Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 69
DÆGRADVÖL 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ekki örvænta, með tímanum munt þú fá það sem þér ber. Það er mikið um börn í kringum þig og þeim mun fjölga á árinu. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er ástæðulaust að vera stöðugt að líta um öxl. Reyndu að þreyja þorrann og ræddu málin af einlægni því þá fer allt vel að lokum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reyndu að hreyfa þig meira eða oftar. Ekki ætlast til of mikils af öðrum. Þú ættir að hafa færri járn í eldinum og klára það sem þú byrjar á. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú er komið að því að þú reynir eitthvað sem þú hefur aldrei upplifað áð- ur. Lífið er of stutt til að láta ótta við höfnun hefta sig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Kraftaverk geta vel orðið í peninga- málunum ef þú þiggur ráð frá öðrum. Ein- hver sem þú þekkir vel hefur ekki hreint mjöl í pokahorninu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Blandaðu geði við fólk í dag. Það er margt óuppgert varðandi ástamálin. Reyndu að greiða úr flækjunni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú færð einstakt tækifæri til að kynnast sjálfri/sjálfum þér ef þú ferð ein/n í reisuna sem þú hefur verið að skipuleggja undanfarið. Er ekki kominn tími til þess? 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Dagurinn hentar vel til að gera langtímaáætlanir með öðrum. Kannski er það enn vond hugmynd, en þú ert til í að gefa ástvini annað tækifæri. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ekkert er þess virði að fórna því heilsu sinni og lífi. Einhver rís upp á móti þér og þér sárnar það. Vertu bara tilbúin/n. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er upplagt að eyða smá tíma í það að sýna sig og sjá aðra. Fólk heldur áfram þó það fái mótbyr, aldrei gefast upp. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Haltu upp á velgengni þína og viðhaltu bjartsýninni, en mundu að þú getur ekki allt ein/n. Það verður brúðkaup í fjölskyldunni fljótlega. 19. feb. - 20. mars Fiskar Stuðningur annarra er þér mikils virði, því án hans stæðir þú ekki í þeim sporum sem þú ert. Aðeins með því að gera hreint í eigin ranni getur þú haldið áfram. Til hamingju! Þú hefur unnið íEuroJackpot upphæð að verð- mæti 1.000 …“ Svo hófst tölvu- póstur sem Víkverja barst á dög- unum, stuttu eftir að hann ákvað í hálfgerðu bríaríi að henda pen- ingum í samevrópskt lottóspil. Vík- verji verður að játa að hann var orð- inn virkilega spenntur þegar hann sá fyrrnefndan stiklutexta. Punkt- arnir þrír sem huldu restina af skila- boðunum sveipuðu þetta allt ákveð- inni dulúð. x x x Enda hugsaði Víkverji, til hvers aðsenda manni tölvupóst, ef ekki væri um alvöru fjárhæð að ræða? Hann lét sig dreyma. „Upphæð að verðmæti 1.000.000!“ Það var ágætis byrjun. En af hverju ekki að hugsa lengra? Hvað með 1.000.000.000? Eða 1.000.000.000.000? Hvað var potturinn annars stór? Var Víkverji kannski búinn að vinna heilt googol af auðæfum? Í öllu falli blasti glæsi- villan á Arnarnesinu við Víkverja meðan tölvupósturinn hlóð sig í þessum hægvirkasta vafra í heimi. x x x Og þegar pósturinn loksins opn-aðist stóð svart á hvítu að Vík- verji hafði unnið … [trommusláttur] … eitt þúsund krónur!!! Víkverji var orðinn að þúsundmæringi! Raunar kostaði miðinn ca. þrefalda þá upp- hæð, þannig að Víkverji var verr settur en þegar hann hóf þátttöku í „Evrópukeppninni í heppni“ eins og heyrist gjarnan í auglýsingunum. Sem segir kannski sitthvað um það hversu heppinn Víkverji er almennt í lífinu. x x x Annars fékk Víkverji ágætt ráðfrá sér eldri og mun reyndari manni í þessum efnum, nefnilega að kaupa bara einn miða í íslenska lott- óinu á laugardögum. Ástæðan er einfaldlega sú, að þó að líkurnar séu meiri á því að vinna með einum miða en engum, þá aukast þær nánast ekkert við að kaupa seinni miðann. Einn er þannig betri en núll, en tveir eru ekki betri en einn. Raunar er spurning hvort Víkverji hefði ekki bara átt að setja peninginn sem hann hefur annars sett í lottóið inn á sparireikning? vikverji@mbl.is Víkverji Vingjarnleg orð eru hunang, sæt fyrir góminn, lækning fyrir beinin. (Orðskviðirnir 16.24) Konráð Erlendsson sendi mértölvupóst þar sem hann segir að í Vísnahorni 19. febrúar sl. sé rangt farið með vísu eftir afa hans og nafna, Konráð Erlendsson fyrr- verandi kennara á Laugum, sem fæddist 1885. Ég tók vísuna ásamt svarvísu Jóns á Arnarvatni upp úr tímaritinu Iðunni, V. árgangi, nýj- um flokki. Mér er ljúft að birta leiðréttingu Konráðs en henni fylgir þessi skýr- ing: „Mýrarhý er gisið eða graslítið mýrlendi, lítt fallið til heyskapar, en bleikjuengi er starengi og vissulega mun verðmætara en mýrarhýið!“ Konráð vísar til blaðsins Austur- lands 6. sept. 1952 og segir að þar sé vísan rétt eins og afi hans orti hana og getið um tildrög: „Þegar Mývetningar höfnuðu sr. Jónmundi Halldórssyni sem presti kvað Konráð Erlendsson, kennari að Laugum: Alltaf vænkast Mammons mál má ei Drottinn neitt við því. Mývetningar sína sál seldu fyrir mýrarhý. Þarna sneiðir Konráð að því að Mývetningar hafi viljað komast í engjar prestssetursins. Jón á Arnarvatni svaraði: Sagt er að höfum selt fyrir hý sálna vorra gengi. Konnsi lýgur þessu, því það var bleikjuengi.“ Ég endurtek þakkir mínar til Konráðs fyrir þessa leiðréttingu og skýringar sem skipta vissulega máli fyrir réttan skilning á vísunni því að fæstir utan Mývatnssveitar þekkja orðið „mýrarhý“ – enda stendur í Iðunni „mýrarhey“! Smávægilegur orðalagsmunur er á vísu Jóns eins og oft vill verða þegar vísur fara á flug. Konráð sá sem póstinn sendi ger- ir þannig grein fyrir sér að hann sé fyrrverandi kennari á Laugum eins og afi hans og nú kominn á eft- irlaun. Þegar það gerðist varð til þessi vísa: Líða fer á lífs míns hlaup litlu fæ ég um það breytt. Í framtíðinni fæ ég kaup fyrir að gera ekki neitt. Veður hafa verið válynd – Jón á Arnarvatni orti í stórhríð: Hríð og bölvun úti ala illra veðra djöfla fans; það er ekki um það að tala þetta er nú gamanið hans. Og enn yrkir Jón: Ef hann fer í austanbyl yfir hús og grundir, þá er skárra að skömminni til að skíta vestanundir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Mýrarhý eða bleikjuengi „ég hélt aÐ hópmeÐferÐin yrÐi skemmtilegri.” „í uppskriftinni stendur klípa af kryddi. ég las „kíló”.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að dýfa sér á bólakaf. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VÁ !SJÁÐU ODDI! STJÖRNUHRAP! ÓSKAÐIR ÞÚ ÞÉR? GEKK STJÖRNU- SKOÐUNIN VEL? ÉG ER TILBÚINN AÐ PANTA – NÁÐU ATHYGLI ÞJÓNSINS! E INH V ER F ÉKK H L U T V ERK IÐ ! ÓKEI! Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty 12.890 kr. 7.734 kr. ANUSHKA kjóll 40% afsláttur LAGERHREINSUN Í FULLUM GANGI ÚRVAL AF BRJÓSTAHÖLDUM OG BUXUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.