Morgunblaðið - 28.02.2019, Page 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
minning
Fermingar-
myndatökur
Op i ð v i r k a d a g a 11 -18 / l a u g a r d . 11 -17 / Sk ó l a v ö r ð u s t ígu r 16 a , 10 1 Re y k j a v í k / S ími 5 62 0 0 16
Skó l a v ö r ðu s t íg 16a
Litríku
vorvörurnar
streyma
inn
Morgunblaðið lýsir
í leiðara síðastliðinn
laugardag yfir and-
stöðu við að íslenzk
stjórnvöld fari að
dómum Hæstaréttar
Íslands og EFTA-
dómstólsins um að
þau hætti brotum á
EES-samningnum og
leyfi innflutning á
fersku kjöti og eggj-
um, í samræmi við samnings-
skuldbindingar sínar. Frumvarp
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra, sem efnislega gengur út
á að fara að niðurstöðum dómstól-
anna, kallar blaðið uppgjöf í bar-
áttu gegn heilbrigðisvá.
Í leiðaranum segir: „Félag at-
vinnurekenda hefur haldið því
fram að þetta mál snúist aðeins um
að verja sérhagsmuni bænda.
Áhyggjum af heilbrigðismálum er
svarað með skætingi um að þá
verði að banna fólki að fara til út-
landa og koma frá út-
löndum.“
Skuldbindingar
ríkisins
Höfum það sem
sannara reynist. Það
eru ekki dómstólar
sem ákveða upp úr
þurru hvað íslenzka
ríkið eigi að gera. Rík-
ið undirgekkst sjálft
ákveðnar skuldbind-
ingar án þess að nokk-
ur sneri upp á höndina
á því. Dómstólar hafa aðeins kveð-
ið upp dóma um að íslenzka ríkið
verði að standa við það sem það
sjálft skuldbindur sig til að gera en
tæplega var einlægur eða raun-
verulegur vafi þar um. Það dugar
því hvorki að benda á dómstóla,
Evrópusambandið né „heildsala“
enda ekki til þess bærir aðilar að
ráðstafa hagsmunum íslenska rík-
isins. Það breytir því ekki að það
er réttmæt og eðlileg ráðstöfun að
viðskipti á Evrópska efnahags-
svæðinu með matvörur séu sem
frjálsust, um leið og öryggi þeirra
matvæla er tryggt.
Sjúkdómar koma
frekar með fólki en kjöti
Í umræðum um þetta mál hefur
Félag atvinnurekenda í fyrsta lagi
vísað til þeirrar vísindalegu ráð-
gjafar, sem íslenzk stjórnvöld
fengu er þau sömdu á sínum tíma
um að fersk matvæli, jafnt búvörur
sem sjávarafurðir, yrðu í fersku
flæði á Evrópska efnahagssvæðinu,
án heilbrigðiseftirlits á landamær-
um eða sérstakrar veitingar inn-
flutningsleyfa. Niðurstaða Halldórs
Runólfssonar, þáverandi yf-
irdýralæknis, í umsögn til Alþingis
var eftirfarandi: „Eins og málum
er nú háttað þá eru, að mati yf-
irdýralæknis, meiri líkur á að hing-
að berist framandi dýrasjúkdómar
með fólki heldur en með löglega
innfluttu hráu kjöti. Ekki eru mikl-
ar líkur á að lýðheilsu verði stefnt
í aukna hættu með umræddum
breytingum, að því gefnu að gerð-
ar verði ráðstafanir til að stemma
stigu við innflutningi á kjúklinga-
kjöti menguðu af kamfýlóbakter.“
Frystiskyldan er lítil vörn
FA hefur sömuleiðis vísað til
skýrslu starfshóps heilbrigð-
isráðherra um aðgerðir til að
draga úr útbreiðslu sýkla-
lyfjaónæmis á Íslandi, sem út kom
í maí 2017. Niðurstaða skýrsluhöf-
unda, sem voru meðal annars sótt-
varnalæknir og yfirdýralæknir, er
að lítil hætta sé á að bakteríur,
sem ónæmar eru fyrir sýklalyfjum,
berist í fólk með neyzlu búfjár-
afurða, þar sem þær eru yfirleitt
soðnar eða steiktar fyrir neyzlu.
Meiri líkur séu á að sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur berist í fólk
með grænmeti, þar sem það sé yf-
irleitt borðað ferskt. Innflutningur
á grænmeti hefur þó verið frjáls
áratugum saman, án þess að það
hafi komið niður á góðri stöðu Ís-
lands hvað varðar sýklalyfjaónæmi.
Jafnframt kom fram í skýrslunni
að frystiskylda á innfluttu kjöti –
sem frumvarp landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra gerir ráð
fyrir að verði afnumin – hafi lítil
áhrif á aðrar sýklalyfjaónæmar
bakteríur en kamfýlóbakter. Fryst-
iskyldan er með öðrum orðum ekki
sú vörn gegn bakteríum sem
margir, þar á meðal Morgunblaðið,
hafa látið skína í.
Þá var í skýrslu hópsins bent á
að sýklalyfjaónæmar bakteríur geti
auðveldlega dreifzt með ferða-
mönnum sem komi frá svæðum þar
sem hlutfall ónæmis er hátt. Stór-
aukinn ferðamannastraumur og
aukin ferðalög Íslendinga auki því
áhættuna hér á landi. Meðal til-
lagna starfshópsins er að unnið
verði að því að minnnka áhættu á
dreifingu sýklalyfjaónæmra bakt-
ería með ferðamönnum, meðal ann-
ars með því að bæta hreinlæt-
isaðstöðu á ferðamannastöðum.
Vísindaniðurstöður
standa óhraktar
Félag atvinnurekenda hefur í
þriðja lagi vitnað til skýrslu, sem
tveir sérfræðingar á vegum Food
Control Consultants, með sér-
menntun í dýralækningum og smit-
sjúkdómum og áratuga reynslu á
sviði matvælaeftirlits og -öryggis
víða um heim, unnu fyrir félagið.
Niðurstaða skýrsluhöfunda, byggð
á langri reynslu og nýjustu vís-
indarannsóknum, er að ekki séu
haldbær rök fyrir því að innflutn-
ingur á ferskum búvörum muni
hafa neikvæð áhrif á lýðheilsu
fólks og heilsufar dýra. Ekki virð-
ist heldur hægt að fullyrða að inn-
flutningur á þessum vörum muni
hafa áhrif á útbreiðslu lyfjaþolinna
baktería. Almennt virðist lítil
tengsl á milli sýklalyfjaónæmis í
dýrum og í fólki. Aukinn fjöldi
fólks sem ferðast til og frá landinu
virðist líklegri til að hafa áhrif á
útbreiðslu lyfjaþols en innflutn-
ingur á matvælum.
Þær vísindaniðurstöður, sem vís-
að er til í skýrslunni, hafa ekki
verið hraktar. Þess má geta að
þótt Morgunblaðið hafi verið afar
áhugasamt um röksemdir þeirra,
sem eru andvígir því að farið sé að
dómum EFTA-dómstólsins og
Hæstaréttar, hefur blaðið ekki birt
einn staf um þessa skýrslu í frétt-
um sínum.
Viðbótartryggingar minna
íþyngjandi leið
FA beindi meðal annars til höf-
unda skýrslunnar þeirri spurningu
hvort stjórnvöld gætu gripið til að-
gerða til að takmarka hættu á
mögulegum neikvæðum áhrifum
innflutnings ferskvöru, sem væru
minna íþyngjandi en bann við inn-
flutningi á fersku kjöti. Í svari
skýrsluhöfunda kemur fram að hin
norrænu ríkin fjögur hafi fengið
svokallaðar viðbótartryggingar
vegna viðskipta með matvæli, sem
þýðir að taka þarf sýni af viðkom-
andi vörusendingum og gefa út
vottorð um að varan sé ekki meng-
uð, t.d. af salmonella. Þetta er sú
leið sem landbúnaðarráðherra hef-
ur ákveðið að fara hvað varðar
salmonellu og kamfýlóbakter, eins
og fram kemur í umræddu frum-
varpi. Eftirlitsstofnun EFTA hefur
þegar samþykkt viðbótartrygg-
ingar varðandi salmonellu.
Sýklalyfjaónæmar bakteríur
í innlendu kjöti
Loks hefur FA bent á að sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur finnast
einnig í innlendu kjöti, samkvæmt
fyrstu mælingum Matvælastofn-
unar í krafti reglna um eftirlit með
sýklalyfjaónæmum bakteríum sem
önnur EES-ríki tóku upp nokkrum
árum á undan Íslandi. Innflutn-
ingstakmarkanir útiloka þannig
alls ekki þá áhættu, sem kann að
vera fyrir hendi.
Veltur ekki á kjötinu
Samandregið hefur Félag at-
vinnurekenda fært rök fyrir því að
það sé fullkomlega ómálefnalegt að
setja hlutina fram eins og Bænda-
samtök Íslands, Morgunblaðið og
Framsóknarflokkurinn gera; að
það velti á því að innflutningur á
fersku kjöti verði áfram bannaður
hvort verja megi íslenzkan almenn-
ing fyrir þeirri vá, sem vaxandi
sýklalyfjaónæmi er. Þessi umræða
er miklu flóknari en svo og nær til
miklu fleiri þátta. Þrátt fyrir það
sem að framan greinir; að áhættan
af auknum ferðalögum milli landa,
fersku grænmeti og ófullnægjandi
frárennslismálum sé meiri en af
innflutningi kjöts, hefur engum
dottið í hug að leggja til að setja
hömlur á ferðafrelsi fólks eða
grænmetisinnflutning. Og til dæm-
is sveitarstjórnum, sem vanrækja
að gera bragarbót á frárennsl-
ismálum, eru ekki valin sömu
skammaryrðin og þeim sem vilja
leyfa frjáls viðskipti með ferskar
búvörur.
Það er hægt að vinna gegn
sýklalyfjaónæmi án þess að leggja
óþarfar hömlur á frjáls milliríkja-
viðskipti. Það gerist ekki sízt með
eftirliti, forvörnum á borð við
fræðslu um rétta meðhöndlun mat-
væla, ábendingum til ferðamanna
um hreinlæti og umgengni við bú-
fénað og ábyrga notkun sýklalyfja
– og síðast en ekki sízt með sam-
starfi við önnur Evrópuríki um
varnir, eftirlit og viðbótartrygg-
ingar.
Innlegg Félags atvinnurekenda í
umræðuna um heilbrigðismál og
innflutning ferskvöru hefur verið
málefnalegt og byggt á áreiðan-
legum upplýsingum og gögnum,
eins og ofangreind dæmi sýna vel.
Morgunblaðið hefur lítið lagt á sig
til að gera þeim sjónarmiðum skil
á síðum sínum. Hvers vegna leið-
arahöfundur kýs að kalla þennan
málflutning skæting er í þessu ljósi
illskiljanlegt – en kannski verður
það útskýrt í næsta leiðara um
þetta mikilvæga mál.
Skætingur eða málefnaleg umræða?
Eftir Ólaf
Stephensen » Innlegg FA í um-
ræðuna um heil-
brigðismál og innflutn-
ing ferskvöru hefur
verið málefnalegt og
byggt á áreiðanlegum
gögnum. Morgunblaðið
hefur lítið lagt á sig til
að gera þeim sjónar-
miðum skil á síðum
sínum.
Ólafur Stephensen
Höfundur er framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.