Morgunblaðið - 28.02.2019, Síða 64
64 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
✝ Heiðar Berg-mann Mar-
teinsson fæddist í
Stykkishólmi 10.
janúar 1929. Hann
lést á hjartadeild
Landspítalans við
Hringbraut 24.
febrúar 2019.
Foreldrar hans
voru Marteinn J.
Lárusson, f. 18.12.
1892, d. 3.6. 1970,
og Jóna Anna Björnsdóttir, f.
6.4. 1905, d. 13.9. 1982. Systkini
Heiðars eru Herdís Matthildur
Marteinsdóttir, f. 1917, d. 1996,
mundur Ólafur, f. 31.8. 1956,
eiginkona hans er Þórunn Ósk
Sölvadóttir, f. 3.1. 1958, Jóna
Anna, f. 13.12. 1958, eiginmaður
hennar er Sigurjón L. Kjartans-
son, f. 27.1. 1957, Heiðar Berg-
mann, f. 7.2. 1963, eiginkona
hans er Sigrún Einarsdóttir, f.
7.8. 1971, Herdís Matthildur, f.
12.5. 1966, eiginmaður hennar er
Viðar Víkingsson, f. 20.7. 1968,
Sigríður Sólveig, f. 19.11. 1969,
eiginmaður hennar er Valdimar
Halldórsson, f. 9.12. 1967.
Barnabörn Heiðars eru 16
talsins og barnabarnabörnin eru
17.
Heiðar lærði vélvirkjun og
stofnaði sitt eigið fyrirtæki 1964,
Vélsmiðju Heiðars.
Útför Heiðars fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 28. febr-
úar 2019, og hefst athöfnin
klukkan 11.
Lára Kristín Mar-
teinsdóttir Wiken,
f. 1918, d. 2012,
Guðmundur Mar-
teinsson, f. 1925, d.
2003, Jóhann Sól-
berg Marteinsson,
f. 1932, Hulda
Jenný Marteins-
dóttir, f. 1937.
Hinn 12. nóvem-
ber 1955 kvæntist
Heiðar Guðríði
Magndísi Guðmundsdóttur, f.
23.2. 1932.
Börn þeirra eru Marteinn
Bergmann, f. 12.11. 1952, Guð-
Yndislegi pabbi okkar, nú ertu
kominn í sumarlandið þitt. Þakk-
látar erum við með allar bæjar-
ferðir með þér og mömmu í Kola-
portið, Costco, Ikea og margt
fleira.
Þú varst svo fyndinn og mikill
grínari, allar þær grímur sem þú
áttir og naust þess að nota þær til
að stríða fólki, elskaðir að vera
með barnabörnunum og barna-
barnabörnunum.
Þú elskaðir að hitta ættingja
þína í Ameríku og Noregi, það
var yndislegt að þú skyldir hafa
hitt þau á 90 ára afmæli þínu og
þér þótti mjög vænt um að þau
skyldu koma. Þú fylgdist mjög vel
með öllu þínu fólki og þótti vænt
um allt þitt fólk.
Það var alltaf svo skemmtilegt
að fá afmæliskveðjur frá þér á
facebook og sjá allar myndirnar
sem þú varst duglegur að setja á
facebook.
Elsku pabbi okkar, við söknum
þín en nú líður þér vel í sumar-
landinu þínu. Takk fyrir allt,
elsku pabbi okkar, þú varst
bestur. Við elskum þig.
Þínar dætur,
Anna og Sigríður (Sigga).
Elsku afi okkar, það sem þú
gerðir fyrir lífið okkar var ómet-
anlegt. Við erum svo þakklát fyrir
góðu stundirnar með þér, hlátur
og gleði sem brá birtu á líf okkar.
Þú kenndir okkur að vera
þakklát fyrir það sem við höfum
og njóta hverrar einustu mínútu
með öllum þeim nánustu. Við
elskuðum nærveru þína og að
fara með þér og ömmu í verslun-
arferðir, þar á meðal í Costco sem
þú elskaðir. Þú varst alltaf búinn
að kaupa kókómjólk fyrir okkur í
hvert skipti sem við komum og
allar þær morgunstundir sem við
áttum með ykkur ömmu áður en
þið fóruð í smiðjuna, það var það
besta.
Þú varst alls ekki smeykur við
nýju tæknina þar sem þú virki-
lega naust þín að vera í tölvunni
að horfa á fótboltann og vera á fa-
cebook til að fylgjast með öllum
ættingjum þínum, einnig að læra
á nýja snjallsímann þinn. Það sem
við elskuðum að grínast með þér
og hlusta á þig með munnhörp-
una þína.
Þetta var yndislegur tími og
við viljum þakka þér fyrir allt
saman. Við elskum þig rosalega
mikið og munum sakna þín
óendanlega mikið, elsku afi
okkar. Hvíldu í friði, engillinn
okkar, og við sjáumst seinna.
Þín barnabörn,
Birna Fjóla, Matthildur Jóna
og Vilbert Árni.
Við minnumst elsku afa okkar
með tár á hvörmum en jafnframt
brosi á vörum. Tárin streyma
vegna söknuðar og þess hversu
erfitt er að sleppa takinu. En við
brosum að minningum og frábær-
um tíma sem við fengum með
honum.
Hann afi okkar var mikill gleði-
gjafi, hann var alltaf til í leik og
eitthvert fjör með okkur barna-
börnum og barnabarnabörnum.
Það voru ófáar ferðir farnar
upp í sumarbústað þar sem hann
lék á als oddi. Alltaf nenntu amma
og afi að taka okkur barnabörnin
með upp í sumarbústað.
Við fengum að bralla ýmislegt í
sveitinni eins og að smíða báta,
kveikja upp í arninum, tína ber,
njósna um nágrannann með kíki
og rækta grænmeti. Þegar afi fór
með okkur í feluleik kom hann sér
fyrir í einhverju góðu rjóðri og
sofnaði oftast þar, þannig að það
tók okkur óratíma að finna hann.
Við dönsuðum saman, spiluð-
um á spil og sungum, en best var
síðan að fá að kúra uppi í hjá
ömmu og afa á næturnar.
Þegar langafabörnin fóru síð-
an að streyma inn var hann farinn
að eldast en alltaf jafn fljótur að
henda sér á gólfið og sýna þeim
eitthvert sniðugt dót. Enda tala
börnin okkar um langafa, hvað
hann var sniðugur og alltaf til í að
leika.
Afi var alltaf fljótur að tileinka
sér hvers konar tækni. Hann
elskaði að taka myndir af okkur,
setja inn á tölvu og prenta út.
Hann var ekki lengi að skrá sig á
facebook þegar hún kom.
Þar gat hann fylgst með öllum
hópnum sínum og var duglegur
að senda okkur hvers kyns
kveðju eða tagga okkur á gamlar
myndir sem hann var að skanna
inn (við mismikla gleði okkar,
sumar þessara mynda voru
kannski best gleymdar, ýmis
tískuslysin sem litu dagsins ljós).
Hann var svo stoltur af okkur og
stóra hópnum sínum.
Hann afi var einfaldlega bestur
og við fundum alltaf hversu heitt
hann elskaði okkur. Það var svo
gott þegar hann strauk okkur um
kinn og kyssti.
Hvíl í friði, elsku afi, minningar
um frábæran afa lifa í gegnum
okkur með sögum um þig. Við
elskum þig. Þínar sonardætur,
Guðríður Magndís
og Elín Inga.
Elsku afi okkar.
Takk fyrir öll árin sem við
fengum að njóta með þér. Allar
fallegu minningarnar og tímarnir
með þér munu aldrei gleymast.
Þú ert fyrirmynd okkar systra í
svo mörgu. Þú gafst svo mikið af
þér við alla sem á vegi þínum
urðu, varst einlægur, kærleiks-
ríkur, hafðir endalausa þolin-
mæði.
Eitt það dýrmætasta sem þú
kenndir okkur var að sjá það
skemmtilega í aðstæðum og hafa
gaman af lífinu.
Að grínast og stríða voru ein-
kenni þín. Þú varst svo mikill
stríðnispúki og þér fannst
skemmtilegast af öllu að stríða
ömmu, t.d. með því að lækka í
heyrnartækinu þínu þegar þú
nenntir ekki að hlusta á hana og
svo hlóstu allra hæst þegar hún
fattaði það.
Eða þegar þú tókst fram alla
jólasveinana sem sungu og döns-
uðu og górillur með prumpuhljóð-
um þegar maður labbaði framhjá,
barnabörnunum til mikillar
skemmtunar.
Svo varstu mesti töffari sem til
er, það eru ekki margir 90 ára af-
ar sem voru eins virkir og þú á fa-
cebook, þú skrifaðir alltaf afmæl-
iskveðjur og skannaðir inn
gamlar og dýrmætar myndir af
okkur öllum.
Samband þitt og ömmu var al-
veg sérstakt og forréttindi að fá
að upplifa svo einstakt samband á
milli tveggja einstaklinga. Það er
eitthvað sem við systur ætlum að
taka til fyrirmyndar og reyna að
lifa eftir.
Síðustu dagana varstu alltaf
svo glaður að sjá okkur koma í
heimsókn og spjallaðir og vildir fá
fréttir af öllu fólkinu þínu, þá
hlýnaði manni í hjartanu við að
sjá fallega og einlæga brosið þitt.
Elsku afi, þú átt sérstakan stað
í hjarta okkar og við erum svo
heppnar að hafa átt þig að, við
hreinlega duttum í afalukkupott-
inn og lífið verður svo tómlegt án
þín.
Mundu að við elskum þig og
sjáumst seinna í fallega sumar-
landinu þínu.
Anna Kristín og Kristbjörg
Eva Heiðarsdætur.
Heiðar Bergmann
Marteinsson
HINSTA KVEÐJA
Hann var besti afi minn.
Kveðja,
Stefán Ingi Hauksson.
Hann var besti afi minn í
lífinu.
Kveðja,
Ragnhildur Ylfa
Hauksdóttir.
✝ Ásgeir ÖrnGestsson
fæddist í Reykja-
vík 19. maí 1961.
Hann lést á líknar-
deild Landspít-
alans í Kópavogi
8. febrúar 2019.
Ásgeir var
fimmti í röð átta
barna Þorbjargar
Kristjánsdóttur, f.
20.12. 1929, og
Gests Bjarka Pálssonar, f.
14.5. 1934, d. 17.4. 2016.
Eldri systkini eru tvíbur-
arnir Kristján Páll (lést 20.4.
2017) og Rúnar, Matthildur og
Magnús. Yngri systkini eru
Svanhildur, Halldór og Hlynur.
Börn Ásgeirs með Hallfríði
Einarsdóttur eru Saga, f. 10.6.
1983, og Frosti, f. 13.7. 1984.
Frosti er kvæntur Nicole
Flanagen, dóttir þeirra er
Juniper Ósk, f.
20.12. 2016.
Ásgeir kynntist
eftirlifandi eigin-
konu sinni, Hildi
Björgu Hannes-
dóttur, 1993.
Dóttir Hildar er
Björg Alfa Björns-
dóttir, f. 6.2. 1991,
í sambúð með Jóni
Grétari Gissurar-
syni.
Eftir að Ásgeir lauk prófi
sem verkfræðingur frá HÍ
1986 starfaði hann um tíma í
Noregi. Frá 1990 starfaði Ás-
geir á verkfræðistofu Guð-
mundar Magnússonar, Verk-
fræðistofu Kópavogs og frá
2003 á eigin verkfræðistofu,
Versa ehf.
Útför Ásgeirs fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 28.
febrúar 2019, klukkan 13.
Elsku sonur og bróðir. Þó að
ljóst hafi verið í hvað stefndi þá
varst þú tekinn frá okkur öllum
að óvörum. Líkaminn gaf eftir
þó að hugurinn hafi verið á ann-
arri skoðun. Með dugnaði þínum
og einurð náðir þú að klára
mörg verkefni áður en yfir lauk
en hefðir viljað ná miklu meiru.
Líklega hefur kertið brunnið í
báða enda hjá þér.
Það var oft glatt á hjalla í
Grænuhlíðinni þegar krakka-
stóð upp á átta stykki hljóp um
lítt tamið. Oftar en ekki varst þú
sprelligosinn í miðjunni og í
raun varst þú miðjubarnið sem
tengdi saman eldri og yngri
systkinin. Þú hafðir gaman af að
segja skrítlur og skemmtisögur
og þú samdir án efa stóran hluta
þeirra eins og t.d. söguna um
sköllóttu músina.
Þú varst mjög sprækur á
þessum tíma og fastagestur á
Slysavarðstofunni með blæð-
andi sár eða heilahristing.
Uppátækin með Magga bróður
voru heldur ekki af skornum
skammti, sum ekki prenthæf.
Venjulega var haft samband
þegar einhver prakkarastrik
höfðu verið framin í götunni. Oft
voruð þið saklausir en líklega
oftar sekir.
Þú fórst í sveit norður í
Skagafjörð í Brennigerði í nokk-
ur sumur og fannst vistin frá-
bær þar sem þú lærðir að vinna
og upplifðir það traust sem þér
var þar sýnt. Þú hafðir mikla
hæfileika á mörgum sviðum eins
og í námi, íþróttum og listum.
Allt sem þú tókst þér fyrir hend-
ur var tekið alla leið og hvergi
slegið af. Á unglingsárum fórstu
í Menntaskólann við Hamrahlíð
og vissir nákvæmlega hvert
framhaldið yrði. Leiðin lá í
byggingarverkfræði í Háskóla
Íslands og samhliða því námi
varstu að koma börnunum þín-
um, Sögu og Frosta, af stað í
heiminum.
Upp úr þessu fór samveru-
stundum okkar að fækka enda
allir að koma sér af stað í lífinu.
Þegar við hittumst, eins og á
Jórvíkurhátíðum, var ávallt
glatt á hjalla og eins og við hefð-
um hist síðast í vikunni áður. Þú
komst alltaf með gítarinn þinn
með þér og spilaðir undir fjölda-
söng og sagðir einhverjar ótrú-
legar sögur, sumar sannar og
aðrar minna sannar.
Elsku Geiri okkar, við eigum
eftir að sakna þín afskaplega
mikið og erum þakklát fyrir tím-
ann sem við náðum þó saman
upp á það síðasta. Þú varst eng-
um öðrum líkur, fórst ávallt þín-
ar eigin leiðir og munt alltaf eiga
sérstaka „skúffu“ í hjörtum okk-
ar allra.
Mamma og Rúnar, Matt-
hildur, Magnús, Svanhild-
ur, Halldór og Hlynur.
Ásgeir Örn
Gestsson
Elsku yndislega
amma mín Sigga,
söknuðurinn er
mikill þar sem þú,
amma mín, ert farin
frá mér en margar hlýjar minn-
ingar um þig lifa áfram í hjarta
mínu.
Ég er nú svo heppin að vera al-
nafna þín og þið afi Björn voruð
svo montin og stolt af því. Ég var
því alltaf kynnt fyrir öllum sem
alnafnan Sigríður Sigurjónsdótt-
ir. Rosalega er ég þakklát fyrir
það.
Í Brekkugerðinu var alltaf líf
og fjör og þá er undirbúningur
jólanna eftirminnilegastur.
Barnabörnin og barnabarna-
börnin voru mörg og svo varst þú
svo gjafmild að þú gafst einnig
öllum mökum og þeim vinum sem
þú þekktir. Það var því gott að þú
varst hagsýn og keyptir flestallt
erlendis á ýmsum mörkuðum og
geymdir í hinum vinsæla kjallara
í Brekkugerðinu. Þar skottaðist
þú niður til að finna hinar ýmsu
gjafir og komst með upp og þegar
ég hjálpaði til við innpökkun
nýttum við dágóðan tíma í að
velja eitthvað flott í hvern pakka.
Við reyndum alltaf okkar besta
og jú stundum tókst það ágæt-
lega hjá okkur.
Það voru margar góðar stund-
ir sem við áttum með ykkur afa í
sumarbústaðnum ykkar þar sem
margt var brallað, farið í fjall-
göngur, siglt, spilað og spjallað.
Yndislegar stundir sem ég er svo
þakklát fyrir.
Það var svo gaman amma mín
þegar þú komst í heimsókn til
Stokkhólms. Þá vorum við Ár-
mann nýbúin að eignast okkar
Sigríður
Sigurjónsdóttir
✝ Sigríður fædd-ist 16. október
1929. Hún lést 11.
febrúar 2019.
Útför hennar fór
fram 20. febrúar
2019.
fyrsta barn og það
var svo margt sem
við lærðum af þér.
Þetta var sólríkt
sumar og ekki
fannst þér nú leiðin-
legt að spóka þig í
sólinni og taka svo
sólarhlé og fara að
versla. Þú varst al-
gjör snillingur í að
versla og svo mikil
pæja að þú vildir
ekki sjá þessar kerlingabúðir
heldur urðu unglingabúðirnar
fyrir valinu og þar voru sko
skvísufötin keypt á ömmu sætu.
Takk fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig og fjölskyldu mína.
Takk fyrir að hafa skapað svo
margar dýrmætar minningar í
hjarta mínu og vera alltaf til stað-
ar fyrir okkur. Brekkugerðið var
alltaf opið fyrir alla að koma í
heimsókn, fá sér heitt súkkulaði
og gómsætu kökurnar þínar.
Enginn mátti fara svangur frá
þér. Elska þig svo mikið og bið að
heilsa afa mínum og Ellu minni.
Knús og kossar frá okkur Ár-
manni, Elínu Lilju og Andra
Birni.
Elskulega amma, njóttu
eilíflega Guði hjá,
umbunar þess, er við hlutum,
ávallt þinni hendi frá;
þú varst okkar ungu hjörtum,
eins og þegar sólin hlý,
vorblómin með vorsins geislum
vefur sumarfegurð í.
Hjartakær amma, far í friði,
föðurlandið himneskt á,
þúsundfaldar þakkir hljóttu
þínum litlu vinum frá.
Vertu sæl um allar aldir,
alvaldshendi falin ver;
inn á landið unaðsbjarta,
englar Drottins fylgi þér.
(Höf. ók)
Elska þig mest.
Þín alnafna
Sigríður Sigurjónsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Sigrún Óskarsdóttir,
guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna