Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 56
Virkar húðvörur SkinCeuticals flokkar vörur sínar í þrjá flokka: fyrirbyggjandi, verndandi og uppbyggjandi. Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com „Til að ná hámarksárangri af öllum fegrunarmeðferðum þá er mikilvægt að nota réttu húðvörurnar heima fyr- ir og eftir meðferðirnar. Það eru þá húðvörur með virkum efnum, eins og til dæmis retinóíðum, og sem hafa gengið í gegnum sama gæðaferli og lyf með vönduðum klínískum rann- sóknum sem sýna fram á virkni þeirra. Svona húðvörur eru það sem er kallað „Cosmoceuticals“ eða MD-húðvörur, þar sem MD stendur fyrir Medical Doctor, og eru í raun á milli þess að vera lyf og snyrtivörur. Þar sem MD-línur innihalda virk efni eru þær yfirleitt einungis seldar á viðurkenndum húðlæknastofum,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir á Húðlæknastöðinni, en nýverið hófu húðlæknar þar sölu á hinu eftirsótta húðumhirðumerki SkinCeuticals. Með þessu segir Jenna Huld Húðlæknastöðina vera að svara eftirspurn sjúklinga sinna og auka þjónustuna í fegrunarmeð- ferðunum hjá þeim. „Á Húðlæknastöðinni starfa 10 húðlæknar og það þekkja margir húðlækningahlutann af starfseminni hjá okkur en margir vita ekki af því að við erum með stóra lýtahúðlækn- ingadeild þar sem við bjóðum upp á medical peel, dermapen, laser- meðferðir, fylliefni, botox og fleira.“ Vildu rannsóknir sem sanna virknina SkinCeuticals-húðvörurnar þróast út frá brautryðjandi rannsóknum bandaríska húðlæknisins Sheldon Pinnell á verndandi þætti andoxunar- efnisins C-vítamíns á húðkrabbamein og eru andoxunarefni aðalsmerki húðvaranna. „Þar sem við erum húðlæknar vild- um við MD-línu sem legði áherslu á fagleg vinnubrögð og væru með klín- ískar rannsóknir á bak við sig til að sanna virkni varanna. And- oxunar-húðvörur þeirra eru mjög vel rannsakaðar og háþróaðar og það eru í raun þær sem gera þetta merki frábrugðið öðrum MD-húðvörul- ínum. Einnig heilluðumst við af ein- faldri, heildrænni og einstaklings- miðaðri nálgun SkinCeuticals á húðumhirðu,“ segir Jenna Huld en SkinCeuticals flokkar vörur sínar í þrennt, þ.e.a.s. fyrirbyggjandi (e. Prevent), verndandi (e. Protect) og svo uppbyggjandi (e. Correct). Jenna Huld segir þessa nálgun henta húðlæknum mjög vel þar sem þeir vinni mikið með öldrun húð- arinnar dagsdaglega og leiðbeina sjúklingum sínum hvernig eigi að fyrirbyggja ýmsa húðkvilla og vernda húðina. „Svo eru alltaf ein- hverjir sem hafa áhuga á að byggja húðina upp og draga úr fínum línum og auka þéttleikann og þá leiðbeinum við þeim hvernig það er hægt, bæði með virkum húðvörum og svo meira sérhæfðum meðferðum eins og t.d. laser,“ bætir hún við. Tók mörg ár að þróa dropana Eins og komið hefur eru andox- unarefni einkennandi fyrir húðvörur SkinCeuticals en af hverju ætli það sé? „Sólarvörnin ver okkur gegn út- fjólubláum geislum sólarinnar, að- allega B-geislum (UVB) en einnig A- geislum (UVA) að einhverju leyti. Þær verja okkur aftur á móti ekkert gegn innrauðum geislum sólarinnar né gegn sindurefnum sem losna frá umhverfismengun o.fl. Það gera aft- ur á móti andoxunarefni og þau verja okkur líka að hluta gegn út- fjólubláum geislum sólarinnar og bæta þannig áhrif sólarvarna,“ segir Jenna Huld en fyrsta húðvara Skin- Ceuticals og jafnframt sú þekktasta er C E Ferulic-droparnir sem sam- settir eru af þremur kröftugum and- oxunarefnum; C-vítamíni, E-vítamíni og Ferulic-sýru sem unnin er úr hveiti. „C E Ferulic-droparnir hafa sýnt fram á það í klínískum rannsóknum að þeir veita ekki einungis vörn gegn útfjólubláum og innrauðum geislum sólarinnar og sindurefnum umhverf- isins, heldur örva þeir einnig ný- myndun kollagens og minnka þannig fínar línur á húðinni og auka þétt- leika hennar og gljáa. Það tók mörg ár að þróa þessa dropa þar sem erfitt getur reynst að koma virku efnunum í gegnum húðina án þess að þau tapi virkni sinni. En það tókst og er þessi húðvara sú allra vinsælasta hjá þeim frá upphafi og hentar öllum húðgerð- um,“ segir Jenna Huld. Fjögur andoxunarefni hafa sannað gildi sitt C-vítamín er eitt öflugasta inni- haldsefnið í húðvörum og var fyrsta andoxunarefnið til að sýna fram á virkni sína en það var einmitt dr. Sheldon Pinnell, faðir SkinCeuticals, sem uppgötvaði virkni þess á húðina. „Það eru í raun fjögur and- oxunarefni sem hafa sannað gildi sitt í klínískum rannsóknum og það eru einmitt C-vítamín, E-vítamín, Feru- lic-sýra og Phloretin sem er unnið úr eplum. Allt C-vítamín er svo ekki C- vítamín því það getur verið verulegur gæðamunur á því í vörum eins og með öll önnur efni. Einnig þarf að vera visst sýrugildi til staðar og hjálparefni í húðvörunum til að C- vítamínið komist raunverulega gegn- um húðina þar sem við viljum að það virki. Það er ekkert gæðaeftirlit á snyrtivörum sem er auðvitað baga- legt fyrir okkur kúnnana því í raun- inni vitum við ekki hvort þessi efni, sem eru skrifuð utan á túpuna, séu raunverulega til staðar í vörunum eða ekki,“ bendir Jenna Huld á en aldrei hafa húðvörur verið jafn- vinsælar en tæknilegri og virkari formúlur eru nú að- gengilegri almenn- ingi en oft áður. Hafa farið illa vegna þekk- ingarleysis á virkum efn- um Á markaðinn streyma virkar húðvörur og ýmsar staðhæfingar framleiðenda hafðar í frammi og halda margir að því meira sem form- úlan inniheldur af virkum efnum því betri verði árangurinn. Jenna Huld segist hafa fengið til sín sjúklinga sem hafa farið ansi illa út úr slíku. „Ég myndi ráðleggja þeim sem hafa áhuga á að nota svona virkar húðvörur að fá álit húðlæknis fyrst; hvaða húðgerð er ég og þoli ég þessi efni? Það eru ekki allir sem þola ret- inóíðana eða ávaxtasýrurnar, t.d. þeir sem eru með viðkvæma húð og rós- roða. Einnig er mjög mikilvægt að trappa notkun þessara efna hægt upp svo húðin fái tíma til að venjast efnunum,“ segir hún. En hvað er það besta sem við getum gert til að halda unglegri ásýnd sem lengst? „Sól- arvörn, sólarvörn, sólarvörn! Við húðlæknar ætlumst ekki til þess að fólk haldi sig inni en verum skynsöm. Rannsóknir hafa sýnt að við fáum nægjanlegt D-vítamín eftir 15-20 mínútur í sólinni án sólarvarnar. Njótum þess að vera úti en klæðumst léttum fötum, verum í skugga þegar það er hægt og berum á okkur sól- arvörn með minnst 30 í SPF-faktor á þau húðsvæði sem við getum ekki skýlt svo auðveldlega eins og andlit og handarbök. Þegar við erum komin á fertugsaldur getum við svo byrjað að hugsa um að nota fyrirbyggjandi virkar húðvörur með and- oxunarefnum, ávaxtasýru eða ret- inóíðum. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á að lífsstíll skiptir máli varð- andi öldrun húðarinnar, eins og streita, svefnleysi, reykingar og óhollur matur.“ Sérsniðnar leiðbeiningar SkinCeuticals-vörurnar eru ein- ungis seldar á húðlæknastofum eða stofum sem hafa starfandi húðlækna eða lýtalækna svo neytendur fái fag- legt álit á því hvaða vörur henti þeim. „SkinCeuticals eru með sérsniðnar leiðbeiningar fyrir einstaklinga sem hafa rósroða eða viðkvæma húð; eru með unglingabólur; eru með feita húð; eru með fín- ar línur eða dýpri hrukk- ur og vilja koma í veg fyr- ir frekari öldrun húðarinnar o.s.frv.,“ og segir Jenna Huld að allir séu velkomnir á Húðlæknastöðina á Smáratorgi 1 í ókeypis ráð- gjöf um húð- vörurnar. Vilja sannanir fyrir virkni húðvörunnar Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir á Húðlækna- stöðinni, segist vera að svara eftirspurn sjúklinga sinna og auka þjónustu í fegrunaraðgerðum með þessum nýju snyrtivörum. Jenna Huld Eysteinsdóttir C-vítamín C E Ferulic- droparnir frá Skin- Ceuticals eru marg- verðlaunaðir og tók mörg ár að þróa þá. Sólarvörn SkinCeuticals framleiðir mjög góðar sólar- varnir og ber þar helst að nefna Physical Fusion UV De- fense SPF 50. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.