Morgunblaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 10
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þeim fer jafnt og þétt fjölgandi sem
dvelja á hjúkrunar- og dvalarrýmum
fyrir aldraða og voru hjúkrunarrým-
in orðin 2.719 talsins á landsvísu um
seinustu áramót. Þetta má lesa út úr
svari Svandísar Svavarsdóttur heil-
brigðisráðherra á Alþingi, við fyrir-
spurn frá Unni Brá Konráðsdóttur
um hjúkrunar- og dvalarrými.
395 á biðlista eftir dvöl
Nýjustu tölur landlæknisembætt-
isins sýna að alls voru 395 einstak-
lingar á biðlista eftir dvöl á hjúkr-
unarrými í byrjun þessa árs. Þar af
voru 252 á höfuðborgarsvæðinu og
67 á Norðurlandi.
Alls hefur hjúkrunarrýmum fjölg-
að um 144 frá árinu 2009 eða um
5,6%. Ef litið er á þróun fjölda hjúkr-
unarrýma eftir heilbrigðisumdæm-
um á umliðnum áratug kemur í ljós
að hún hefur verið misjöfn milli um-
dæma. Á Suðurnesjum voru t.a.m.
134 hjúkrunarrými 2009 en þeim
hafði fækkað í 115 í lok síðasta árs og
í heilbrigðisumdæmi Norðurlands
fækkaði hjúkrunarrýmum um tíu á
tíu árum eða úr 398 árið 2009 í 388 í
fyrra.
Á Vestfjörðum er heildarfjöldinn
nær óbreyttur á þessum tíma og
voru 57 í fyrra en á höfuðborgar-
svæðinu fjölgaði hjúkrunarrýmum
úr 1.397 árið 2009 í 1.521 í lok sein-
asta árs.
Dvalarrýmum hefur fækkað á um-
liðnum árum með styrkingu heima-
hjúkrunar og fjölgun dagdvalar-
rýma. Þau voru alls 214 á landsvísu í
árslok 2018 og hefur fækkað úr 661
árið 2009.
Á höfuðborgarsvæðinu voru alls
244 dvalarrými fyrir tæpum tíu ár-
um en hafði fækkað í 33 í lok seinasta
árs. Á Vesturlandi fækkaði þeim úr
80 árið 2009 í 38 í fyrra og á Suður-
landi úr 155 í 82 á seinasta ári.
Unnur Brá spurði einnig hversu
mörg tvímenningsrými væru á Ís-
landi í dag og hver þróunin hefur
verið undanfarin tíu ár. ,,Uppbygg-
ing hjúkrunarheimila undanfarin 10
ár hefur að mestu falist í nauðsyn-
legum endurbótum á eldri rýmum,
m.a. til að fækka fjölbýlum. Hlutfall
fjölbýla af hjúkrunarrýmum
á landsvísu var um 28% árið 2009
en er nú 13,9%,“ segir í svari heil-
brigðisráðherra. Á sama tímaskeiði
hefur einbýlum fjölgað og hefur hlut-
reiknað með fjölgun nýrra hjúkrun-
arrýma um 481 og með endurbótum
á 59 rýmum á þessum tíma. Gert er
ráð fyrir fjölgun um 60 rými á Suð-
urnesjum og 120 rými á Norður-
landi. Engin aukning verður hins
vegar á staðsettum rýmum á Vest-
fjörðum og á Austurlandi samkvæmt
töflu sem birt er með svarinu.
Bendir ráðherra á að auk þessa sé
bygging fleiri hjúkrunarrýma á
framkvæmdaáætlun þar sem
ákvörðun um staðsetningu verður
tekin út frá niðurstöðum yfirstand-
andi þarfagreiningar ráðuneytisins.
„Þau byggingaráform snúa bæði að
fjölgun hjúkrunarrýma og úrbótum
á eldri rýmum til að uppfylla nútíma-
kröfur um aðbúnað í hjúkrunarrým-
um, m.a. kröfur um einbýli,“ segir í
svari ráðherrans.
580 ný rými ráðgerð
Heilbrigðisráðherra svaraði á
dögunum annarri fyrirspurn á Al-
þingi frá Þorsteini Víglundssyni um
sambærileg mál er varða hjúkrunar-
og dvalarrými þar sem fram komu
frekari upplýsingar um fjölgun
hjúkrunarrýma á næstu árum. Er
því haldið fram að vatnaskil séu fram
undan í þessum málum. Á fyrr-
nefndri framkvæmdaáætlun er gert
ráð fyrir fjölgun um alls 580 hjúkr-
unarrými á landsvísu og endurbætur
á 200 eldri rýmum. ,,Til viðbótar við
nýlega opnun hjúkrunarheimilis á
Seltjarnarnesi mun nýtt hjúkrunar-
heimili í Hafnarfirði verða tekið í
notkun á vormánuðum. Fram-
kvæmdir við byggingu hjúkrunar-
heimilis við Sléttuveg í Reykjavík
eru komnar vel á veg og bygginga-
framkvæmdir að hefjast í Árborg.
Með þessum byggingum fjölgar
hjúkrunarrýmum um tæp 200 innan
tveggja ára auk endurbóta á 94 eldri
rýmum,“ sagði í svari ráðherra við
fyrirspurn Þorsteins.
Fram kemur í svarinu enn fremur
að ekki sé komin tímasetning á verk-
lok bygginga hjúkrunarheimila í
Reykjanesbæ, Mosfellsbæ og á
Akureyri.
144 fleiri hjúkrunarrými en 2009
Hlutfall fjölbýla af hjúkrunarrýmum á landsvísu minnkaði úr 28% í 13,9% á umliðnum áratug
Fjöldi hjúkrunarrýma á landsvísu var 2.719 í árslok 2018 samkvæmt svari heilbrigðisráðherra
Heilbrigðisþjónusta Í svarinu segir að hjónarými geti flokkast sem fjölbýli
og ekki sé markmið að engin fjölbýli séu til staðar á hjúkrunarheimilum.
fall þeirra aukist úr 72% árið 2009 í
86,1% um seinustu áramót. Staðan
er þó mjög misjöfn á milli heilbrigð-
isumdæma. Tvímenningsrýmin svo-
kölluðu eða fjölbýli eru t.a.m. komin
niður í 3,8% á Vesturlandi og 9,1% af
hjúkrunarrýmum í heilbrigðisum-
dæmi Suðurnesja. Á Austurlandi er
hlutfall fjölbýla mun hærra eða
22,2% en þar hefur það lækkað ört á
umliðnum árum og hlutfall einbýl-
anna er þar komið í 77,8%.
Fram kemur í svari ráðherra um
fjölgun hjúkrunarrýma á næstu ár-
um að af þeim rýmum á fram-
kvæmdaáætlun til ársins 2023, sem
þegar hefur verið fundin staðsetning
má sjá að á höfuðborgarsvæðinu er
Fjöldi og þróun hjúkrunarrýma 2009-2018
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
Höfuðborgarsvæðið Önnur heilbrigðisumdæmi Samtals, landið allt
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heimild: heilbrigðisráðuneytið
Hlutfall fjölbýla* af heildarfjölda hjúkrunarrýma 2009-2018
Heildarfjöldi hjúkrunarrýma 2009-2018
2.575
1.397 1.521
1.178 1.198
2.719
2.473 2.588
Breyting á fjölda hjúkrunarrýma 2009-2018
Eftir heilbrigðisumdæmum
144 er heildarfjölgun hjúkrunarrýma á tímabilinu, eða 5,6%
Suðumes Norðurland Vestfi rðir Vesturland Austurland Suðurland
Höfuðborgar-
svæðið
-19 -9 -1
+10
+18 +23
+124
*Fjölbýli = tveir eða fl eiri
einstaklingar deila herbergi28%
24%
20%
14%
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
40%
30%
20%
10%
0%
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Gildi–lífeyrissjóður
Ársfundur 2019
Dagskrá fundarins
Venjuleg ársfundarstörf.
Tillögur til breytinga á samþykktum.
Önnur mál, löglega upp borin.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti.
Sérstakt fulltrúarráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka
atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins
eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
1.
2.
3.
Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 11. apríl kl. 17.00
www.gildi.is
F Y R I R S A N N A SÆ L K E R A
Allt um sjávarútveg