Morgunblaðið - 28.02.2019, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
er að jafnaði besta veðrið á Íslandi,
mesti snjórinn og margt fleira mætti
nefna sem mest er og best.
Fjallað var á fundi umhverfis-
og mannvirkjaráðs nýverið um fram-
tíðarsýn tjaldsvæðanna á Akureyri.
Minnisblað var þar lagt fram, eins og
tíðkast á fundum. Ekki er beint gerð
grein fyrir hvað fram kemur á því
ágæta blaði í fundargerðinni, en ráð-
ið samþykkti að semja við Skátafé-
lagið Klakk um áframhaldandi
rekstur á tjaldsvæðinu á Hömrum.
Einnig var samþykkt að leggja niður
tjaldsvæði við Þórunnarstræti eftir
árið 2020 þegar stækkun á Hömrum
getur tekið við fleiri tjaldbúum.
Til stendur að bæta tveimur
nýjum og stórum tjaldflötum við að
Hömrum og var framkvæmdaleyfi
samþykkti í fyrrasumar. Útilegur
hafa tekið breytingum eins og allt
annað. Hjólhýsa- og tjaldvagnavæð-
ing landans undanfarin ár gera að
verkum að hver og einn tjaldgestur
þarf talsvert meira pláss en þegar
þriggjamannatjöldin voru og hétu á
árum áður. Svæðið við Þórunn-
arstræti er lítið og vart í stakk búið
til að taka við þessum stóru og miklu
ferðavögnum. Þá er þar mikill halli í
landinu og viðunandi endurbótum í
samræmi við nútímakröfur hefur
ekki verið sinnt.
Það er því ljóst að haustið 2020
er þetta fína landsvæði í miðjum
bænum ef svo má segja laust. Og
spurning hvað mönnum hugnast
helst að setja þar niður af bygg-
ingum. Einhverjir fuglar hafa hvísl-
að að upplagt væri að setja aðra af
tveimur nýjum heilsugæslustöðvum
sem rætt hefur verið um að reisa á
Akureyri inn á þetta svæði.
Sumarið er handan hornsins
og því fylgja í höfuðborg hins bjarta
norðurs komur skemmtiferðaskipa.
Þau fyrstu leggja að 9. maí næst-
komandi, tvö stykki, en síðan líða
nokkrir dagar, fram til loka mán-
aðarins, þar til það næsta kemur.
Eftir það er lítið lát á skipakomum,
alls hafa 208 skip boðað komu sína í
sumar sem er töluverð fjölgun frá
því í fyrrasumar þegar þau voru
179. Farþegarnir eru að sama skapi
fleiri, verða um 160 þúsund, en voru
135 þúsund í fyrrasumar, sem er
18,5% fjölgun. Skipin skiptast niður
á öll hverfi bæjarins ef þannig má að
orði komast, til Akureyrar kemur
161 skip, 61 til Grímseyjar og 6
staldra við í Hrísey.
Farþegar skipanna leggja
margir hverjir leið sína í helstu
náttúruperlur í nágrannasveit-
arfélögum Akureyrar, en þeir eru
líka til sem kjósa að spóka sig í bæn-
um. Leiðin liggur í flestum tilvikum
niður eftir göngustíg frá Oddeyr-
arbryggju eftir Strandgötunni og
niður í miðbæ. Fótfráir geta bætt
við göngutúrinn og haldið áfram til
suðurs, farið framhjá Torfunefs-
bryggju og að Samkomubrúnni sem
tekin var í notkun í fyrrasumar.
Sýndist sitt hverjum um gagnsemi
hennar og kostnað, en þegar þær
öldur hefur lægt er ekki annað að sjá
en bæði heimamenn og ferðafólk
nýti þessa gönguleið eftir strand-
lengjunni í ríkum mæli. Sumar, vet-
ur, vor og haust.
Endurbætur verða gerðar á
Torfunefsbryggja á komandi sumri
og veitir ekki af að bjóða þessu vel
yfir 100 ára gamla mannvirki upp á
andlitslyftingu. Þar er oft líflegt yfir
sumarið, hvalaskoðunarbátar gera
þaðan út í gríð og erg frá vori og
fram eftir hausti. Miðað við mann-
fjöldann sem þar hefur viðkomu er
því ekkert annað en stórkostleg hug-
mynd að koma þar fyrir einhvers
konar minnismerki, styttu af hinum
knáa blaðamanni Tinna og hundi
hans Tobba.
Hugmyndin var rædd á fundi
stjórnar Akureyrarstofu og tilefnið
auðvitað heimsókn Tinna og Tobba
með félaga sínum, Kolbeini kapteini
í sögunni um Dularfullu stjörnuna.
Starfsmenn stofunnar eru nú að
kanna hvaða formlegu leiðir þarf að
fara í sambandi við höfundarrétt til
að hugmyndin verði að veruleika.
Það verður ekki ónýtt fyrir ferðafólk
að eiga af sér myndir við hlið þeirra
Tinna og Tobba á Torfunefsbryggju.
Annars hefur athygli verið vakin á
því að þegar þrenningin gekk á land
á sínum tíma, hafi ekki nokkur
hræða amast við komu Tobba, hunds
sem víða hafði komið við áður og
með nefið ofan í mörgu og misjöfnu.
Nútildags hefði honum verið stungið
í sóttkví. Gott upp á styttuhugmynd-
ina að hann fékk að fara óáreittur í
land.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Ganga Sumar, vetur, vor og haust ganga heimamenn og ferðafólk göngustíginn eftir strandlengjunni við Akureyri.
Ekki amast við Tobba á Torfunefsbryggju
Á Akureyri Úr Tinnabókinni Dular-
fulla stjarnan, þrenningin gengur á
land sennilegast á Torfunefsbryggju.
ÚR BÆJARLÍFINU
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Þau ánægjulegu tíðindi spyrj-
ast nú út að gestum sem sækja
Amtsbókasafnið á Akureyri heim
fjölgaði á liðnu ári miðað við árið á
undan. Er það í fyrsta sinn frá árinu
2014 sem gestum fjölgar á milli ára.
Sama er uppi á teningnum þegar
kemur að útlánum, fleiri gestir taka
meira með sér heim af alls konar
efni.
Það eru nefnilega ekki bara
bækur sem eru til láns á safninu,
þar má fá tónlist og bíómyndir á
diskum, spil og tímarit svo eitthvað
sé nefnt. Hvar sem niður er borið
eru tölur fyrir árið 2018 hærri en
þær sem gilda fyrir 2017. Stundum
miklu hærri eins og raunin er með
borðspilin en útlán á þeim voru
185% meiri í fyrra en árið á undan.
Safnið hætti að rukka fyrir dvd
myndir um áramótin og skemmst
frá því að segja að útlánin jukust um
91% nú í nýliðnum janúarmánuði
miðað við sama mánuð í fyrra. Útlán
á bókum voru 10% meiri í janúar í ár
miðað við í fyrra. Amtsbókavörð-
urinn og hans ágæta starfsfólk
fagna þessu eflaust innilega. Nema
þetta sé merki um að kólnandi hag-
kerfi, meiri tími til að lesa bækur og
dunda sér við að spila og svona.
Nær allir íbúar á Akureyri
eru ánægðir með sveitarfélagið sem
stað til að búa á. Svona hljóðaði fyr-
irsögn á vefsíðu Akureyrarbæjar
um daginn og vitnað var í könnun
þar sem spurt var um viðhorf íbúa
til þjónustu sveitarfélagsins.
Ánægja íbúanna jókst á milli ára í
11 af 13 þjónustuþáttum sem um
var spurt og var hin sama og síðast í
hinum tveimur.
Niðurstaðan í þessari könnun
sem Gallup stóð að er sem sé sú að
92% íbúa bæjarins eru ánægð með
sveitarfélagið. Spurning hvað er að
angra þessi 8%, næstum 1500
manns. Gott samt að vita að meiri-
hluti bæjarbúa er í skýjunum. Enda
margt sem hægt er að gleðjast yfir,
ekki bara þessum þrettán þjón-
ustuþáttum, líka því að á Akureyri
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646
ÚTSALA
20-70% afsláttur
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-15
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?