 til 2015 er
86,9% samkvæmt tölum Efnahags-
og framfarastofnunarinnar (OECD).
Frakkland sker sig úr hvað varðar
litla félagsaðild meðal OECD-
ríkjanna, með 7,8%. Í rannsókninni
er tekið fram að meðal þessara ríkja
er stéttarfélagsaðild á bilinu 16 til
21%.
„Hvað varðar löndin sem við ber-
um okkur saman við; Evrópulöndin,
hinar Norðurlandaþjóðirnar og
OECD-ríkin, kemur í ljós að við er-
um langhæst. Það þarf ekki að vera
slæmt í sjálfu sér en er mjög áhuga-
vert,“ segir Gylfi. Á tímabilinu 1999-
2016 var stéttarfélagsaðild á Íslandi
mest meðal norrænu þjóðanna eða
86,6%. Í Svíþjóð var hún 73,1%, í
Finnlandi 71,1%, í Danmörku 69,4%
og í Noregi 53,8%. Gylfi bendir einn-
ig á að stéttarfélagsaðild hafi farið
minnkandi í nær öllum OECD-
ríkjum á sama tíma og hún hefur
aukist hérlendis. Ef breytingar á að-
ildinni eru skoðaðar í prósentustig-
um á þessu sama tímabili mælist
aukningin hérlendis 4,2%. Í einungis
tveimur öðrum löndum jókst stétt-
arfélagsaðild á þessu tímabili; í Kan-
ada þar sem hækkunin nam 1,4% og
á Ítalíu þar sem hún var 0,3%.
Mesta fækkunin á þessu tímabili
var í Slóvakíu, 20,5 %. Stéttar-
félagsaðild í
Belgíu, Frakk-
landi og á Ítalíu
breyttist lítið en
talsverð fækkun
varð á Norð-
urlöndunum. Í
Finnlandi var
hún 10,9%, í Sví-
þjóð 13,8% og
fækkunin í Dan-
mörku var 8,6%,
segir í rannsókn Gylfa. „Það má
segja að ástæðan fyrir því að það
fækkar ekki hér sé fyrst og fremst
það sem kallast forgangsrétt-
arákvæði kjarasamninga. Um leið
og þú byrjar í vinnu t.d. í verslun eða
á lager er samningur milli stétt-
arfélags og vinnuveitanda um að þú
verðir í stéttarfélagi og þá er tekið af
laununum þínum sjálfkrafa,“ segir
Gylfi.
Samkvæmt íslenskum vinnurétti
ber þeim starfsmönnum sem ekki
vilja vera í stéttarfélagi að greiða
svokallað vinnuréttargjald, félags-
gjald til þess stéttarfélags sem
starfssvið viðkomandi starfsmanna
heyrir undir, fyrir að sinna þeirri
þjónustu sem viðkomandi stéttar-
félag veitir svo sem kjarasamn-
ingagerð og ýmis önnur réttindi.
Gylfi bendir einnig á að launþegi
þurfi heldur ekki að standa skil á fé-
lagsgjöldum sjálfur heldur taki
vinnuveitandi sjálfkrafa af launum
hans og greiði til félagsins. „Það
gerðist t.d. í Bretlandi á sínum tíma
þegar [Margaret] Thatcher komst
til valda. Þá breytti hún vinnulög-
gjöfinni með því að afnema for-
gangsréttarákvæði ásamt því að
banna vinnuveitendum að draga
sjálfkrafa af launum félagsmanna í
félagsgjöld. Það er talið hafa haft
áhrif á fjölda fólks í stéttarfélögum í
Bretlandi.“
Sjö atriði sem skipta máli
Í rannsókn Gylfa eru talin upp sjö
atriði sem talin eru hafa mest áhrif á
mikla stéttarfélagsaðild á Íslandi.
Þar er fyrst nefnt forgangsrétt-
arákvæði til vinnu og í öðru lagi
skylda atvinnurekenda til að halda
eftir félagsgjaldi starfsmanna. Þá
skiptir máli að lengi vel voru réttindi
til atvinnuleysisbóta tengd stétt-
arfélagsaðild sem og tenging stétt-
arfélagsaðildar við lífeyrissjóðs-
kerfið.
Gylfi segir að fræðimenn telji að
minnkandi stéttarfélagsaðild í Finn-
landi á árunum 1996 til 2006 megi
rekja m.a. til sjálfstæðra atvinnu-
Stéttarfélagaaðild á Íslandi og á vesturlöndum
Meðaltal áranna 1999-2015 Breyting 1999 til 2015
Ísland
Svíþjóð
Finnland
Danmörk
Belgía
Noregur
Ítalía
Írland
Austurríki
Bretland
Kanada
Nýja-Sjáland
Þýskaland
Ástralía
Slóvakía
Portúgal
Holland
Tékkland
Sviss
Spánn
Pólland
Bandaríkin
Frakkland
86,9%
72,7%
70,8%
69,1%
54,7%
53,7%
35,0%
33,7%
31,8%
27,9%
27,6%
20,9%
20,7%
20,7%
20,5%
20,3%
19,8%
19,2%
18,2%
16,1%
15,7%
11,9%
7,8%
-13,8%
-10,9%
-8,6%
-0,1%
-2,3%
-11,3%
-10,8%
-5,0%
-3,8%
-7,7%
-10,0%
-20,5%
-6,2%
-7,0%
-14,3%
-5,2%
-2,9%
-8,7%
-2,7%
-0,2%
4,2%
0,3%
1,4%
Heimild: OECD
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kröfuganga verkalýðsins Afar fjölmennt er í kröfugöngu verkalýðsins 1. maí á hverju ári sem endar á samstöðufundi. Hátíðahöld voru á meira en 30 stöðum á landinu í fyrra.
Ekkert land í Evrópu með hærra hlutfall launþega í stéttarfélögum en Ísland Stéttarfélagsaðild
fer minnkandi á Norðurlöndunum en hefur aukist hérlendis Forgangsréttarákvæði skiptir miklu
Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson
Sérstaða í stéttarfélagsaðild
leysistryggingasjóða, þar sem
starfsmenn utan stéttarfélaga geta
keypt sér atvinnuleysistryggingar
án þess að vera í stéttarfélagi.
Minnkaði aðild í Finnlandi um 10% á
tímabilinu. „Hér áður fyrr var það
svoleiðis að þeir einir áttu rétt á at-
vinnuleysisbótum sem voru í stétt-
arfélagi. Núna er búið að víkka
þennan rétt út og hann ekki lengur
bundinn við stéttarfélagsaðild,“ seg-
ir Gylfi.
Lífeyrissjóðir spruttu einnig fram
hér á landi í tengslum við kjara-
samninga og voru hugsaðir fyrir fé-
lagsmenn stétttarfélaga. „Þetta er
þannig ákveðinn hvati til þess að
vera í stéttarfélagi vegna þess að þá
borgar vinnuveitandinn þinn tiltekin
prósent af laununum þínum í lífeyr-
issjóð. Þegar þetta varð til litu menn
svo á að þetta yrði viðbótarsparn-
aður á eftirlaunum. Ríkið myndi
framfleyta þér eins og því ber skylda
til og þetta bættist við, en núna er
þetta orðið almennt. Til dæmis þeir
sem hafa ekki borgað í lífeyrisjóð og
voru til dæmis einhverra hluta
vegna ekki á vinnumarkaði; þeir fá
að lágmarki það sama og þeir sem
hafa borgað í lífeyrissjóð.“
Tengingin við lífeyrissjóðina get-
ur skýrt af hverju margir eldri laun-
þegar eru í stéttarfélögum að mati
Gylfa.
Hlutfall launþega sem eru opin-
berir starfsmenn, þ.e. starfsmenn
ríkis og sveitarfélaga, er afar hátt á
Íslandi. Um það bil 26% af heild-
arfjölda fólks á íslenskum vinnu-
markaði eru ríkisstarfsmenn sam-
kvæmt rannsókn Gylfa. Hann
bendir á að þeir séu nánast allir í
stéttarfélagi og það sé nánast gert
ráð fyrir því. Sterk stéttarfélög inn-
an opinbera geirans skýra því hluta
mikillar stéttarfélagsaðildar hér á
landi. Þá hafa stéttarfélög einnig
gert félagsaðild aðlaðandi á síðustu
árum með heilsueflandi styrkjum,
t.d. í líkamsrækt, ásamt aðgangi að
orlofshúsum, svo dæmi séu tek-
in.„Þau [stéttarfélögin] eru ekki
bara í kjarabaráttu heldur veita þau
fullt af þjónustu,“ segir Gylfi.
Í rannsókninni kemur einnig
fram að aðild ungs fólks að stétt-
arfélögum er minni en þeirra sem
eldri eru. Þróunin hefur verið sú að
sífellt fleira ungt fólk kýs að standa
utan félaga. Stéttarfélögin hafa
unnið markvisst að því að fræða
ungt fólk um starfsemi sína og hafa
kynnt réttindi og skyldur á vinnu-
markaði. Hefur VR m.a. verið með
netnámskeið fyrir 16 ára og eldri og
þá var fyrir nokkrum árum stofnuð
ungliðahreyfing innan Alþýðu-
sambands Íslands (ASÍ) sem heitir
ASÍ-Ung.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Led húsnúmer
Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum
· Sérsmíðum númer á öll hús og fjölbýli
Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar: ledhúsnúmer
Einnig hægt að hringa í sími 775 6080
· Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni
· Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli
· Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer