Morgunblaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Góð heilsa á efri árum er eftirsókn-
arverð og lífsgæði eru fólgin í því að
viðhalda eigin getu til athafna dag-
legs lífs sem lengst. Öldruðum Ís-
lendingum fjölgar og fleiri ná háum
aldri, þannig fjölgar þeim sem þurfa
að stuðningi að halda. Við í heilsu-
gæslunni viljum styðja við okkar
skjólstæðinga og stuðla að sem
bestri heilsu með
hækkandi aldri
og höfum marg-
vísleg úrræði.
Mikilvægt er að
sinna og með-
höndla vel ýmsa
algenga sjúk-
dóma til að fyr-
irbyggja fylgi-
kvilla og lasleika.
Nefna má há-
þrýsting, syk-
ursýki, slitgigt og þunglyndi. Allt al-
gengir sjúkdómar með hækkandi
aldri, við í heilsugæslunni þekkjum
vel þessa sjúkdóma og mikilvægi
þess að sinna þeim.
Styrkja fólk til sjálfshjálpar
Í þeirri viðleitni að sinna öldruðum
enn betur eru nú þegar eða verða
fljótlega hjúkrunarfræðingar á öllum
heilsugæslustöðvum sem auðvelda
eldra fólki aðgengi að heilbrigð-
isþjónustu, styrkja fólk til sjálfs-
hjálpar og samhæfa þjónustu milli
þeirra sem hana veita. Hægt er að
panta tíma hjá þessum hjúkr-
unarfræðingum sem vinna náið með
læknum og öðru starfsfólki heilsu-
gæslunnar. Heimahjúkrun er innan
heilsugæslunnar nema í Reykjavík
og vilji er til að auka enn frekar þá
samvinnu, þar er öldrunarhjúkr-
unarfræðingur í lykilhlutverki.
Byltur eru vandamál hjá öldr-
uðum, margt er hægt að gera til að
koma í veg fyrir byltur og við ætlum
að styrkja byltumóttökur á heilsu-
gæslustöðvum í samvinnu við öldr-
unarlækna.
Elliglöp og gleymska geta átt sér
margvíslegar orsakir og margt hægt
að meðhöndla. Hægt er að greina og
jafnvel meðhöndla þessa sjúkdóma í
heilsugæslunni eða í samvinnu við
öldrunarlækna. Ekki má gleyma að-
standendum, þessir sjúkdómar eru
erfiðir öllum og sjálfsagt að fá stuðn-
ing í viðtali.
Við erum með hreyfistjóra sem
heldur utan um virkni og hreyfingu
sem er mikilvæg jafnt fyrir unga sem
aldraða.
Góð samvinna er milli heilsugæsl-
unnar og öldrunardeildar LSH.
Öldrunarlæknar sinna margvíslegri
endurhæfingu og greiningu, m.a. á
Landakoti og öldrunardeildum LSH.
Ef þörf er á sérhæfðu mati, greining
er erfið eða óljós, lyfjagjöf flókin eða
vandamál margþætt getur heim-
ilislæknir skrifað tilvísun til öldr-
unarlækna. Nýlega voru haldnir
samráðsfundir öldrunarlækna og
heilsugæslulækna með öldrunar-
hjúkrunarfræðingum og rætt um al-
genga sjúkdóma.
Andleg vanlíðan oft vanmetin
Einmanaleiki og andleg vanlíðan
er vaxandi vandamál hjá öldruðum
og oft vanmetið. Dagvistun er gott
úrræði og oft vanmetið. Í boði er
margvísleg dægradvöl, oft þjálfun,
auk samveru, sem er mjög mikilvæg.
Ég starfa í sama húsi og Þorrasel,
dagvist aldraðra, sem er í vesturbæ
Reykjavíkur. Það lífgar upp á daginn
að fylgjast með ánægðum skjólstæð-
ingum Þorrasels, jafnvel úti í garði
að labba eða ræða málin.
Við í heilsugæslunni viljum sinna
öldruðum þegar heilsan gefur sig,
greina og meðhöndla sjúkdóma sem
gera vart við sig með hækkandi aldri.
Það getur verið erfitt og flókið fyrir
aldraða og aðstandendur að átta sig
á hinum ýmsu úrræðum sem í boði
eru, þá er gott að leita til þeirra sem
betur þekkja til. Starfsfólk heilsu-
gæslunnar er reiðubúið að aðstoða
aldraða og aðstandendur þeirra.
Heilsugæsla og þjónusta við aldraða
Morgunblaðið/Eggert
Heilsuráð
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri lækninga, Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Sigríður Dóra
Magnúsdóttir
Morgunblaðið/Hari
Miðborgin Horft á iðandi mannlífið af bekknum í Austurstræti í Reykjavík.
Brú Hreyfing er mikilvæg, sama á
hvaða aldri fólk er. Með útiveru
kemst blóðið á hreyfingu, súrefni í
lungun og lundin verður léttari.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins.
Í næstu viku verður á Hótel B 59 í
Borgarnesi haldin ráðstefnan Ungt
fólk og lýðræði þar sem um 80
ungmenni á aldrinum 14-25 ára
alls staðar að af landinu koma
saman á ópólitískum vettvangi og
ræða saman málefni líðandi stund-
ar. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er:
Hvernig get ég verið besta útgáfa
af sjálfum mér? Vísar sá titill til
þess að geðheilbrigðismál eru
mjög til umræðu um þessar mund-
ir. Setningarathöfn ráðstefnunnar
verður næsta fimmtudag, 11. apríl,
kl. 9.30 og þar flytja ávörp Salvör
Nordal, umboðsmaður barna, og
ráðherrarnir Ásmundur Einar Daða-
son og Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir.
Ungmennaráðstefna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Málin rædd á ráðstefnu.
Besta útgáfan
í Borgarnesi
Næstkomandi sunnudag, 7. apríl, kl.
14 sest Haukur Heiðar Ingólfsson
læknir við flygilinn í Hannesarholti
við Grundarstíg í Reykjavík og synir
hans tveir, Halldór og Haukur Heiðar
Haukssynir, leiða sönginn. Þeir feðg-
ar komu fram á þessum vettvangi
fyrir réttu ári við góðar undirtektir,
en bjóða nú upp á nýja söngskrá með
skemmtilegum lögum frá ýmsum
tímum, íslenskum sem erlendum.
Haukur Heiðar Ingólfsson hefur
um áratuga skeið glatt Íslendinga
með píanóleik sínum, bæði með Óm-
ari Ragnarssyni og með fáguðum
kvöldverðartónum. Geisladiskar hans
með sígildum dægurlögum, jafnt
leiknum sem sungnum, hafa notið
vinsælda. Synir hans hafa getið sér
orð fyrir söng, hvor á sínu sviði.
Haukur Heiðar yngri er kunnur sem
söngvari Diktu, sem heldur upp á 20
ára afmæli sitt í ár, en Halldór hefur
um árabil sungið með Mótettukór
Hallgrímskirkju og fleiri kórum.
Hannesarholt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tónlist Haukur Heiðar Ingólfsson,
læknir og píanóleikari, við hljóðfærið.
Feðgarnir leiða
fjöldasönginn
Starfamessan á Selfossi verður
haldin á miðvikudag í næstu viku,
10. apríl. Þangað er vænst um
800 nemenda úr efstu bekkjum
grunnskóla yfir daginn auk þess
sem messan verður opin fyrir al-
menning frá kl. 14-16.
Starfamessan er samstarfsverk-
efni á vegum Sóknaráætlunar
Suðurlands í samstarfi við Atorku
– félag atvinnurekenda á Suður-
landi og Fjölbrautaskóla Suður-
lands. Öll helstu fyrirtæki á Suð-
urlandi í áðurnefndum greinum
verða á messunni og kynna sína
starfsemi fyrir gestum messunnar
og hvaða leiðir nemendur þurfa
að fara til þess að ná þeirri hæfni
sem til þarf.
Margt í boði á
starfamessunni