Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Ítalskt nautsleður
Stærð: 214 cm Verð frá 270.000 kr
Stærð: 194 cm Verð frá 258.000 kr.
Stærð: 172 cm Verð frá 235.000 kr.
Roby sófar fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Mikil eftirvænting ríkti fyrir lista-
verkauppboð hjá uppboðsfyrirtæk-
inu Christie’s í Lundúnum í gær-
kvöldi. Þar voru meðal annars boðin
upp málverk eftir Frakkana Claude
Monet, Henri Matisse, Pierre-
Auguste Renior og Paul Cézanne og
Hollendinginn Vincent Van Gogh,
Mörg af þessum málverkum höfðu
þar til nýlega ekki verið sýnd op-
inberlega áratugum saman en þau
voru í einkasafni ónefnds mál-
verkasafnara og verða boðin upp
undir yfirskriftinni Faldir fjársjóðir.
Sérfræðingar uppboðsfyrirtækisins
létu hafa eftir sér í fjölmiðlum, að
þetta væri eitt mikilvægasta mál-
verkasafnið, sem sett hefði verið á
markað í Lundúnum í rúman áratug.
Meðal verkanna er mynd af vatna-
liljum eftir Monet, sem var metið á
40 milljónir punda, jafnvirði nærri
6,3 milljarða króna. Málverkið mál-
aði Monet á árunum 1913-16 og það
var upphaflega í eigu Michels, sonar
listamannsins.
Mynd eftir Cézanne af perum og
ferskjum á diski á tréborði var metin
á rúmlega 20 milljónir punda, jafn-
virði nærri 3,2 milljarða króna.
Verkið var málað á árunum 1885-87
og þykir marka þáttaskil á ferli Céz-
annes því þá sagði hann skilið við im-
pressionismann.
Þá var boðin upp andlitsmynd eft-
ir hollenska málarann Vincent Van
Gogh af konu, sennilega þjón-
ustustúlku á bar. Myndina málaði
Van Gogh í Antverpen veturinn 1885
og er hún ein af sjö olíumálverkum
sem vitað er að hann málaði þar á
þriggja mánaða tímabili. Málverkið
var metið á 12 milljónir punda, jafn-
virði nærri 1,9 milljarða króna.
Af öðrum málverkum má nefna
landslagsmynd eftir Renoir, sem var
metin á 10,5 milljónir punda og hef-
ur ekki sést opinberlega síðan hún
var seld á uppboði 1986. Þarna var
einnig seld mynd eftir Matisse af
dansmær, sem var metin á 4,5-7
milljónir.
Í gærkvöldi voru einnig boðnar
upp myndir eftir 20. aldar súrreal-
ista, þar á meðal Spánverjana Salva-
dor Dali og Joan Miró, Þjóðverjann
Max Ernst og Belgann René Mag-
ritte. Tvær myndir þess síðast-
nefnda voru metnar á um 3 milljónir
punda, jafnvirði nærri hálfs millj-
arðs króna. gummi@mbl.is
Dansmær Sýningargestur tekur mynd á símann af myndinni
Danseuse assise sur une table, fond rouge, eftir Henri Matisse.
Ferskjur og perur Starfsmenn Christie’s við uppstillinguna
Nature morte de peches et poires eftir Paul Cézanne.
Andlitsmynd Starfsmaður Christie’s við myndina Portrait de
femme: buste, profil gauche eftir Vincent Van Gogh.
Sjaldséð
meistaraverk
Málverk sem metin eru á milljarða
króna boðin upp hjá Christie’s
AFP
Ljóðrænn heimur Starfsmenn Christie’s með myndirnar Le monde poetique II og La belle captive eftir René Mag-
rittee. Myndirnar hafa verið til sýnis í húsnæði uppboðsfyrirtækisins í Lundúnum frá því í síðustu viku.
Vatnalijur Búist var við þetta málverk, Saule pleureur et bassin aux nymp-
héas, eftir Claude Monet, seldist fyrir a.m.k. jafnvirði 6,3 milljarða króna.
Súrrealískt Starfsmenn Christie’s við Le lieu commun, eftir René Magritte.