Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019 Það er langt síðan ég hefheyrt í jafn frumlegrihljómsveit og StormyDaniels. Tónlist þeirra er kannski ekkert sem ekki hefur ver- ið gert einhvers staðar áður. Það er sem sé ekki verið að finna upp hjól- ið, en vá, hvað þetta hjól er listilega vel smíðað og rúllar örugglega áfram. Það fyrsta sem ég hugsa um er íslenska hljómsveitin PPPönk, og svo hljómsveitir á borð við Ælu og jafnvel Dauðyflin, en síðan er tónlistin einhvern veginn líka enn pönkaðri og meira í anda Dead Kennedies og harðari og jafnframt klassískari pönkbanda. Allir flytj- endur eru með einbeitinguna skrúfaða í botn og hvert lag hljómar eins og það sé síðasta lagið á tónleikum áður en eigand- inn tekur rafmagnið af húsinu. Ég tek fram að ég hef aldrei séð bandið á tónleikum, en ég get ímyndað mér að það sé rosalegt. Stormy Daniels eru bræðurnir Óðinn Dagur og Ægir Sindri á gítar og trommur, Salvör Gullbrá syngur og Julius Rothlaender spilar á bassa. Að öðrum ólöstuðum gerir Ægir einhvern galdur á tromm- urnar og sogar mann inn í hljóð- heiminn. Hinn frumkrafturinn er svo söngvarinn Salka, en hún syng- ur (og öskrar stundum) á íslensku og krafturinn liggur í röddunum og í textunum. Maður er hreinlega orðinn svo vanur því að fólk semji annaðhvort texta um ekkert, eða svo djúpa og hugsaða texta að merkingin týnist hálfpartinn, að þegar svona opnir og skýrir ís- lenskir textar skjóta upp kollinum er eins og hlýr og notalegur vor- vindur leiki um eyrun. Það er eðli góðra róttæklinga að semja ádeilu- texta og þannig fjallar eitt lag um að sprengja Íbúðalánasjóð eða að minnsta kosti ekki borga af náms- lánum og yfirdrætti. Annað fjallar um að gleyma því alls ekki að hafa gaman, og enn annað um allt það sem skiptir engu máli (til dæmis að vinna, mennta sig, borga skatta og vera til friðs). Það skiptir samt miklu máli að vera maður sjálfur og það gera Stormy Daniels með glæsibrag og það er mikið pönk og uppreisn í þessu hjá þeim. Ég veit ekki hvort það myndi eitthvað hjálpa lögunum eða hljóð- heiminum að vinna tónlistina eitt- hvað meira. Þessi plata er hrá en „sándar“ samt meiriháttar vel. Það er augljós frumkraftur sem fylgir oft fyrstu plötum sveita (samanber til dæmis fyrstu plötu Botnleðju), en ég myndi auðvitað vilja fleiri plötur og meira efni með Stormy Daniels. Það má samt ekki tapa þessum neista, þessum ferska vorblæ sem kitlar allar pönktaugar og hvetur hlustendur áfram pönk- aðan veg sem er utan allra ramma. Það þarf hljómsveitir eins og Stormy Daniels til að minna mann á hvaðan þetta allt er komið. Sér- lega er mælt með að hlusta hátt til að koma sér á fætur, á meðan mað- ur hoppar upp og niður á nærföt- unum og burstar í sér tennurnar og syngur þannig með. Ferskur pönkvorblær Ljósmynd/finnurkaldi Orka Stormy Daniels með Salvöru í broddi fylkingar á tónleikum á Húrra. Pönkrokk Stormy Daniels – Agi styrkur einbeit- ing harka úthald hafa gaman bbbbn Fáanleg á stormydaniels.bandcamp- .com. Átta lög. Tekið upp í R6013 í maí 2018, útgáfudagur er 18. desember 2018. Tónlist semur Stormy Daniels, textar eru eftir Sölku nema „Dead Men Don’t Rape“ eftir 7 Year Bitch, og „Ein- kunnarorð“, texti eftir Björt Blöndal Björnsson og Sölku. Stormy Daniels eru Salvör Gullbrá sem syngur, Óðinn Dagur Bjarnason sem leikur á gítar og syngur bakraddir, Julius Rothlaender sem leik- ur á bassa og Ægir Sindri Bjarnason sem trommar og syngur bakraddir. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST 100 ár eru liðin á þessu ári frá því að ljóðabókin Svartar fjaðrir eftir Dav- íð Stefánsson kom út og hefur síðan verið ein ástsælasta ljóðabók þjóð- arinnar. Hefur engin ljóðabók verið gefin jafnoft út og hún eða 13 sinn- um. Útgáfuafmælinu verður fagnað með ýmsum hætti á árinu og verður einn slíkur fögnuður á sunnudaginn, 3. mars, í Davíðshúsi á Akureyri en þar verða Vandræðaskáldin, þau Sesselja og Vilhjálmur, með opna vinnustofu kl. 13-16 og er aðgangur ókeypis að henni. Býðst gestum að velja sitt uppáhaldsljóð úr ljóðabók- inni og munu Vandræðaskáld semja lag við það og flytja á tónleikum kl. 17. Þeir sem komast ekki geta einnig sent tillögu á netfangið minjasafnid- @minjasafnid.is og spurning hvort ljóðið rati á tónleikana. Aðgangur að smiðjunni er ókeypis en kr. 2.000 að tónleikunum en árskort Minjasafns- ins gildir í Davíðshús og einnig Minjasafnið, Nonnahús, á Leik- fangasýninguna og Laufás. Fleiri viðburðir eru fyrirhugaðir á árinu í tilefni útgáfuafmælis bók- arinnar og verður viðburðaröðin All- ar gáttir opnar haldin í sumar með sérstakri áherslu á ungt listafólk í bland við reyndara, að því er fram kemur í tilkynningu. Morgunblaðið/Skapti Vandræðaskáldin Vilhjálmur Bergmann Bragason og Sesselía Ólafsdóttir. Semja lög við ljóð úr Svörtum fjöðrum Miðstöð íslenskra bókmennta aug- lýsir eftir umsóknum um styrki úr nýjum barna- og ungmennabóka- sjóði sem hefur það markmið að auðga og efla útgáfu vandaðra bóka sem skrifaðar eru á íslensku, fyrir yngri lesendur, eins og segir í tilkynningu. Þar segir að slík út- gáfa sé mikilvægt skref í því að efla læsi til framtíðar, standa vörð um tungumálið og tryggja aðgengi barna og ungmenna að áhugaverð- um bókum við þeirra hæfi. Umsjón með styrkveitingunum hefur Miðstöð íslenskra bókmennta sem hefur m.a. það hlutverk að efla bókmenningu á Íslandi. Styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóði verður úthlutað einu sinni á ári og er umsóknarfrestur til 18. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar má finna á islit.is/styrkir/barna-og- ungmennabokasjodur/ Lestur Drengur með nefið ofan í bók. Útgáfa barna- og ungmennabóka styrkt Tökur hefjast loksins í apríl á næstu Bond-mynd eftir ítrekaðar tafir og nú liggur fyrir hvað hún mun heita: Shatterhand. Frá þessu er greint í dagblaðinu Guardian og BBC meðal annars. Kvikmyndin verður sú 25. sem gerð er um njósnarann James Bond og sú síðasta með Daniel Craig í hlutverki hans. Titillinn, Shatter- hand, mun vera dulnefni sem erki- óvinur Bond, Ernst Stavro Blofeld, notaði í Bond-myndinni You Only Live Twice frá árinu 1964. Mikill vandræðagangur hefur verið í kringum kvikmyndina og tökum frestað oftar en einu sinni og í kjölfar- ið frumsýning- ardegi. Nú á að frumsýna hana í apríl á næsta ári en handritið hef- ur verið endur- skrifað og þá lík- lega oftar en einu sinni. Danny Boyle átti að leikstýra myndinni en sagði sig frá verkefninu í ágúst í fyrra og var leikstjórinn Cary Joji Fukunaga ráðinn í hans stað. Shatterhand heitir næsta Bond-mynd Daniel Craig í hlutverki Bond Enska leikkonan Emma Thompson hefur greint frá því að hún sé hætt við að tala inn á teiknimyndina Luck sökum þess að fyrirtækið sem fram- leiðir hana, Skydance Animation, réð til sín John Lasseter sem áður var listrænn stjórnandi teikni- myndafyrirtækisins Pixar og síðar Disney. Lasseter hefur verið sakaður um að áreita samstarfskonur sínar kyn- ferðislega og Thompson spyr hvers vegna fyrirtækið hafi ráðið hann til sín, vitandi af þessum ásökunum. „Af hverju ætti kona að vilja vinna fyrir karlmann sem hefur snert kon- ur með ósæmilegum hætti áratugum saman, eingöngu vegna þess að nú stendur í samningnum hans að hann verði að haga sér fagmannlega?“ spyr Thompson í bréfi sem birt var í dagblaðinu Los Angeles Times. Hætti út af ráðningu Lasseter Hætt Emma Thompson mun ekki ljá teiknimyndinni Luck rödd sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.