Morgunblaðið - 04.04.2019, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 244.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Steinunn H. Hannesdóttir
Glæsileg útivistarferð þar sem gengið er um hið
heimsþekkta svæði Chamonix sem er sannkölluð paradís
útivistarmannsins og geymir fjölda gönguleiða við allra hæfi.
Mont Blanc, hæsta fjall Evrópu, er stöðugt í augsýn, ásamt
fjölda tignarlegustu tinda Alpanna. Í ferðinni fer saman
dásamleg útivist og afslöppun í skemmtilegum félagsskap.
7. - 14. september
Útivist í Chamonix
Veður víða um heim 3.4., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Hólar í Dýrafirði 4 rigning
Akureyri 7 skýjað
Egilsstaðir 2 heiðskírt
Vatnsskarðshólar 5 alskýjað
Nuuk -5 snjóél
Þórshöfn 4 léttskýjað
Ósló 3 skýjað
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 8 heiðskírt
Lúxemborg 5 rigning
Brussel 9 skúrir
Dublin 5 rigning
Glasgow 5 skúrir
London 7 skúrir
París 9 heiðskírt
Amsterdam 8 skúrir
Hamborg 11 heiðskírt
Berlín 19 heiðskírt
Vín 17 heiðskírt
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 14 léttskýjað
Barcelona 13 súld
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 12 rigning
Aþena 14 léttskýjað
Winnipeg -2 léttskýjað
Montreal 7 alskýjað
New York 14 léttskýjað
Chicago 9 léttskýjað
Orlando 21 skýjað
4. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:36 20:27
ÍSAFJÖRÐUR 6:35 20:37
SIGLUFJÖRÐUR 6:18 20:20
DJÚPIVOGUR 6:04 19:58
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Hæg austlæg átt en norðaustan 8-13
m/s með suðausturstöndinni. Þurrt og bjart veður,
en víða skýjað eystra. Vægt frost norðaustantil, en
hiti um 4 stig að deginum sunnan- og vestanlands.
Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en dálítil væta með vesturströnd landsins. Hiti 1
til 6 stig víða á landinu.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Beðið var eftir undirritun kjara-
samninganna með mikilli óþreyju í
Karphúsinu í gærkvöldi. Um það
leyti sem blaðið fór í prentun var
undirritun samninga að hefjast og
talið að sú athöfn tæki klukkustund.
Margir biðu spenntir eftir að
heyra um hvað hefði samist til næstu
þriggja ára á almennum vinnumark-
aði. Aðdragandi undirritunarinnar
var óvenjulangur og var henni frest-
að aftur og aftur.
Eitt af því sem olli töfum á loka-
metrunum var fjöldi sérkjarasamn-
inga fyrir Eflingu og VR, sem gerðir
voru samhliða stóru samningnum,
eins og fyrir bílstjóra, ræstingafólk
og öryggisverði.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var búið að ná sátt um öll
meginatriði kjarasamninganna en
samlestur texta tók langan tíma,
enda kjarasamningar yfir 30 stétt-
arfélaga undir, með um 110 þúsund
félagsmönnum. Þess vegna var að
mörgu að hyggja. Einnig gátu menn
lengi betrumbætt orðalag og fín-
pússað og þóttust sumir finna fyrir
kynslóðabili, enda margir nýir
komnir að samningaborðinu og hóp-
arnir ólíkir.
Langþráð hvíld eftir annir
Samningamenn sátu lengi við hjá
ríkissáttasemjara í fyrradag og lauk
þeirri lotu ekki fyrr en undir mið-
nættið. Þá var ákveðið í samráði við
ríkissáttasemjara að hvíla sig frá
fundahöldum til klukkan átta í gær-
morgun.
„Það var niðurstaðan hjá okkur að
fólk færi heim núna og að við kæm-
um klukkan átta í fyrramálið og
héldum áfram þeirri vinnu sem enn
er ólokið. Við gerum það og sjáum
hvernig dagurinn á morgun spilast,“
sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, for-
maður Eflingar, rétt fyrir miðnætti í
fyrrakvöld.
Samningalotan hófst svo klukkan
átta í gærmorgun. Ragnar Þór Ing-
ólfsson, formaður VR, kvaðst vera
orðinn þreyttur „en alltaf brattur“
þegar hann mætti í Karphúsið eftir
góðan nætursvefn.
„Það hefur ekkert breyst frá því
við tókum okkur pásu í gær. Þetta er
tímafrekt ferli sem fer í svona texta-
yfirlestur,“ sagði Ragnar Þór og
kvað verið að fínpússa lokaatriði
samningsins. „Það eru þó reyndar
einhverjir sérsamningar eftir. Þessi
meginlína er þó að skýrast og það er
ekkert, alla vega hjá okkur verslun-
armönnum, sem stendur út af borð-
inu, þannig að það ógni þessu sam-
komulagi.“
Smáatriðin tóku sinn tíma
Björn Snæbjörnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins (SGS), og
Drífa Snædal, forseti Alþýðusam-
bands Íslands (ASÍ), nefndu bæði
smáatriði á borð við textavinnu og
yfirlestur sem enn ætti eftir að
ganga frá, þegar blaðamaður mbl.is
ræddi við þau í gærmorgun.
Þegar leið á daginn var stefnt að
því að kjarasamningarnir yrðu und-
irritaðir klukkan 15.00 í gær. Fjöl-
miðlamenn þyrptust á staðinn og
bjuggu sig undir að greina frá und-
irrituninni, en var þá tjáð að einhver
dráttur yrði á því að skrifað yrði
undir.
Eftir bið á þriðju klukkustund
kom Elísabet Ólafsdóttir, skrifstofu-
stjóri Ríkissáttasemjara, og til-
kynnti starfsmönnum fjölmiðlanna
að samningar yrðu ekki undirritaðir
á allra næstu klukkustundum. Að
sögn Elísabetar var að mörgu að
huga og sagði hún það vera einu
ástæðu tafanna.
Óhætt er að segja að loftið í Karp-
húsinu hafi verið lævi blandið í gær
og fram á kvöld. Var fjölmiðlum
meinaður allur aðgangur að húsa-
kynnum sáttasemjara þar til að loks
var skrifað undir.
Karphúsið Í nógu var að snúast hjá Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, Birni Snæbjörnssyni, formanni SGS, Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, og Drífu Snædal, forseta ASÍ.
Morgunblaðið/Eggert
Samið fyrir 110 þúsund manns
Fjöldi sérkjarasamninga var meðal þess sem tafði undirritun lífskjarasamninganna í Karphúsinu
Aðdragandinn óvenjulangur Samningarnir ná til 30 stéttarfélaga með um 110 þúsund félagsmenn
Lífskjarasamningar 2019-2022
Launamál Skattar Stytting vinnuvikunnar
Verðtrygging lána
■ Engin verðtryggð lán frá árinu
2020 til lengri tíma en 25 ára
■ Lágmarkslengd verð-
tryggðra lána verði tíu ár
■ Húsnæðisliðurinn tekinn úr
vísitölu verðtryggðra lána
10.000 kr. skattalækkun til lágtekjufólks
90
þús. kr.
SKATTUR
Stytting vinnuviku, sem verður
36 stundir, en þó yrði það útfærsluatriði á
hverjum vinnustað
Launataxtar hækki um
90.000 krónur á mánuði yfi r
samningstímann
Almenn hækkun nemur um
68.000 krónum á mánuði
Lífskjarasamningar