Morgunblaðið - 28.02.2019, Side 59
Súkkulaðið heitir Peru og er 100% súkkulaði sem þýðir enginn sykur, mjólk,
ávextir, bragðefni eða hnetur. Súkkulaðið er afar sérstakt á bragðið og ólíkt
því sem við eigum að venjast en því er best lýst sem dökku og áköfu.
„Þegar unnið er með 100% súkkulaði er mikilvægt að velja kakóbændur sem
leggja alúð í vinnu sína. Enn mikilvægara er að vanda til verka við ristun baun-
anna þar sem hún spilar lykilatriði í hreinu súkkulaði. Við ristuðum baunirnar
lengi við lágan hita,“ útskýrir Kjartan Gíslason, annar stofnenda Omnom.
Peru 100% er einstakt súkkulaði búið til úr hinni merkilegu hvítu kakóbaun
gran nativo blanco, sem uppgötvaðist fyrir tilviljun árið 2008 í norðurhluta
Perú en þá hafði hún verið hulin í meira en öld. Þetta þótti mikill fengur enda
er gran nativo blanco-baunin talin einstök bæði hvað varðar lit og bragðeig-
inleika.
Að sögn forsvarsmanna Omnom er bragði Peru 100% best lýst sem bitrum
keimi af ristuðum valhnetum, örlitlum tóni af papæja- og sítrusávöxtum og
flauelsmjúkri áferð í lokin.
„Við höfum unnið að þróun á góðu 100% súkkulaði í mörg ár en þetta er í
fyrsta skipti sem við gefum út slíkt súkkulaði,“ segir Kjartan og bætir við:
„Þegar við fengum baunirnar í hendurnar hófumst við handa í tilraunaeldhús-
inu að vinna með þær en komumst fljótlega að því að þær nutu sín best einar og
sér – án allra viðbóta“. Peru 100% er einungis til í takmörkuðu upplagi og lofar
Omnom einstakri bragðupplifun; ákafri, dökkri og 100%.
Dökkt og dramatískt
Nýja súkkulaðinu er lýst
sem áköfu og dökku.
Fyrsta íslenska
100% súkkulaðið
Þau tíðindi berast úr herbúðum súkkulaðimeist-
aranna Omnom að búið sé að framleiða fyrsta
100% súkkulaðistykkið hér á landi.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
TILBOÐSDAGAR
50%
AFSLÁTTU
R
ALLT AÐ
3.356
Áður: kr. 4.795
3.356
Áður: kr. 4.795
1.998
Áður: kr. 3.995
1.498
Áður: kr. 2.995
998
Áður: kr. 1.995
4.196
Áður: kr. 5.995
-30%
-30%
-30% -50%
-50%
-50%
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16
Cinnabon-bollur
(amerísk kanilsnúðabolla)
Einn pakki af Toro Hveteboller-dufti,
bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á
pakka
1 pakki vanillu Royal-búðingur
1 pakki Toro ostakrem
125 g rjómaostur
50 g smjör
2,5 dl rjómi
2,5 dl nýmjólk
2 msk. og ½ bolli púðursykur (sitt í
hvoru lagi)
40 g smjör
1 msk. kanill og 1 tsk. (sitt í hvoru lagi)
2 msk. flórsykur
Bakið bollurnar eftir leiðbein-
ingum.
Í rjómakremið á milli er sett 2,5 dl
mjólk og 2,5 dl rjómi, 2 msk. flórsyk-
ur, 1 tsk. kanill og 2 msk. púð-
ursykur.
Þessu er hrært saman með písk
og vanillubúðingi hrært saman við
og pískað saman í 1 mínútu. Leggið
svo til hliðar.
Svo er kanilbráð búin til úr 40 g af
smjöri, 1 msk. kanil og ½ bolla af
púðursykri sem er brætt saman í
potti.
Gerið svo rjómaostakremið ofan á
með 50 g af mjúku smjöri og 125 g af
rjómaosti sem hrært er út í einn
pakka af Toro-ostakremi.
Nú er svo að setja bolluna saman
en þá er kanilbráð sett á botninn,
kanilrjómi fer ofan á og bollunni lok-
að. Svo er ostakremið sett ofan á
toppinn
Hin fullkomna vatnsdeigsbolla
Hér erum við með aðra og ekki
ósvipaða útgáfu af hinni klassísku
vatnsdeigsbollu en þær standa ávallt
fyrir sínu. Hér er ekkert verið að
finna upp hjólið enda engin þörf á.
Það er María Gomez á Paz.is sem á
þessa uppskrift.
115 g smjör
235 g vatn (vigtið það á vog)
½ tsk. salt
1 tsk. sykur
130 g hveiti
4 egg
Glassúr ofan á:
3 dl flórsykur
3 msk. kakó
Vatn eftir því hversu þykkan þið viljið
hafa hann en byrjið samt fyrst bara
með 1 tsk. og bætið svo við
klípu af salti
Þessu er öllu hrært saman í skál
og þá er glassúrinn til. Setjið vatn,
salt, sykur og smjör í pott yfir miðl-
ungshita. Hitið saman þar til byrjar
að sjóða. Þegar suðan er komin upp
setjið þá hveitið út í og hrærið stöð-
ugt í með sleif þar til myndast eins
og filma í botninn á pottinum og
deigið er orðið vel blandað saman
(ca. 1-3 mín.). Setjið svo deigið til
hliðar í 5 mínútur (takið tímann).
Bætið nú einu eggi út í og hrærið
stöðugt. Fyrst bregður ykkur og þið
haldið að deigið sé að skemmast því
það fer allt í sundur en hrærið þar til
það er samsett aftur.
Þá er að bæta eggi númer tvö í og
þá gerist aftur það sama. Þegar
deigið er samsett aftur þá er þriðja
egginu bætt í. Haldið áfram svona
þar til öll eggin fjögur eru komin út
í.
Mér finnst best að sprauta deig-
inu á ofnskúffu með bökunarpappír.
Þá tek ég plastsprautupoka og klippi
frekar stórt gat á pokann en hef
engan stút. Svo sprauta ég bollu á
skúffuna og passa að hafa ágætt bil á
milli næstu bollu. Dýfið svo putt-
anum í vatn og strjúkið yfir geirvört-
una sem myndast ofan á bollunni eða
toppnum sem stendur upp þannig að
bollan verði flöt ofan á. Penslið svo
að lokum með hrærðu eggi.
Bakist í 30-35 mínútur á 190°C
blæstri.
Þegar bollurnar eru teknar út lát-
ið þær þá alveg í friði ofan á ofn-
skúffunni þar til þær eru orðnar
kaldar, þá falla þær ekki og halda
lögun sinni.
Skerið þær svo í sundur og setjið
sultu á botninn og rjóma ofan á og
lokið.
Toppið með súkkulaðiglassúr og/
eða flórsykri en hvort tveggja er
rosa gott.
Dúnmjúkar og dásamlegar
Hér er um að ræða fremur snjalla útgáfu af hinum dásamlegu amerísku kanil-
bollum og við elskum öll. Það er María Gomez á Paz.is sem á heiðurinn af
þessari snilld eins og hennar er von og vísa.
Ljósmynd/María Gomez
Kanilbollur Amerísku cinnabon-bollurnar hafa notið mikilla vinsælda.
Ljósmynd/María Gomez
Fullkomin blanda
Bollur, súkkulaði,
sulta, rjómi.