Morgunblaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 55
AF TILRAUNUM Ragnheiður Eiríksdóttir heidatrubador@gmail.com Allt gott þarf að taka enda.Þannig var tilfinningin íHörpu á þriðjudag þegar síð- asta undanúrslitakvöld Músíktil- rauna var að hefjast. Andrúmsloftið var rafmagnað og eftirvæntinguna mátti skera í sneiðar og setja ofan á brauð, svo þykk var hún. Karma Brigade, sextett úr Reykjavík og Garðabæ, var fyrst á svið. Fyrra lag þeirra var einkar vel útsett reggípopp og hljóðfærin dreifðust smekklega um hljóðheim- inn. Agla Bríet Einarsdóttir söng- kona kom afar vel út og hljómsveitin var þétt og vel æfð. Dread Lightly var sólóverkefni Arnaldar Inga Jónssonar úr Lucy in Blue, en þar leikur hann á hljóm- borð. Í Dread Lightly syngur hann og spilar á kassagítar og sýnir á sér alveg nýja hlið. Hann hefur mikla út- geislun og er bæði heillandi og heil- andi á sviði. Það eina sem var raun- verulega að var að lögin hans voru of stutt og skildu hlustendur eftir með þörf fyrir meira. Fyndnasta og hressasta band kvöldsins var án efa Boiling Snakes sem var stofnað til að búa til lög á ensku fyrir alla svala unglinga. Til- kynntu svo að svölu krakkarnir væru öll að hlusta á lög um kvíða og því hefðu þeir gert lag sem héti „Anxiety“! Mjög fyndið en tónlistin því miður samt ekki alveg nógu skemmtileg. Ég efast þó um að Boil- ing Snakes sé að hætta og bind vonir við að lagasmíðar eflist með æfing- unni. Að lokum Morgunblaðið/Hari Remony’s Voice Undarlegasta hljómsveit kvöldsins og hélt merki tilrauna á lofti. Það var svo TOR frá Dalvík- urbyggð sem var síðust á svið fyrir hlé og þótt tónlistin væri fullróleg og dramatísk voru hárbeittir ádeilu- textar við lögin. Sérstaklega var síð- ara lagið, „Andvökuhafið“, áhuga- vert og er þar mér vitanlega komið fyrsta lagið á íslensku sem fjallar um internetfíkn! Global frá Hvolsvelli hóf leik eftir dómarahlé sem eytt var í heitt kaffi og heitar umræður. Fyrra lag- ið þeirra var betra, meira grúví, og mér heyrðist gítarleikarinn vera undir áhrifum frá Red Hot Chili Peppers. Best hljómuðu söngkon- urnar Freyja og Oddný Benón- ýsdætur þegar þær sungu saman. Remony’s Voice var án efa und- arlegasta hljómsveit kvöldsins, og hélt merki tilrauna á lofti. Fyrra lag- ið var því miður næstum eins og út- komið lag með Nick Cave og því vart gjaldgengt í þessa keppni, en í síð- ara laginu var komin ein undarleg- asta blanda sem ég hef heyrt. Í mín eyru hljómaði þetta eins og írsk neð- ansjávartónlist með teiknimynda- ívafi og liðsmenn litu svo allir út eins og karakterar úr Tim Burton- myndum. Hákon Hjaltalín skartaði æð- islegri rödd og spennandi lögum. Sérstaklega var síðara lagið, „Fly away“, sterk lagasmíð og sönglínur minntu ögn á listamenn eins og El- liot Smith. Bandið þarf hins vegar að þétta sig en þetta lofar mjög góðu. Að lokum var komið að Ástu frá Flateyri sem er klassískt menntaður víóluleikari, og hóf hún að syngja og spila á gítar fyrir nokkrum mán- uðum. Þessi tónlistarkona hefur yf- irnáttúrulega nærveru og lög henn- ar og textar minna á þjóðlagatónlistarmenn frá upphafi áttunda áratugarins. Catherine Ri- beiro, Joan Baez og Leonard Cohen samankomin í þessari íslensku lista- konu, en hún hefur líka sjálfa sig að gefa og veitir óspart. Lokasekúndur lokalagsins eru ógleymanlegar. Þegar talið hafði verið upp úr kössunum kom í ljós að salurinn kaus Karma Brigade og dómnefnd kaus Ástu áfram. Auk þess bætti dómnefnd Dread Lightly við, ásamt Parasol frá öðru kvöldinu og Merk- úr frá því þriðja. Það eru því ellefu hljómsveitir sem spila í úrslitum Músíktilrauna á laugardagskvöld í Hörpu, og ljóst er að það verður gríðarlega sterkt. » Í mínum eyrumhljómaði þetta eins og írsk neðansjávar- tónlist með teikni- myndaívafi og liðsmenn litu svo allir út eins og karakterar úr Tim Burton-myndum. Ásta Lokasekúndur lokalagsins voru tilfinningaþrungnar. Boiling Snakes Fyndnasta og hressasta hljómsveit kvöldsins. MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Frábært úrval af sundfötum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.