Morgunblaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Þessi þjónusta hefur slegið í gegn
en nú hafa forsvarsmenn Dagnýjar
& co., sem eiga Einn, tveir og elda,
tekið næsta skref og kynnt til sög-
unnar Borðum rétt sem eru til-
búnir réttir sem eingöngu þarf að
hita. Að sögn Hallgríms Hólm-
steinssonar hjá Borðum rétt er hér
um nýja nálgun fyrir neytendur að
ræða. Þótt tilbúnir réttir þekkist
vissulega á íslenskum markmiði
séu Borðum rétt-réttirnir annars
eðlis. „Markmiðið var að búa til
rétti sem uppfylltu þær kröfur sem
gerðar eru til réttrar skiptingar
næringarefna. Þannig eru upplýs-
ingar um innihald og næringargildi
réttanna afar aðgengilegar og skýr-
ar á umbúðum. Leitast var við að
hafa hlutföll á milli prótíns, kol-
vetna, sykurs og fitu í sem mestu
jafnvægi í hverjum rétti. Ef rétt-
urinn féll ekki að þeim viðmiðum
fékk hann heit-
ið „Einfalt og
gott“ og til-
heyrir þá frek-
ar flokki rétta
sem innihalda
meiri kolvetni
eða sykur en
„Borðum rétt“.
Þeir réttir eru
engu að síður
hollir, bragðgóð-
ir og seðjandi
eins og „Borðum
rétt“-réttirnir.
Allt hráefnið
ferskt og
fulleldað
Við vildum
hafa þetta eins
einfalt og kostur
var án þess að slá af gæðakröf-
unum. Fyrir hraðann í nútíma-
samfélagi er gott að eiga kost á að
grípa sér hollan og góðan bita. Það
hefur löngum loðað við „skyndi-
“fæði að það sé óhollt en hér erum
við með valkost sem allir ættu að
vera sáttir við,“ segir Hallgrímur
og bætir við að öll hugmyndavinn-
an á bak við Borðum rétt hafi verið
útpæld. Allt frá hráefnisvalinu,
samsetningu næringarefna og upp í
umbúðirnar. „Umbúðirnar eru að
sjálfsögðu endurvinnanlegar en
bakkinn er úr endurvinnanlegu
plasti og ber að flokka með öðru
plasti og pappahólkurinn fer með
öðrum pappír. Þetta helst allt í
hendur. Virðing gagnvart mann-
inum og umhverfinu. Matarsóun er
líka í lágmarki með þessum hætti,
sem er alltaf jákvætt. Eingöngu
þarf að hita réttina í örbylgjunni
eða ofninum en umbúðirnar þola
slíkt vel og hitna sáralítið við eld-
un. Þetta þykir okkur algjör snilld
því það er engin hætta á að brenna
sig á bakkanum eftir eldun ef
menn hita samkvæmt leiðbeining-
unum,“ segir Hallgrímur og þykir
sjálfsagt betra að slá þann var-
nagla.
Viðtökurnar framar
björtustu vonum
Alls eru níu mismunandi réttir í
boði og hafa þeir að sögn Hall-
gríms fengið frábærar viðtökur hjá
neytendum. „Svo vorum við með
svokallaðan „pop-up“-veitingastað í
HR á dögunum og það gaf okkur
virkilega góðan meðbyr að finna
viðbrögð nemenda þar. Öll ummæli
voru afskaplega jákvæð og hvetj-
andi og greinilegt að sambærilega
rétti hafði vantað á markaðinn.
Réttirnir eru hugsaðir fyrir fólk á
öllum aldri sem hugsar um heils-
una og kýs ferska lausn sem upp-
fyllir kröfuna um hollan og fljótleg-
an mat. Við þróun réttanna var
haft að leiðarljósi að búa til máltíð í
góðu jafnvægi, sem þýðir að jafn-
vægi er á milli prótíns, fitu og kol-
vetna og að innihald sykurs og
salts sé undir viðmiðunarmörkum
daglegrar neyslu fyrir fullorðna
manneskju.
Markmið okkar hjá Dagnýju &
co. við þróun og markaðssetningu á
Borðum rétt er að bjóða hollari
valkost þegar kemur að ferskum
tilbúnum mat. „Það þarf ekki að
vera flókið að borða rétt“ er slag-
orð okkar,“ segir Hallgrímur og
bætir við að fjöldi rétta sé á teikni-
borðinu enda algengasta spurn-
ingin sem þau fái: „Af hverju eru
ekki fleiri réttir í línunni?“
Ljóst er að þróunin er ör á til-
búnum réttum fyrir neytendum og
afskaplega jákvætt að sjá að holl-
usta og samfélagsvitund séu höfð
að leiðarljósi. Það eru því spenn-
andi tímar í vændum fyrir neyt-
endur enda mikilvægt að borða
rétt.
Skiptir máli að borða rétt
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
TOSCA BLU
VOR 2019
Í amstri dagsins munar um alla þá aðstoð sem hægt er að fá og undanfarin misseri hefur mikil breyting orðið á landslagi
tilbúins matar og þeirrar þjónustu sem fólk getur keypt sér og flokkast ekki undir að vera hefðbundinn skyndibiti. Gott
dæmi um þetta eru matarpakkar frá fyrirtækjum á borð við Einn, tveir og elda og Eldum rétt en þá kemur maturinn
tilbúinn til eldunar, vigtaður, flokkaður, merktur og snyrtur þannig að það eina sem þú þarft að gera er að fylgja einföldum
leiðbeiningum og dýrindis máltíð er tilbúin fyrir fjölskylduna á örskotsstundu. Einfalt – en heimatilbúið.
Ferskt og fulleldað
Eingöngu þarf að hita
réttinn í fimm mínútur.
Skýrar merkingar Mikilvægt
er að neytandinn þekki nær-
ingarinnihald matarins.