Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 62
62 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019 ✝ Kristrún BjörtHelgadóttir (Kiddý) fæddist á Patreksfirði 14. október 1939. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. febr- úar 2019. Foreldrar Krist- rúnar voru Sigrún Össurardóttir, f. 6. maí 1898, d. 30. apr- íl 1977, og Ásbjörn Helgi Árna- son, f. 13. apríl 1889, d. 25. ágúst 1965. Systkini hennar: Guðrún, f. 10. okt. 1919, Árni, f. 15. feb. 1922, d. 23. jan. 2011, Anna Marta, f. 13. nóv. 1924, d. 10. apríl 2012, Ólafur Helgi, f. 7. okt. 3) Hrund, f. 25. mars 1969, maki: Kristján Óskarsson, dætur: Hanna Björt, Ásrún Sara og Emelía Lára. Kiddý ólst upp í Tröð í Kolls- vík með foreldrum, systkinum og uppeldissystur, Ellý, þar sem hvít fjaran, tún, berjamóar og klettabelti víkurinnar voru leik- sviðið. Fjölskyldan fluttist síðar að Gjögrum, en úr foreldra- húsum fór Kiddý sextán ára gömul til Reykjavíkur þar sem hún vann við framleiðslu- og verslunarstörf og eitt sumar sem kaupakona í Biskupstungum. Nítján ára kynntist hún Rudolfi sem varð hennar eiginmaður, hófu þau sambúð og bjuggu m.a. í Stóragerði 6, en frá 1971 í Hellulandi 11, Fossvogi. Með- fram húsmóðurstörfum vann hún lengst af í hlutastörfum m.a. við gerð minjagripa og matseld. Útför Kristrúnar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 28. febrúar 2019, klukkan 13. 1925, d. 21. maí 1986, Halldóra Mikkalína, f. 25. maí 1930, og upp- eldissystir Elín Guðmunda Guð- mundsdóttir, f. 19. mars 1939. Kristrún giftist 29. des. 1963 Rud- olfi Þór Axelssyni, f. 18. jan. 1936. Börn þeirra eru: 1) Ásrún, f. 5. sept. 1960, maki: Kristþór Gunnarsson, börn: Kristrún Helga og Jóhann Þór, barnabarn: Óskar Hrafn Jó- hannsson. 2) Axel Þór, f. 22. júní 1963, fyrrv. maki: Ingibjörg Eggertsdóttir, dóttir: Aníta Rut. Elsku besta mamma mín. Ástarþakkir fyrir að vaka yfir mér og mínum alla tíð. Ég hélt í vonina um að við ætt- um ótaldar samverustundir eftir, en svo reyndist ekki vera. Nú getur þú ferðast óheft um Sum- arlandið, þar sem eilíft sumar ríkir með allri sinni fegurð og blómskrúði sem fáir kunna að sinna eins og þú. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín dóttir, Ásrún (Ásý). Efst er í huga hvað mamma hugsaði vel um börnin sín, eldaði fyrir okkur góðan og hollan mat, saumaði á okkur föt og sinnti okkar þörfum eins vel og henni var unnt. Ég held að hún hafi látið þarfir okkar barnanna ganga langt framar sínum eigin, og að þegar fjárráð til heimilishaldsins voru takmörkuð hafi hún neitað sér um ýmislegt til þess börnin henn- ar fengju sitt. Mér fannst ég alltaf vera undir hennar verndarvæng, þegar eitt- hvað bjátaði á var hægt að leita til mömmu og hún gerði allt betra. Hún sýndi ekki beina vorkunn- semi, heldur studdi með hlýju og góðum ráðum, sem hún af sinni skynsemi taldi styrkja okkur og vera betra veganesti fyrir lífið. Hún var alin upp í Kollsvík, í bænda- og útgerðarsamfélagi þar sem fólk þurfti að komast af, oft við erfiðar aðstæður. Það hefur mótað hana og gert hana að þeirri sterku en þó hlýju konu sem hún var. Hún var ekta elsku mamma, hennar er sárt saknað. Axel Þór Rudolfsson. Elskuleg fyrrverandi grann- kona mín, Kristrún Björt Helga- dóttir, er látin. Minningarnar hrannast upp frá því að við þrjár fjölskyldur fluttum inn í þrjú samliggjandi raðhús í Fossvogi haustið 1970. Heimamömmur á svipuðum aldri með þrjú börn hver. Pabbarnir útivinnandi. Mömmurnar voru þá heima, enda ekki leikskólar í boði fyrir giftar konur. Við Kiddý bjuggum hvor í sínuendahúsinu en Ingi- björg, Bagga, í miðhúsinu. Með okkur þremur tókst ævilöng vin- átta, Bagga lést því miður langt um aldur fram en við Kiddý vor- um nágrannar í rúm 30 ár. Yngstu börnin í lengjunni voru þau Hrund og Þorkell Máni sem urðu strax góðir vinir, voru sam- ferða í skólann fyrsta skóladag- inn. Hún traust og fullorðinsleg, hann lítill og barnalegur eftir langvarandi veikindi fyrstu árin. Vinátta þeirra sem og allra barnanna þarna er enn til staðar. Kiddý var framúrskarandi mamma, húsmóðir og vinur, greind og skemmtileg. Garðurinn hennar var fullur af fallegum gróðri, rósirnar ilmandi og vínberjaklasarnir í gróðurhús- inu voru bústnir og gómsætir. Ekki brugðust heldur veitingarn- ar hennar Kiddýjar er haldið var upp á afmæli og skólaútskriftir. Allt lék í höndum þessarar mikil- hæfu konu og aldrei brást hjálp- semi hennar er mikið stóð til og aldrei dýrmæt vinátta hennar. Síðustu árin voru þau Rudolf flutt í fallega íbúð við Hæðar- garð, veikindi höfðu gert vart við sig en vonir stóðu til að bati fengist. Því miður tóku þau sig upp og hún lést 22. febrúar síðastliðinn. Með sorg í hjarta en miklu þakklæti kveð ég mæta konu og bið henni allrar blessunar. Sendi Rudolfi, Ásrúnu, Axel, Hrund og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Anna Þrúður Þorkelsdóttir. Amma Kiddý var einstök kona. Hún var umhyggjusöm, þrautseig, dugleg og óeigingjörn. Hún hafði ótrúlega gott lag á öllu sem viðkemur bakstri, elda- mennsku og garðyrkju og var alltaf tilbúin að miðla af reynslu sinni. Ísskápurinn hjá ömmu var alltaf stútfullur og hún lumaði alltaf á einhverju góðgæti þegar gesti bar að garði. Amma var einstaklega lagin í eldhúsinu og voru pönnsurnar hennar einkennisréttur. Það voru ófá skiptin sem fjölskyldan safn- aðist saman og át á sig gat af dásamlegum pönnukökum. Standandi met eru 16 pönnukök- ur með sykri, sem Kristjáni tókst að torga í einni setu, en það met verður líklega aldrei slegið því það nær enginn að gera pönnu- kökurnar eins þunnar og góðar og hún amma. Við munum að ein jólin fengu Ásý og Hrund að sjá um hangi- kjötið það árið, nokkuð sem amma hafði alltaf séð um ár eftir ár. Þrátt fyrir það var amma við öllu búin og kom með aukalæri, svona til öryggis. Við enduðum að sjálfsögðu með allt of mikinn mat, en það var kannski þannig sem amma vildi hafa það. Það mátti enginn fara svangur heim. Það var alltaf gott að koma til ömmu og afa í Hellulandið, og síðar í Hæðagarðinn. Aðra eins friðsæld var erfitt að finna ann- ars staðar og það var ekkert sem ömmuknús gat ekki lagað. Amma var afskaplega stolt af garðinum sínum og það var svo sannarlega ástæða til. Bóndarósirnar hennar voru þær stærstu sem sést hafa og fylltu þær garðinn af dásam- legum ilmi og fallegum litum. Amma var forvitin og klár, eitthvað sem við barnabörnin komumst betur og betur að þegar við urðum eldri. Við höfum öll valið okkur mismunandi leiðir hvað varðar nám og störf en það var sama hvað við tókum okkur fyrir hendur, amma var alltaf jafn áhugasöm að heyra hvað á okkar daga hafði drifið. Amma nennti að ræða um dýralækning- ar, lögfræði, tannlækningar og svo ótalmargt annað og oft kom á daginn að hún var fróð um ótrú- legustu hluti. Elsku amma okkar, takk fyrir alla umhyggjuna, öll faðmlögin og alla hlýjuna, allt sem þú hefur kennt okkur og gert fyrir okkur. Við erum svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem fyrirmynd, vin- konu og ömmu og minning þín mun lifa áfram í hjörtum okkar allra um ókomna tíð. Þín ömmubörn, Kristrún, Jóhann, Aníta, Hanna, Ásrún og Emelía. Kristrún Björt Helgadóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Þorbergur Þórðarsson Elís Rúnarsson Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR JÓNA AUÐUNSDÓTTIR frá Ysta-Skála, V-Eyjafjöllum, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 20. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 1. mars klukkan 13. Sigurjón Einarsson Helga Sigrún Sigurjónsdóttir Ágúst Sigurðsson Eyja Guðrún Sigurjónsdóttir Pétur Halldórsson Jón Auðun Sigurjónsson Guðbjörg Svansdóttir Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir Jón Þór Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, KRISTJANA RÍKEY MAGNÚSDÓTTIR, Heiðargerði 9, Húsavík, lést á HSN á Húsavík fimmtudaginn 21. febrúar. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 2. mars klukkan 14. Sigurgeir Höskuldsson Hildur, Ríkey og Magnús Máni Ríkey Einarsdóttir Guðbjörg Magnúsdóttir Halla Magnúsdóttir Hlífar S. Rúnarsson tengdafjölskylda og systrabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, FINNBOGI HÖSKULDSSON, véltæknifræðingur, sem lést föstudaginn 22. febrúar, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 4. mars klukkan 13. Hildigunnur Þórðardóttir Rakel Þóra F. Larsen Keld Larsen Ásdís M. Finnbogadóttir Magnús Magnússon og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SÉRA SIGURÐUR HELGI GUÐMUNDSSON, Norðurbakka 3a, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 20. febrúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 4. mars klukkan 13. Brynhildur Ósk Sigurðardóttir Sigurður Þór Sigurðarson Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir Margrét Sigurðardóttir Örn Hauksson Vilborg Ólöf Sigurðardóttir Jóhannes Rúnar Jóhannsson og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.