Morgunblaðið - 28.02.2019, Side 56
Virkar húðvörur SkinCeuticals flokkar vörur sínar í þrjá flokka: fyrirbyggjandi, verndandi og uppbyggjandi.
Lilja Ósk Sigurðardóttir
snyrtipenninn@gmail.com
„Til að ná hámarksárangri af öllum
fegrunarmeðferðum þá er mikilvægt
að nota réttu húðvörurnar heima fyr-
ir og eftir meðferðirnar. Það eru þá
húðvörur með
virkum efnum,
eins og til dæmis
retinóíðum, og
sem hafa gengið í
gegnum sama
gæðaferli og lyf
með vönduðum
klínískum rann-
sóknum sem sýna
fram á virkni
þeirra. Svona
húðvörur eru það
sem er kallað „Cosmoceuticals“ eða
MD-húðvörur, þar sem MD stendur
fyrir Medical Doctor, og eru í raun á
milli þess að vera lyf og snyrtivörur.
Þar sem MD-línur innihalda virk efni
eru þær yfirleitt einungis seldar á
viðurkenndum húðlæknastofum,“
segir Jenna Huld Eysteinsdóttir,
húðlæknir á Húðlæknastöðinni, en
nýverið hófu húðlæknar þar sölu á
hinu eftirsótta húðumhirðumerki
SkinCeuticals. Með þessu segir
Jenna Huld Húðlæknastöðina vera
að svara eftirspurn sjúklinga sinna
og auka þjónustuna í fegrunarmeð-
ferðunum hjá þeim.
„Á Húðlæknastöðinni starfa 10
húðlæknar og það þekkja margir
húðlækningahlutann af starfseminni
hjá okkur en margir vita ekki af því
að við erum með stóra lýtahúðlækn-
ingadeild þar sem við bjóðum upp á
medical peel, dermapen, laser-
meðferðir, fylliefni, botox og fleira.“
Vildu rannsóknir
sem sanna virknina
SkinCeuticals-húðvörurnar þróast
út frá brautryðjandi rannsóknum
bandaríska húðlæknisins Sheldon
Pinnell á verndandi þætti andoxunar-
efnisins C-vítamíns á húðkrabbamein
og eru andoxunarefni aðalsmerki
húðvaranna.
„Þar sem við erum húðlæknar vild-
um við MD-línu sem legði áherslu á
fagleg vinnubrögð og væru með klín-
ískar rannsóknir á bak við sig til að
sanna virkni varanna. And-
oxunar-húðvörur þeirra eru mjög vel
rannsakaðar og háþróaðar og það
eru í raun þær sem gera þetta merki
frábrugðið öðrum MD-húðvörul-
ínum. Einnig heilluðumst við af ein-
faldri, heildrænni og einstaklings-
miðaðri nálgun SkinCeuticals á
húðumhirðu,“ segir Jenna Huld en
SkinCeuticals flokkar vörur sínar í
þrennt, þ.e.a.s. fyrirbyggjandi (e.
Prevent), verndandi (e. Protect) og
svo uppbyggjandi (e. Correct).
Jenna Huld segir þessa nálgun
henta húðlæknum mjög vel þar sem
þeir vinni mikið með öldrun húð-
arinnar dagsdaglega og leiðbeina
sjúklingum sínum hvernig eigi að
fyrirbyggja ýmsa húðkvilla og
vernda húðina. „Svo eru alltaf ein-
hverjir sem hafa áhuga á að byggja
húðina upp og draga úr fínum línum
og auka þéttleikann og þá leiðbeinum
við þeim hvernig það er hægt, bæði
með virkum húðvörum og svo meira
sérhæfðum meðferðum eins og t.d.
laser,“ bætir hún við.
Tók mörg ár að þróa dropana
Eins og komið hefur eru andox-
unarefni einkennandi fyrir húðvörur
SkinCeuticals en af hverju ætli það
sé?
„Sólarvörnin ver okkur gegn út-
fjólubláum geislum sólarinnar, að-
allega B-geislum (UVB) en einnig A-
geislum (UVA) að einhverju leyti.
Þær verja okkur aftur á móti ekkert
gegn innrauðum geislum sólarinnar
né gegn sindurefnum sem losna frá
umhverfismengun o.fl. Það gera aft-
ur á móti andoxunarefni og þau verja
okkur líka að hluta gegn út-
fjólubláum geislum sólarinnar og
bæta þannig áhrif sólarvarna,“ segir
Jenna Huld en fyrsta húðvara Skin-
Ceuticals og jafnframt sú þekktasta
er C E Ferulic-droparnir sem sam-
settir eru af þremur kröftugum and-
oxunarefnum; C-vítamíni, E-vítamíni
og Ferulic-sýru sem unnin er úr
hveiti.
„C E Ferulic-droparnir hafa sýnt
fram á það í klínískum rannsóknum
að þeir veita ekki einungis vörn gegn
útfjólubláum og innrauðum geislum
sólarinnar og sindurefnum umhverf-
isins, heldur örva þeir einnig ný-
myndun kollagens og minnka þannig
fínar línur á húðinni og auka þétt-
leika hennar og gljáa. Það tók mörg
ár að þróa þessa dropa þar sem erfitt
getur reynst að koma virku efnunum
í gegnum húðina án þess að þau tapi
virkni sinni. En það tókst og er þessi
húðvara sú allra vinsælasta hjá þeim
frá upphafi og hentar öllum húðgerð-
um,“ segir Jenna Huld.
Fjögur andoxunarefni hafa
sannað gildi sitt
C-vítamín er eitt öflugasta inni-
haldsefnið í húðvörum og var fyrsta
andoxunarefnið til að sýna fram á
virkni sína en það var einmitt dr.
Sheldon Pinnell, faðir SkinCeuticals,
sem uppgötvaði virkni þess á húðina.
„Það eru í raun fjögur and-
oxunarefni sem hafa sannað gildi sitt
í klínískum rannsóknum og það eru
einmitt C-vítamín, E-vítamín, Feru-
lic-sýra og Phloretin sem er unnið úr
eplum. Allt C-vítamín er svo ekki C-
vítamín því það getur verið verulegur
gæðamunur á því í vörum eins og
með öll önnur efni. Einnig þarf að
vera visst sýrugildi til staðar og
hjálparefni í húðvörunum til að C-
vítamínið komist raunverulega gegn-
um húðina þar sem við viljum að það
virki. Það er ekkert gæðaeftirlit á
snyrtivörum sem er auðvitað baga-
legt fyrir okkur kúnnana því í raun-
inni vitum við ekki hvort þessi efni,
sem eru skrifuð utan á túpuna, séu
raunverulega til staðar í vörunum
eða ekki,“ bendir Jenna Huld á en
aldrei hafa húðvörur verið jafn-
vinsælar en tæknilegri og virkari
formúlur eru nú að-
gengilegri almenn-
ingi en oft áður.
Hafa farið illa
vegna þekk-
ingarleysis á
virkum efn-
um
Á markaðinn
streyma virkar
húðvörur og ýmsar staðhæfingar
framleiðenda hafðar í frammi og
halda margir að því meira sem form-
úlan inniheldur af virkum efnum því
betri verði árangurinn. Jenna Huld
segist hafa fengið til sín sjúklinga
sem hafa farið ansi illa út úr slíku.
„Ég myndi ráðleggja þeim sem
hafa áhuga á að nota svona virkar
húðvörur að fá álit húðlæknis fyrst;
hvaða húðgerð er ég og þoli ég þessi
efni? Það eru ekki allir sem þola ret-
inóíðana eða ávaxtasýrurnar, t.d. þeir
sem eru með viðkvæma húð og rós-
roða. Einnig er mjög mikilvægt að
trappa notkun þessara efna hægt
upp svo húðin fái tíma til að venjast
efnunum,“ segir hún. En hvað er það
besta sem við getum gert til að halda
unglegri ásýnd sem lengst? „Sól-
arvörn, sólarvörn, sólarvörn! Við
húðlæknar ætlumst ekki til þess að
fólk haldi sig inni en verum skynsöm.
Rannsóknir hafa sýnt að við fáum
nægjanlegt D-vítamín eftir 15-20
mínútur í sólinni án sólarvarnar.
Njótum þess að vera úti en klæðumst
léttum fötum, verum í skugga þegar
það er hægt og berum á okkur sól-
arvörn með minnst 30 í SPF-faktor á
þau húðsvæði sem við getum ekki
skýlt svo auðveldlega eins og andlit
og handarbök. Þegar við erum komin
á fertugsaldur getum við svo byrjað
að hugsa um að nota fyrirbyggjandi
virkar húðvörur með and-
oxunarefnum, ávaxtasýru eða ret-
inóíðum. Einnig hafa rannsóknir sýnt
fram á að lífsstíll skiptir máli varð-
andi öldrun húðarinnar, eins og
streita, svefnleysi, reykingar og
óhollur matur.“
Sérsniðnar leiðbeiningar
SkinCeuticals-vörurnar eru ein-
ungis seldar á húðlæknastofum eða
stofum sem hafa starfandi húðlækna
eða lýtalækna svo neytendur fái fag-
legt álit á því hvaða vörur henti þeim.
„SkinCeuticals eru með sérsniðnar
leiðbeiningar fyrir einstaklinga sem
hafa rósroða eða viðkvæma húð;
eru með unglingabólur; eru
með feita húð; eru með fín-
ar línur eða dýpri hrukk-
ur og vilja koma í veg fyr-
ir frekari öldrun
húðarinnar o.s.frv.,“ og
segir Jenna Huld að
allir séu velkomnir á
Húðlæknastöðina
á Smáratorgi 1 í
ókeypis ráð-
gjöf um húð-
vörurnar.
Vilja sannanir
fyrir virkni
húðvörunnar
Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir á Húðlækna-
stöðinni, segist vera að svara eftirspurn sjúklinga
sinna og auka þjónustu í fegrunaraðgerðum með
þessum nýju snyrtivörum.
Jenna Huld
Eysteinsdóttir
C-vítamín C E Ferulic-
droparnir frá Skin-
Ceuticals eru marg-
verðlaunaðir og tók
mörg ár að þróa þá.
Sólarvörn
SkinCeuticals
framleiðir mjög
góðar sólar-
varnir og ber
þar helst að
nefna Physical
Fusion UV De-
fense SPF 50.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019