Morgunblaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 67
ÍSLENDINGAR 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Tryggva Ófeigssonar, og hafa unn-
ið með honum og Ásgeiri Jak-
obssyni að ritun hennar. Ekki síð-
ur gleðst ég yfir því að hafa
nýlokið útgáfu á bók um afa minn
Ásgeir Ásgeirsson – Maðurinn og
meistarinn. Bókina tók ég saman í
tilefni af erindi um hann fyrir
frímúrarabræður mína.“
Áhugamál Tryggva eru fjöl-
mörg. „Um árabil vorum við hjónin
með hesta og nutum þess lífsstíls.
Nú er golfið tekið við og dvölin
með vinum okkar á Kóngsbakka í
Helgafellssveit. Þar nýt ég þess að
spila á gítar með félögum mínum
Eyjólfi Árna Rafnssyni og Hrólfi
Jónssyni. Hrólfur semur flest lögin
en ég textana. Við höfum gefið út
tvo CD-diska með lögum okkar
sem við gefum vinum og vanda-
mönnum. Það má þó rata í feril-
skrána að Tríó Tryggva Pálssonar
hefur komið tvisvar fram í Hörpu!“
Allt frá 1988 hefur Tryggvi verið
mjög virkur í Rótarý. Hann var
umdæmisstjóri 2011-2012 og situr
þar m.a. í stjórn Rotary Norden.
„Við hjónin höfum m.a. tekið þátt í
vinahópaskiptum við Suður-Afríku
og fórum til Indlands 2011 sem
sjálfboðaliðar við stíflugerð og
bólusetningu gegn lömunarveiki.“
Allan starfstímann hefur
Tryggvi stundað kennslu á há-
skólastigi í þjóðhagfræði og banka-
fræðum samhliða aðalstarfi. „Nú
síðast hef ég lagt lið á námskeiði í
góðum stjórnarháttum í HÍ. Ég
hef setið í fjölmörgum stjórnum og
nefndum á starfsævinni. Í þessari
viku vorum við í tilnefningarnefnd
Festar hf. að skila skýrslu okkar
til aðalfundar. Sem fyrrverandi
formaður sjöttabekkjarráðs MR
1969 hef ég það ævistarf að skipu-
leggja fagnað árgangsins á fimm
ára fresti. Nú hlökkum við til 50
ára júbileums okkar í vor.“
Fjölskylda
Eiginkona Tryggva er Rannveig
Gunnarsdóttir, f. 18.11. 1949, lyfja-
fræðingur og fv. forstjóri Lyfja-
stofnunar. Foreldrar hennar voru
hjónin Gunnar Kr. Björnsson, f.
1924, d. 2009, verkfræðingur í
Reykjavík, og Lovísa Hafberg
Björnsson húsfreyja, f. 1925, d.
2013.
Börn: 1) Gunnar Páll, f. 9.12.
1977, framkvæmdastjóri Alfa
Framtaks í Reykjavík, maki: Kar-
en Axelsdóttir, eigandi Sóla hjóla-
og jógastúdíós, börn: Tryggvi, f.
2001, Laufey, f. 2003, og Birna
Rannveig, f. 2016; 2) Sólveig Lísa,
f. 24.3. 1980, arkitekt í Garðabæ,
maki: Guðmundur Gísli Ingólfsson
lögmaður, börn: Emma Lovísa, f.
2011, Klara Sigrid, f. 2013, og
Anna Erika, f. 2016.
Systkini: Dóra, f. 19.6. 1947, d.
17.9. 2016, kennari í Reykjavík;
Herdís, f. 9.8. 1950, sérkennslu-
fræðingur í Noregi; Ásgeir, f.
23.10. 1951, framkvæmdastjóri hjá
Isavia, bús. í Mosfellsbæ, og Sól-
veig, f. 13.9. 1959, rithöfundur á
Seltjarnarnesi.
Foreldrar Tryggva voru hjónin
Páll Ásgeir Tryggvason, f. 19.2.
1922, d. 1.9. 2011, sendiherra, og
Björg Ásgeirsdóttir, f. 22.2. 1925,
d. 7.8. 1996, sendiherrafrú. Þau
voru búsett í Reykjavík.
Úr frændgarði Tryggva Pálssonar
Tryggvi Pálsson
Björg Ásgeirsdóttir
sendiherrafrú
Ásgeir Ásgeirsson
forseti Íslands
Jensína Björg Matthíasdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ásgeir Eyþórsson
kaupmaður í Reykjavík
Ragnar
Ásgeirsson
garðyrkju-
áðunautur
í Rvík
r
Eva
Ragnarsdóttir
kennari í Rvík
Ragnar
Önundarson
fv. bankastjóri
Vala Ásgeirsdóttir
Thoroddsen
húsfreyja í Rvík
Ásgeir Thoroddsen
lögmaður í Rvík
Valgerður Jónsdóttir
biskupsfrú í Reykjavík
Þórhallur Bjarnarson
biskup í Reykjavík
Dóra Þórhallsdóttir
forsetafrú
ryggvi Þórhallsson
forsætisráðherra
Tórhallur Tryggvason
bankastjóri
ÞÞóra Ellen Þórhallsdóttir
prófessor
Rannveig Sigurðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ásgeir Þorsteinsson
skipstjóri í Reykjavík
Herdís Ásgeirsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
erdís Tryggvadóttir
húsfreyja í Rvík
HHerdís KjerulfÞorgeirsdóttir
doktor í lögum
órdís Ófeigsdóttir
húsfreyja í Rvík
ÞArnljótur Björnsson
hæstaréttardómari
Tryggvi Ófeigsson
útgerðarmaður í Reykjavík
Jóhanna G. Frímannsdóttir
húsfreyja í Ráðagerði
Ófeigur Ófeigsson
bóndi og sjómaður í Ráðagerði í Leiru, Gull.
Páll Ásgeir Tryggvason
sendiherra
Hjónin Rannveig og Tryggvi á
ferðalagi á Grænlandi.
Ása Jónsdóttir fæddist 28.febrúar 2019 á Ásum íHúnavatnsþingi. Foreldrar
hennar voru hjónin Jón Gíslason, f.
1881, d. 1936, bóndi á Ásum og
Syðri-Löngumýri í Blöndudal, frá
Austurhlíð í Blöndudal, og Anna
Jónsdóttir, f. 1881, d. 1948, hús-
freyja, frá Sauðanesi.
Ása lauk prófi frá Kennaraskóla
Íslands árið 1942 og hélt til Banda-
ríkjanna 1943 og stundaði nám í
uppeldis- og sálarfræði við háskóla í
Minnesota og Norður-Dakota. Hún
lauk MS-prófi frá síðarnefnda skól-
anum árið 1947. Auk þessa náms
sótti hún námskeið, bæði austan
hafs og vestan.
Eftir að heim kom vann Ása við
gáfnapróf hjá dr. Matthíasi Jón-
assyni um tíma. Stundakennari var
hún um árabil við Kennaraskólann í
Reykjavík og við Húsmæðraskólann
á Staðarfelli. Frá 1949 rak Ása einn-
ig eigin skóla fyrir krakka frá fimm
ára aldri, en þegar eiginmaður
hennar, Yngvi Ólafsson, f. 18.12.
1922, d. 8.7. 2005, gerðist sýslumað-
ur í Dalasýslu 1965 lokaði hún skól-
anum. Þau voru barnlaus.
Þegar þau skildu vann Ása við
sálfræðilega ráðgjöf í New York.
Hún hóf síðan rekstur skólans á ný
og var hann starfræktur 1973-1983,
síðast í nýju húsnæði í Völvufelli 11.
Bar hann nafn hennar, Skóli Ásu
Jónsdóttur, og var fyrir 5-7 ára
börn.
Kennsluaðferðir Ásu voru ólíkar
því sem þá þekktist og lagði hún
mikið upp úr einstaklingsathygli og
frjálsu vali barnanna. Skák var vin-
sæl í skólanum og lærðu yngstu
börnin mannganginn. Einhverju
sinni þegar Ása var spurð hvernig
hún héldi uppi aga svaraði hún:
„Maður verður að hafa stálklær í
silkihönskum.“
Ása samdi lausavísur og sú eft-
irfarandi heitir Hamingjan:
Ég veit þú átt heima í heilbrigði manns,
hrekklausum vilja og sterkum.
Samt er þín leitað í drykkju og dans,
draumum og myrkraverkum
Ása lést 20. maí 1993.
Merkir Íslendingar
Ása Jónsdóttir
90 ára
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Sigurður Ingvi Ólafsson
85 ára
Gísli Vilhjálmur Ákason
Guðrún Thorarensen
Jóna Guðrún Kortsdóttir
80 ára
Bára Einarsdóttir
Guðný Jónsdóttir
Helga Soffía Aðalsteinsd.
75 ára
Bergljót Aðalsteinsdóttir
Danielle Y. Odette Palade
Eygló Einarsdóttir
Jón Ragnar Austmar
Kristín Ísfeld
Valgerður Gísladóttir
70 ára
Aðalheiður Kristín Frantzd.
Eiríkur H. Sigurgeirsson
Guðbjörn Dagbjartsson
Hörður Óskar Helgason
Ingibjörg Björgvinsdóttir
Jónína Zophoníasdóttir
Kristinn Páll Ingvarsson
Laufey G. Thorarensen
Sesselja Ingólfsdóttir
Tryggvi Pálsson
Valgerður Einarsdóttir
Þorvaldur Ásgeir Hauksson
Þórunn S. Sigurðardóttir
60 ára
Aleksandr Chrusciov
Hildur Björnsdóttir
Hjörtur Oddsson
María Norðdahl
Oddur K. Finnbjarnarson
Pálína Margrét M. Pálsd.
Sigrún Lilja Jónasdóttir
Sigurvin Ómar Jónsson
Sturla Geirsson
Þórdís Bergljót Hannesd.
50 ára
Barbara Porc
Elín Gunnarsdóttir
Erla Aðalsteinsdóttir
Hugrún B. Haraldsdóttir
Jens Jóhannsson
Jón Gauti Jónsson
Jón Gestur Ármannsson
María Kristín Kristjánsd.
Pétur Jens Lockton
Pétur Þór Gunnarsson
Stefán Á. Guðmundsson
Sveinbjörg Gunnlaugsdóttir
40 ára
Andri Reyr Steingrímsson
Erik Ólaf Eriksson
Finnur Yngvi Kristinsson
Gunnar Þór Gunnarsson
Jóhann Sigurður Þórarinss.
Jóna Dóra Ásgeirsdóttir
Jóna Kristín Jónsdóttir
Líney María Hjálmarsdóttir
Óskar Freyr Guðlaugsson
30 ára
Arnór Einarsson
Einir Pálsson
Eyþór Almar Sigurðsson
Ingibjörg Garðarsd. Briem
Jóhanna Lind Brynjólfsd.
Karen Dögg Úlfarsd. Braun
Nicolas Marino Proietti
Páll Óskar Hallgrímsson
Ragnar Sæbjörn Ingason
Rakel Snorradóttir
Rúnar Freyr Reynisson
Sigurður Freyr Birgisson
Sindri Snær Þorsteinsson
Sóley Ásgeirsdóttir
Sunneva Ólafsdóttir
Valur Þór Hjálmarsson
Viktor Einarsson
Ævar Þ. Aðalsteinsson
40 ára Kristín Erla er frá
Seltjarnarnesi en býr í
Garðabæ. Hún er for-
stöðumaður eignastýr-
ingar Landsbankans.
Maki: Björn Þorfinnsson,
f. 1979, fréttastjóri á DV.
Börn: Brynja Mist, f. 2010,
og Róbert Óliver, f. 2012.
Foreldrar: Jóhann Ingi
Gunnarsson, f. 1954,
sálfr., bús. í Garðabæ, og
Ólöf Guðfinnsdóttir, f.
1955, bús. á Seltjarn-
arnesi.
Kristín Erla
Jóhannsdóttir
30 ára Hallveig er Reyk-
víkingur, er hagfræðingur
hjá Samtökum fyrirtækja
í sjávarútvegi og er í
meistaranámi í fiskveiði-
stjórnun í Tromsö, en er í
fæðingarorlofi.
Sonur: Kolbeinn, f. 2018.
Foreldrar: Ólafur Ósk-
arsson, f. 1958, sjálfstætt
starfandi sjómaður í
Arendal í Noregi, og Jón-
ína Margrét Jónsdóttir, f.
1958, kennari í Austur-
bæjarskóla.
Hallveig
Ólafsdóttir
30 ára Unnur er Garðbæ-
ingur, er förðunarfræð-
ingur, crossfit-þjálfari og
flugfreyja hjá Wow air.
Maki: Gary House, f.
1992, atvinnumaður í
blaki hjá Eltmann í Þýska-
landi.
Foreldrar: Magnús Rósin-
krans Magnússon, f.
1963, framkvæmdastjóri
Garra ehf., og Kristjana
Kristjánsdóttir, f. 1959,
klæðskeri. Þau eru búsett
í Garðabæ.
Unnur
Magnúsdóttir
Til hamingju með daginn