Morgunblaðið - 04.04.2019, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 4. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 80. tölublað 107. árgangur
Síðumúla 30 Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
-
30%
AFSLÁTTUR
AF FERMINGARRÚMUM
Engholm sængurver að
eigin vali fylgir með hverju
seldu fermingarrúmi.
Falleg
fermingarrúm
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
LISTASAFN
LÆKNISINS
TIL SÝNIS
SEGJA MIKIÐ
LEIKJAÁLAG
SKAÐLEGT
HÁTT Í 700 VERK 52 HANDBOLTI ÍÞRÓTTIRFINNA VINNU 8 SÍÐUR
Guðni Einarsson
Baldur Arnarson
Tæplega 30 stéttarfélög annars veg-
ar og Samtök atvinnulífsins (SA)
hins vegar undirrituðu í gærkvöld
kjarasamninga sem eiga að gilda út
árið 2022 eða til 45 mánaða.
„Þessi samningur er stórt skref.
Hann er afar mikilvægur, ekki bara
fyrir þá sem sátu við borðið eða þá
sem samið var fyrir beint heldur
fyrir samfélagið allt,“ sagði Halldór
Benjamín Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins. „Niðurstaðan er hækkun launa,
styttri vinnuvika, lækkun skatta og
vonandi líka, við sjáum það líklega
fljótlega, lækkun vaxta. Við sjáum
hvað Seðlabankinn gerir en hann
hefur sannarlega gefið upp boltann,“
sagði Halldór Benjamín.
26 þúsund króna eingreiðsla
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
hljóða samningarnir upp á 26 þús-
und króna uppbót á orlof sem greið-
ist til allra fyrir 2. maí nk. Um er að
ræða eingreiðslu til launþega.
Laun hækka frá og með 1. apríl á
þessu ári. Á almenn hækkun launa
að vera um 17 þúsund í fyrsta
áfanga. Hinn 1. apríl á næsta ári á al-
menn hækkun að vera 18 þúsund og
1. janúar 2021 á hún vera tæp 16 þús-
und. Síðasta hækkunin verður 1. jan-
úar 2022 og verður hún rúm 17 þús-
und krónur. Samtals eru þetta um 68
þúsund krónur. Við samninga á lág-
markstekjutrygging að fara strax í
317 þúsund krónur. Þá eru taxta-
hækkanir sem verða meiri en al-
mennar hækkanir árin 2020-2022.
Lögð er áhersla á að laun hækki hóf-
lega í upphafi tímabilsins. Þá er rætt
um styttingu vinnuvikunnar í 36
stundir en það verður þó nánar út-
fært á hverjum vinnustað.
Aðgerðir stjórnvalda
Aðgerðir stjórnvalda voru sagðar
hafa vegið þungt.
Ein mesta nýjungin í þeim mun
vera sú að landsframleiðsla á hvern
einstakling verði mæld reglulega.
Hækki landsframleiðsla á það að
hafa áhrif til hækkunar launa. Til að
mynda á 1% hagvöxtur á mann að
skila 3 þúsund króna hagvaxtarauka
en 2% hagvöxtur 8 þúsund krónum.
Hagvaxtaraukinn mun að fullu fara í
taxtalaun en 75% í almenna hækkun.
Verði 1% hagvöxtur á samningstím-
anum á það að skila 99 þúsund krón-
um í samanlagða taxtahækkun 2019-
2022 en 2% hagvöxtur 114 þúsund-
um. Á aukin verðmætasköpun
þannig að skila sér til launþega.
Hagstofan birtir tölur um hagvöxt
í mars og mun svonefndur hagvaxt-
arauki koma til greiðslu í maí.
Meðal annarra ráðstafana er að
eru vonir bundnar við að þessir
kjarasamningar gefi tilefni til vaxta-
lækkunar.
Skattalækkanir eiga einkum að
koma tekjulægstu hópunum til góða
og skila þeim um 10 þúsundum á
mánuði.
Mun þannig gengið lengra í
skattalækkun en Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra boðaði 19.
febrúar sl. Getur breytingin þýtt
meiri kaupmáttaraukningu fyrir
launafólk. Stefnt mun vera að því að
bæta við nýju neðsta skattþrepi og
beina fjárhæðum til lækkunar skatta
til lægri millitekju- og lágtekjuhópa.
Gert var ráð fyrir því í febrúar að
umræddar breytingar á skattkerfinu
kæmu til framkvæmda í skrefum á
árunum 2020 til 2022. Skerðingar-
mörk barnabóta verða hækkuð.
Iðnaðarmenn funda í dag
Fundi samflots iðnaðarmanna og
Samtaka atvinnulífsins sem halda
átti hjá ríkissáttasemjara í gær var
frestað þar til klukkan 14 í dag.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands, sagði þá að nóg væri að gera
hjá ríkissáttasemjara við að ljúka
kjarasamningum sem undirritaðir
voru í gærkvöld. Í samfloti iðnaðar-
manna eru auk Rafiðnaðarsam-
bandsins félögin Samiðn, Grafía,
Matvís, Félag hársnyrtisveina og
VM, félag vélstjóra og málmtækni-
manna.
ekki verði veitt verðtryggð jafn-
greiðslulán til lengri tíma en 25 ára
frá árinu 2020, auk þess sem verð-
tryggð lán verði til minnst tíu ára. Þá
verði skoðað að taka húsnæðisliðinn
úr neysluverðsvísitölunni sem mun
hafa áhrif á verðtryggð húsnæðislán.
Þá verði gripið til fleiri aðgerða til að
draga úr vægi verðtryggingar.
Stefnt er að því að framlengja
tímabundið skattfrjálsa ráðstöfun
séreignarsparnaðar til kaupa á
fyrstu íbúð. Einnig verði framlengd
heimild launþega til að greiða sér-
eignarsparnað inn á húsnæðislán
sem hófst með Leiðréttingunni. Þá
Lífskjarasamningar í höfn
Laun hækka frá 1. apríl og greiddur verður orlofsauki 2. maí Launahækkanir taka mið af hagvexti
Taxtahækkun verði frá 99 þúsundum ef 1% hagvöxtur er á mann Lögð er áhersla á lægstu launin
Morgunblaðið/Hari
Undirritun Skrifað var undir kjarasamningana í Karphúsinu á ellefta tímanum í gærkvöld.
MLífskjarasamningar » 4
Tæpast er að finna meiri fjöl-
skyldutengsl í útgerð á landinu
heldur en á dragnótabátnum Stein-
unni SH frá Ólafsvík. Sjaldan hefur
þurft að ráða í pláss um borð í
Steinunni og hafi komið til þess hef-
ur legið nokkuð ljóst fyrir hvert
sækja ætti mannskapinn.
Níu manns eru í áhöfn Steinunn-
ar og allir náskyldir eða tengdir;
bræður, synir og tengdasonur. Út-
gerðin er byggð á grunni, sem Hall-
dór Jónsson, afi bræðranna fimm
sem eru í áhöfn, lagði á fjórða ára-
tug síðustu aldar. »24
Allir um borð ná-
skyldir eða tengdir
Hreiðar Hermannsson, eigandi
Stracta hótels, reiknar með 15%
samdrætti í sumar vegna gjaldþrots
flugfélagsins WOW air.
Hótelið muni einkum finna fyrir
minni sölu hópferða til Bandaríkja-
manna. Til samanburðar spáir
greiningardeild Arion banka 16%
fækkun erlendra ferðamanna í ár.
Sigurður Smári Gylfason, sem
rekur Hótel Grím í Reykjavík, segir
bókanir hafa dregist saman um vel
innan við 10% vegna falls WOW air.
Meiri skellur á landsbyggðinni
Kristófer Oliversson, formaður
FHG – fyrirtækja í hótel- og gisti-
þjónustu, telur að áhrifin af falli
WOW air verði aldrei meiri en 5% út
árið. Það sé áhyggjuefni að lands-
byggðin virðist fá harðari skell en
suðvesturhornið.
Þórður Birgir Bogason, fram-
kvæmdastjóri RR hótela, segir
hraða bókana hafa hér um bil helm-
ingast eftir að WOW air fór í þrot,
frá því í vikunni áður. Það geti þó
verið hluti af sveiflu milli vikna. Því
sé of snemmt að fullyrða nokkuð um
langtímaáhrifin á þessu stigi.
Þá hefur félagið Alfred’s Apart-
ments boðið viðskiptavinum WOW
air að koma á öðrum tíma. »22
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Ein af þotum WOW air.
Spáir 15% samdrætti í sumar
Fall WOW air bitnar á Stracta Hótel FHG spáir hins vegar 5% samdrætti