Morgunblaðið - 04.04.2019, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Varðberg, samtök
um vestræna
samvinnu og al-
þjóðamál, boðar
til sérstaks hátíð-
arfundar í dag í
tilefni þess að 70
ár eru liðin frá því
að ritað var undir
Atlantshafssátt-
málann, stofnskrá
Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), í Wash-
ington.
Fundurinn hefst klukkan 16:30
Veröld, húsi Vigdísar, við Suðurgötu
í Reykjavík. Ávörp flytja: Lilja D.
Alfreðsdóttir, mennta- og menning-
armálaráðherra, Njáll Trausti Frið-
bertsson alþingismaður, formaður
Íslandsdeildar NATO-þingsins, Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir alþing-
ismaður, varaformaður Íslands-
deildar NATO-þingsins, og Sturla
Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utan-
ríkisráðuneytisins.
Að loknum ávörpum sitja stjórn-
málamenn í pallborði og svara
spurningum fundarmanna. Fund-
arstjóri verður Björn Bjarnason,
formaður Varðbergs. Skrifað var
undir stofnskrá Atlantshafs-
bandalagsins 4. apríl 1949 og var Ís-
land eitt af 12 stofnríkjum banda-
lagsins. Hin voru Belgía, Kanada,
Danmörk, Frakkland, Ítalía, Lúx-
emborg, Holland, Noregur, Portú-
gal, Bretland og Bandaríkin. Aðild-
arríkin eru nú 29 og fjögur ríki eru í
aðildarferli.
Varðberg heldur
hátíðarfund
Sjötíu ár liðin frá stofnun NATO
Lilja
Alfreðsdóttir
Sturla
Sigurjónsson
Björn
Bjarnason
Njáll Trausti
Friðbertsson
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kristófer Oliversson, formaður FHG –
fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu,
segir hótelin hafa fengið afbókanir
vegna falls WOW air.
„Menn eru svolítið óvissir enn þá.
Við höfum þó reiknað með því að áhrif-
in verði um 5%, sérstaklega næstu vik-
urnar. Ég held að áhrifin af falli WOW
air verði aldrei meiri en 5% samdrátt-
ur út árið. Hlutfallið gæti þó orðið
hærra næstu vikurnar og eins og áður
er það áhyggjuefni að landsbyggðin
virðist fá harðari skell en suðvestur-
hornið. Við eigum eftir að sjá hvernig
framboðið þróast í fluginu en það er
ljóst að það dregst saman. Einkum
rennum við blint í sjóinn með verð-
þróun á flugmiðum í kjölfar minnkandi
framboðs. En væntanlega hækkar
miðaverð og það mun að sjálfsögðu
minnka eftirspurn. Á þessu stigi eru
þetta aðeins ágiskanir,“ segir Krist-
ófer og bendir á að fall flugfélagsins
WOW air hafi ekki verið óvænt áfall.
„Þetta er búið að liggja það lengi í
loftinu að stærri aðilar sem eru sér-
fræðingar á Íslandsmarkaði voru
kannski búnir að færa sig í meira mæli
til annarra flugfélaga,“ segir hann.
Hafa dregist saman um 10%
Sigurður Smári Gylfason, fram-
kvæmdastjóri og eigandi Hótels
Gríms, sem er í Grímsbæ við Bústaða-
veg í Reykjavík, segir bókanir hafa
dregist saman um vel innan við 10%
vegna falls flugfélagsins WOW air.
„Þetta er innan við tveggja stafa
tölu. Áhrifin eru ekkert sérstaklega
mikil. Það bendir ekkert til hruns. Það
var mikið að gerast hjá okkur fyrstu
dagana eftir fall WOW air eins og hjá
öllum. Margir ferðamenn voru í reiði-
leysi. Nú er komin meiri ró yfir hlut-
ina. Það kemur ein og ein afbókun en
þetta eru engar hörmungar,“ segir
Sigurður Smári. Hótel Grímur fái
þverskurðinn af ferðamönnum, nema
þá sem leiti í dýrustu gistinguna.
Sigurður Smári seldi Bus hostel við
Skógarhlíð í Reykjavík í fyrra en hann
rekur gistiheimilið Snotru í Þykkva-
bæ. Hann segist sjá sama hlutfall af-
bókana í Þykkvabæ og á Hótel Grími.
Greiningardeild Arion banka birti í
fyrradag spá um 16% fækkun er-
lendra ferðamanna í ár vegna sam-
dráttar í flugframboði.
Of mikil svartsýni í spánni
Sigurður Smári telur aðspurður að
spáin sé of svartsýnisleg. Fyrstu
merki um áhrifin af falli WOW air
bendi enda ekki til slíkra hamfara.
Hann telur ekki óhugsandi að hluti
þeirra sem keyptu miða í aflýst flug
með WOW air á næstu mánuðum hafi
ekki vitneskju um fall félagsins. Mögu-
lega eigi áhrifin af því eftir að birtast.
Fyrrverandi upplýsingafulltrúi WOW
air svaraði ekki skilaboðum.
Hreiðar Hermannsson, eigandi og
framkvæmdastjóri Stracta hótels, tel-
ur að áhrifin af falli WOW air birtist
skýrast í sumar. Nú sé útlit fyrir yfir
15% samdrátt í bókunum hjá hótelinu.
„Þótt önnur flugfélög séu að bæta við
nokkrum ferðum í viku eru það aðeins
nokkur þúsund manns. Það vantar svo
mörg flugsæti upp á að það getur ekki
orðið annað en heilmikið tjón nema
eitthvað ævintýralegt gerist. Hópar
sem koma frá Bandaríkjunum, 40-50
manna hópar að meðaltali, hafa skap-
að mikil verðmæti. Margir komu með
WOW air. Brottfallið verður mest í júlí
og ágúst. September er svo að verða
næstum jafn stór mánuður og ágúst.
Það var hræðilegt að ekki skyldi tak-
ast að halda flugfélaginu gangandi út
sumarið,“ segir Hreiðar og rifjar upp
að rætt var um að safna 5 milljörðum
til að bjarga WOW air. Það séu aðeins
„aurar“ í samhengi við heildartapið.
„Þeir sem komu með WOW air voru
mikið að hæla framkomu flugfreyj-
anna og starfsfólksins. Það er afar leitt
að missa svona stóran og góðan hóp
fólks af markaðnum. Tjónið af falli fé-
lagsins er því ekki aðeins fólgið í pen-
ingum. Það er mjög slæmt að glata öll-
um þessum verðmætum í starfsfólki
WOW air, fyrir utan þann vanda sem
þau eru í öll sömul,“ segir Hreiðar.
Halldór Ástvaldsson, framkvæmda-
stjóri Alfred́s Apartments, sem er með
13 hótelíbúðir á Vitastíg og 10 á
Frakkastíg, segir gestum sem ætluðu
að koma með WOW air hafa verið boð-
ið að koma á öðrum tíma. Hann telur
áhrifin af falli WOW air á hótelin
munu verða skammvinn. Áhrifin verði
einna mest á Airbnb-markaðnum.
Hægir á skammtímabókunum
Þórður Birgir Bogason, fram-
kvæmdastjóri RR hótela, sem er með
71 íbúð í miðborginni, segir hafa hægt
mikið á skammtímabókunum í apríl og
maí. Hins vegar sjái félagið ekki mikla
fjölgun afbókana. Hann telur það
munu taka alla viðskiptavini WOW air
nokkrar vikur að átta sig á að félagið
sé hætt. Því sé of snemmt að fullyrða
um áhrifin. „Eftir að WOW air fór í
gjaldþrot minnkaði bókunarhraðinn
um 50% frá því sem var í vikunni á
undan. Það getur hins vegar verið
hluti af sveiflu milli vikna,“ segir
Þórður. Um 40% af bókunum ársins
fari fram í janúar og febrúar.
Mismikil áhrif af falli WOW air
Hótelin finna fyrir 5% samdrætti að jafnaði vegna falls WOW air Óvissan um áhrifin er þó mikil
Innan við 10% samdráttur hjá Hótel Grími Eigandi Stracta hótel reiknar með 15% samdrætti
Morgunblaðið/Hanna
Hótel Grímur Hótelið er á annarri hæð í verslunarmiðstöðinni Grímsbæ við Bústaðaveg í Reykjavík.
Sigurður Friðriksson, eigandi
bílaleigunnar Nordic Car Rental,
segir félagið finna mikið fyrir
falli flugfélagsins WOW air.
„Við vorum í miklum sam-
skiptum við WOW og áttum til
dæmis heilsíðuauglýsingu í
WOW-vélunum frá upphafi til
enda. Við vorum byrjaðir í sam-
starfi við Iceland Express áður
en WOW tók við keflinu. Þetta
eru svona 20 afbókanir á dag
hjá okkur,“ segir Sigurður um
áhrifin af falli flugfélagsins.
Hann telur að brotthvarf
WOW air verði skammtímahögg
fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Greinin verði mikið til búin að
ná jafnvægi á næsta ári.
Fá fjölda
afbókana
NORDIC CAR RENTAL
m.
POWERSTATE™ mótor.
REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M18™ rafhlöðu
M18 FCS66
Alvöru hjólsög
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Gistinætur í febrúar
Herbergjafjöldi á hótelum í febrúar
Herbergjanýting hótela í febrúar
Fjöldi gistinátta á hótelum í febrúar
Heimild:
Hagstofan 353
þús.
344
þús.
9,5
þús.
10,2
þús.
73%
66%
2018 2019