Morgunblaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Mannamál kl. 20 í kvöld á sjónvarpsstöðinni Hringbraut
Jón Ásgeir rýfur þögnina í tímamótaviðtali hjá Sigmundi Erni
Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson rýfur þögnina í einstöku tímamótaviðtali hjá Sigmundi Erni
í sjónvarpsþættinum Mannamál á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld kl. 20.00. Einkalífið, viðskipta-
sagan, sigrarnir og mistökin, hrunið, pólitíkin og dómstólarnir. Seinni hluti fimmtudaginn 11. apríl.
Fylgstumeð!
Útsendingar ná nú til
99,4%
heimila landsins
FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut
• Bókahornið alltaf á mánudögum kl. 20.00
• Fasteignir og heimili alla mánudaga kl. 20.30
• Ný sería af Lífið er lag á þriðjudögum kl. 20.30
• Súrefni sería 2 ámiðvikudagögum kl. 20.00
• Viðskipti með Jóni G. Haukssyni á miðvikudögum kl. 20.30
• Mannamál með Sigmundi Erni á fimmtudögum kl. 20.00
• Suðurnesjamagasín alltaf á fimmtudögum kl. 20.30
• Ísland og umheimurinn á sunnudagskvöldum kl. 20.00
DAGSKRÁIN á Hringbraut Frétta- og umræðuþátturinn 21 alla virka daga klukkan 21.00
Þú getur horft á alla þætti Hringbrautar þegar þér hentar því þeir eru aðgengilegir á fréttavefnum www.hringbraut.is undir flipanum SJÓNVARP.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta hefur sannarlega verið
skemmtilegt verkefni hjá okkur,“
segir Þorvaldur Árnason, fram-
kvæmdastjóri hjá Sambíóunum.
Um nokkurt skeið hafa Sambíóin
boðið upp á sýningar á teiknimynd-
um sem talsettar eru á pólsku. Við-
tökur hafa verið góðar meðal þús-
unda Pólverja sem búsettir eru hér
á landi.
Að sögn Þorvaldar var þetta
fyrst reynt fyrir jólin 2017 og í
fyrra voru tvær myndir sýndar með
pólsku tali; Incredibles 2 og
Smallfoot. Á dögunum var svo hægt
að sjá Lego Movie 2 á pólsku. Boðið
er upp á sýningarnar í Álfabakka
fyrstu tvær sýningarhelgar við-
komandi myndar. Fram undan eru
slíkar sýningar á Undragarðinum,
Aladdin, Toy Story 4 og The Lion
King.
„Þetta hefur gengið ákaflega vel
og hafa okkar pólsku kvikmynda-
húsagestir verið mjög ánægðir með
þessa þjónustu hjá okkur. Þeir eru
þakklátir fyrir að fá tækifæri til að
koma með krakkana sína og sjá
myndirnar með pólsku tali. Þess má
til gamans geta að einn vaktstjóri
okkar í Álfabakkanum er pólskur
og hefur unnið hjá okkur í mörg ár.
Hann er ákaflega stoltur af þessu
og þykir mjög skemmtilegt að geta
boðið samlanda sína velkomna og
óskað góðrar skemmtunar á sínu
tungumáli,“ segir Þorvaldur.
Bíó The Lego Movie 2 kallast LEGO® PRZYGODA 2 meðal Pólverja.
Teiknimyndir á
pólsku vinsælar
Pólverjar hér á landi þakklátir
„Fólk er búið að vera að hafa óform-
lega samband og við höfum bent því
á að lýsa kröfum í þennan formlega
farveg,“ segir Sveinn Andri Sveins-
son, hæstaréttarlögmaður og annar
tveggja skiptastjóra í þrotabúi
WOW air, í samtali við mbl.is.
Innköllun vegna gjaldþrots WOW
air var birt í gær, en þar er kröfu-
höfum gefinn frestur til mánaðamót-
anna júlí og ágúst til að gera kröfu í
búið. Sveinn Andri segir skiptastjór-
um hafa borist fyrirspurnir undan-
farna daga, sem sé eðlilegt þar sem
kröfuhafar séu margir að velta fyrir
sér hvert þeir eigi að snúa sér. „Svo
þegar um er að ræða svona stórt fé-
lag sem er líka í starfsemi erlendis
þurfa skiptastjórar að senda á
þekkta erlenda kröfuhafa og það er
verið að vinna í því núna,“ segir
hann.
Spurður hvort hann viti hve marg-
ir stóru erlendu kröfuhafarnir séu
kveðst Sveinn Andri vita að þeir séu
margir, en ekki sé hægt að nefna á
þessum tímapunkti hversu margir.
Skiptastjórarnir eru hins vegar
komnir með nokkuð góða mynd af
eignum búsins, en munu ekkert gefa
upp um það á næstunni.
Tveir starfsmenn hafa verið ráðn-
ir til þrotabúsins, annars vegar
framkvæmdastjóri sem sér um dag-
legan rekstur á búinu og svo starfs-
maður sem sér um tæknileg atriði og
útfærslu er kemur til að mynda að
afhendingu flugvélanna, sem Sveinn
Andri segir vera flókið ferli.
Flugvélafloti WOW air var allur
byggður upp á leiguvélum sem stað-
settar voru víða um heim er flug-
félagið fór í þrot. Viðhaldsbækur vél-
anna voru hins vegar í vörslu WOW
air og fer afhending vélanna til leigu-
sala fram með afhendingu þeirra.
„Það má ekki setja vél í loftið nema
viðhaldsbækur séu „up to date“ og ef
ein blaðsíða týnist úr nákvæmum
skráningum þá getur það þýtt að
kaupa þurfi varahluti fyrir milljónir
dollara,“ útskýrir Sveinn Andri.
Unnið hefur verið að því undanfar-
ið að afhenda vélarnar, en við af-
hendingu þarf að fylgja formlegu og
nákvæmu ferli. „Við erum búin að
vinna að því á fullu undanfarna
daga,“ segir Sveinn Andri.
Tvær af flugvélum WOW air voru
á Keflavíkurflugvelli er flugfélagið
fór í þrot og var önnur þeirra kyrr-
sett að kröfu Isavia. Sveinn Andri
segir þá kröfu ekki koma þrotabúinu
við. „Það er mál sem viðkomandi
leigusali á við Isavia,“ segir hann.
Lögmennirnir Kristrún Elsa
Harðardóttir og Saga Ýrr Jónsdóttir
gagnrýndu í síðustu viku skipun
Sveins Andra sem skiptastjóra bús-
ins. Hann kveðst ekki munu tjá sig
um það. „Héraðsdómur óskaði eftir
því að ég tæki að mér þetta verkefni,
sem ég gerði. Þegar dómstólar óska
eftir því við lögmenn að þeir taki við
skipun í opinber sýslunarstörf eru
lögmenn nú yfirleitt vanir að taka
því, nema það séu einhver tengsl við
þrotamenn sem valdi vanhæfi.“
annaei@mbl.is
Flókið ferli að afhenda
flugvélar WOW air
Vélin í Keflavík mál leigusalans og Isavia, segir skiptastjóri
Skiptastjóri Sveinn Andri er annar tveggja skiptastjóra þrotabús WOW air.
Skipun hans hefur verið gagnrýnd, en hann kýs að tjá sig ekki um það.