Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 71
MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019 „Ég hef verið að safna visnuðum plöntum í nærumhverfinu og nota til dæmis í verkin strá, njóla og kerfil, ýmsar plöntur sem margir vilja ekki hafa of mikið af í kringum sig. Og ég dreg athyglina að hinu smáa, að feg- urðinni í þessu, en er líka að stíga inn í hringrás náttúrunnar því þetta eru allt sölnaðar plöntur. Ég tek þær út úr hringrásarferlinu, þær fá ekki að verða að mold,“ segir Rósa Sigrún Jónsdóttir myndlistarkona. Hún er að lýsa efniviðnum í skúlp- túrunum og lágmyndunum á sýning- unni Kerfi sem hún opnar í Gallerí Gróttu - Sýningarsal Seltjarnarness við Eiðistorg í dag, fimmtudag, klukkan 18. Sýning Rósu Sigrúnar byggist því á tilraunum hennar með fundin nátt- úrleg efni. „Ég er að stíga inn í hið náttúrlega kerfi og kalla sýninguna því Kerfi,“ segir hún. Hún segist líka hafa viljað draga fram hið viðkvæma og smáa í þess- um sölnuðu jurtum en jafnframt styrkinn sem er í þeim. Heimur plöntunnar hefur lengi verið Rósu Sigrúnu hugleikinn og hefur hún nálgast hann á mismun- andi hátt. Á síðustu sýningum henn- ar hefur til að mynda mátt sjá plöntur sem hún hefur heklað. „Mér fannst það eðlilegt næsta skref að prófa núna að vinna með plönturnar sjálfar,“ segir hún um þessa sýn- ingu. „Verkin eru nær öll alveg ný og hér má sjá ákveðna tilraunastarf- semi. Það verður að koma í ljós hvernig þetta gengur upp … maður verður alltaf að taka áhættu.“ En hvað er það við lággróðurinn og foldarskartið sem kallar svo sterkt á listakonuna? „Ætli ég hefði ekki farið í líffræði ef ég hefði verið betri í stærðfræði!“ segir hún og hlær. „En ég hef alltaf dregist að plöntunum, alveg síðan ég var krakki í sveitinni.“ Rósa Sigrún hefur mikið fengist við leiðsögn ferðamanna og segir það iðulega hafa komið í sinn hlut að fræða ferðamenn um plönturnar og jarðfræðina. Hefur hún þá notað tækifærið og safnað plöntum þegar hún ferðast um sem fararstjóri? „Ekki mikið. Þegar ég hef verið að hekla plöntur hef ég samt farið út og safnað litaprufum; hef gert vatns- litaprufur á sumrin eftir lit plantn- anna að eiga á veturna þegar ég er komin á vinustofuna að hekla hin ýmsu blóm.“ Eru blómin og jarðargróðurinn ekki óþrjótandi efniviður fyrir hug- myndaríkan listamann? „Það er spurning. Að minnsta kosti er mikilvægt að finna hvenær maður er kominn á endapunkt – en leitin heldur áfram og það sem sést á þessari sýningu er nýtt hjá mér. Það verður að koma í ljós hvert það leiðir mig héðan, hvort ég þurfi að leita nýrra leiða. En ég held að þetta sé nánast óþrjótandi efniviður …“ Þess má geta að sýning á hekluð- um plöntum Rósu Sigrúnar verður opnuð í galleríi í Flórens á Ítalíu í apríl. Hún útskrifaðist frá LHÍ árið 2001 og hefur síðan sett upp margar sýningar, hér og erlendis. efi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Myndlistarkonan „Ég dreg athyglina að hinu smáa, að fegurðinni í þessu,“ segir Rósa Sigrún um plönturnar sem hún safnar og notar í verkin á sýningunni í Gallerí Gróttu og stöðvar þar með hina náttúrlegu hringrás. Visnaðar plönturnar eru efniviður verkanna  Rósa Sigrún Jónsdóttir opnar sýningu í Gallerí Gróttu Sara Danius hefur ákveðið að segja alfarið skilið við Sænsku akadem- íuna (SA). Þetta kemur fram í til- kynningu sem birt var á vef SA fyrr í vikunni. Danius hefur ekki tekið þátt í störfum SA í tæpt ár eða frá því að stuðningsmenn Katarinu Frostenson innan SA settu það sem skilyrði fyrir því að Frostenson drægi sig út úr störfum SA að Dan- ius gerði slíkt hið sama. Danius var ritari SA þegar 18 konur í árslok 2017 sökuðu í Dagens Nyheter Jean-Claude Arnault, eiginmann Frostenson, um að hafa í áratugi beitt konur kynferðisofbeldi. Við þessar fréttir sleit Danius strax á öll tengsl SA við Arnault og fól lögfræðistofunni Hammarskiöld & Co að rannsaka tengsl Arnault við alla meðlimi SA, en í ljós kom að hann hafði lekið trúnaðarupplýs- ingum um störf SA og átt óeðlileg fjárhagsleg tengsl við SA gegnum eiginkonu sína og vin sinn, Horace Engdahl. Sá síðastnefndi lét í apríl í fyrra hafa eftir sér að Danius væri „versti ritari og talsmaður SA frá stofnun hennar 1786“. Arnault var seint á síðasta ári sakfelldur fyrir tvær nauðganir. Í seinasta mánuði náðist síðan samkomulag milli SA og Frostenson um að hún hætti al- farið hjá SA, en til stóð að rannsaka ofan í kjölinn ásakanir um trúnaðarbrot hennar við SA. Í fréttatilkynningu sem Danius sendi sænsku fréttaveitunni TT kemur fram að hún hafi fyrir nokkrum dögum boðist til að taka aftur við starfinu sem ritari SA þegar Anders Olsson, sem verið hefur starfandi ritari síðustu mán- uði, lætur af því starfi sökum aldurs en hann verður sjötugur í sumar. Því boði var hins vegar hafnað og í kjölfarið ákvað Danius að yfirgefa endanlega stól nr. 7 sem verið hef- ur hennar síðan 2013. „Það hefur verið mér mikill heiður að sitja í þessum stól,“ skrifar Danius í yfir- lýsingu sinni og rifjar upp að Selma Lagerlöf hafi setið í sama stól þeg- ar hún fyrst kvenna var valin inn í SA 1914. Danius er fyrsta og eina konan sem verið hefur ritari SA. Samkvæmt frétt TT kveður starfslokasamningur Danius við SA á um launagreiðslur í 21 mánuð frá og með apríl 2018, en Danius var með um 100 þúsund sænskar krón- ur í laun á mánuði. „Ég held áfram með líf mitt,“ segir Danius, sem síð- an 2013 hefur verið prófessor í bók- menntum við Háskólann í Stokk- hólmi. Segir hún tímann síðan hún neyddist til að hætta sem ritari hafa verið erfiðan, en einnig lærdóms- ríkan. „Það hefur verið lærdóms- ríkt að fylgjast með störfum SA ut- an frá þegar maður veit hvernig SA virkar. Mér finnst fjölmiðlar hafa staðið sig einstaklega vel í umfjöll- un sinni um SA. Ég vona að SA tak- ist að endurvinna traustið sem hún naut þar til fyrir stuttu. En það mun taka tíma, að minnsta kosti 10 ár,“ segir Danius í samtali við TT. Í samtali við TT segist Olsson sér meðvitaður um að túlka megi brott- hvarf Danius sem svo að „feðra- veldið hafi sigrað sterka konu“. Tekur hann fram að verið sé að reyna að fjölga konum í SA, en eins og staðan er nú sitja í SA 12 karl- menn og þrjár konur. Spurður hvort þau þrjú pláss sem enn séu laus verði skipuð konum svarar Olsson: „Ég reikna með því. Það er nauðsynlegt til að jafna hlutfall kynjanna í SA.“ silja@mbl.is Danius hætt hjá Akademíunni  Vildi taka við fyrra starfi sínu sem ritari SA AFP Baráttukona Litríkur klæðnaður Söru Danius vakti mikla athygli á konunglegri samkomu 10. desem- ber 2018. Talað var um að litirnir væru sóttir í klæðnað nautabana. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 Auka Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 Auka Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn Fim 7/3 kl. 18:00 Auka Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 28/2 kl. 19:30 Lau 2/3 kl. 22:00 Lau 9/3 kl. 19:30 Fös 1/3 kl. 19:39 Fim 7/3 kl. 19:30 Lau 9/3 kl. 22:00 Fös 1/3 kl. 22:00 Fös 8/3 kl. 19:30 Lau 2/3 kl. 19:30 Fös 8/3 kl. 22:00 Dimmalimm (Brúðuloftið) Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00 Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 3/3 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Frumsýning 15. mars. Elly (Stóra sviðið) Fös 1/3 kl. 20:00 205. s Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 2/3 kl. 20:00 206. s Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Fös 8/3 kl. 20:00 207. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Ríkharður III (Stóra sviðið) Sun 3/3 kl. 20:00 14. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas. Síðustu sýningar komnar í sölu. Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Fös 15/3 kl. 20:00 52. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Lau 9/3 kl. 20:00 48. s Lau 16/3 kl. 20:00 53. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Sun 10/3 kl. 20:00 49. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas. Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Mið 13/3 kl. 20:00 50. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Fim 14/3 kl. 20:00 51. s Síðustu sýningar komnar í sölu. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 1/3 kl. 20:00 39. s Fös 8/3 kl. 20:00 41. s Fös 15/3 kl. 20:00 43. s Lau 2/3 kl. 20:00 40. s Lau 9/3 kl. 20:00 42. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Club Romantica (Nýja sviðið) Fim 28/2 kl. 20:00 Frums. Sun 3/3 kl. 20:00 2. s Fim 7/3 kl. 20:00 3. s Hvað varð um konuna? Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.