Morgunblaðið - 04.04.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 04.04.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019 Fylgist með á facebook Skipholti 29b • S. 551 4422 Creenstone kápurnar komnar í Laxdal Bæjarlind 6 | sími 554 7030 • Við erum á facebook Röndóttur jakki Kr. 14.900 Síð skyrta Kr. 13.990 Suðurlandsbraut 30 • sími 553 3755 • 20% Fimmtudag, föstudag og laugardag af öllum vörum afmælisafsláttur 54 ára Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Str. 38-58 Nýkomin flott sending af buxum frá NÝ SENDING! Stakir jakkar, skyrtur, buxur og kjólar Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Ármúla 44, 108 Reykjavík s. 562 6062 Rýmingarsala á eldri vörum Nýjar vörur Læknaráð Landspítalans hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á spítalann að taka til gagngerrar endurskoðunar þá leið sem valin var til jafnlaunavottunar. Telur læknaráðið farsælast að leitað sé til óháðra ytri sérfræðinga til þess að útfæra leið að jafnlaunavottun, eins og flest önnur stórfyrirtæki lands- ins hafi gert. Til að flokka störf innan Land- spítalans (LSH) var ákveðið að nota breskt starfsmatskerfi, NHS (Nat- ional Health Service), með minni- háttar breytingum. Vekur lækna- ráðið athygli á því að breska kerfið nái ekki til lækna og endurspegli því ekki eðli og inntak læknastarfs- ins. Mikilvægt sé að bæði lengd læknanáms og endanleg ábyrgð lækna á greiningu og meðferð sjúk- linga sé metin að verðleikum. Enn fremur telur læknaráð að sú leið Landspítalans, að fela hópi starfsmanna að velja og þróa starfs- matskerfi, sé röng. Sú aðferðafræði geti aldrei talist óbjöguð, eins og það er orðað í ályktuninni. Eftir sem áður fagnar læknaráð því að Landspítalinn vinni að því að starfsmenn, sem gegni sömu eða jafnverðmætum störfum, fái greidd sambærileg laun. Röng aðferðafræði hjá LSH Ferðaþjónustufyrirtækið Tröll Ex- peditions hefur gengið til liðs við Atlantsflug í nýrri ferðaþjónustu- miðstöð í Skaftafelli er nefnist Skaftafell Terminal Tour Center. Mun aðstaðan nýtast Tröll Ex- pedition sem afgreiðsla og farþega- móttaka í jöklagöngum og íshella- ferðum félagsins í Öræfum. Í fréttatilkynningu segir að í Skaftafelli sé stærsti einkaflugvöllur landsins sem veiti Atlantsflugi kost á að halda úti útsýnisflugi frá Skafta- felli allan ársins hring. Að auki bjóði miðstöðin upp á aðstöðu fyrir ferða- þjónustufyrirtæki og samastað fyrir starfsemi þeirra. Atlantsflug hefur stundað útsýnisflug frá Skaftafelli frá árinu 2004. Tröll Expeditions er einnig með starfsemi víðar á Suður- landi. Samkvæmt tilkynningunni óskar Atlantsflug eftir að heyra frá fleiri fyrirtækjum sem vilja nýta sér að- stöðuna í Skaftafell Terminal, þar sé rými fyrir fleiri. Ljósmynd/Atlantsflug Skaftafell Nýja þjónustumiðstöðin sem Atlantsflug stendur fyrir. Breyting á þjónustu í Skaftafelli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.