Morgunblaðið - 04.04.2019, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
4. apríl 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.6 123.18 122.89
Sterlingspund 160.11 160.89 160.5
Kanadadalur 91.99 92.53 92.26
Dönsk króna 18.392 18.5 18.446
Norsk króna 14.241 14.325 14.283
Sænsk króna 13.149 13.227 13.188
Svissn. franki 122.62 123.3 122.96
Japanskt jen 1.1006 1.107 1.1038
SDR 169.85 170.87 170.36
Evra 137.32 138.08 137.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.3738
Hrávöruverð
Gull 1287.2 ($/únsa)
Ál 1887.5 ($/tonn) LME
Hráolía 69.22 ($/fatið) Brent
Fjárfesting bandaríska vogunar-
sjóðsins PAR Capital Management í
Icelandair Group, 5,64 milljarða
króna kaup sjóðsins á 11,5% hlut í
flugfélaginu, er mikil viðurkenning
fyrir Icelandair. Þá sé það líklega
ekki tilviljun að tilkynnt hafi verið
um fjárfestinguna sex dögum eftir
gjaldþrot WOW air. Þetta segir
Sveinn Þórarinsson, markaðsgrein-
andi hjá Landsbankanum. Um er að
ræða umsvifamikinn sjóð með um
fjóra milljarða Bandaríkjadala í
stýringu en stærsta eign sjóðsins er
tæplega 6% hlutur í bandaríska
flugfélaginu United Airlines, sem
nemur um 1,4 milljörðum Banda-
ríkjadala en PAR á einnig hlut í
flugfélaginu Delta.
Sveinn segir ljóst að sjóðurinn
muni ekki sitja aðgerðalaus sem
næststærsti hluthafi félagsins á eftir
Lífeyrisjóði verslunarmanna sem á
14% hlut. „Mér finnst líklegt að
sjóðurinn muni beita sér sem fjár-
festir í félaginu. Ég efast um að þeir
fari að fjárfesta í félaginu og haldi
sig við óbreytt ástand. Þeir munu
væntanlega fá mann inn í stjórn,“
segir Sveinn og nefnir að sjóðurinn
hafi átt í útistöðum við United Air-
lines á sínum tíma er PAR krafðist
þess að fá tvo stjórnarmenn í flug-
félagið.
Paul A. Reeder III stofnaði sjóð-
inn árið 1990 og hóf sinn feril sem
greinandi á flugmörkuðum. Því sé
ljóst að félagið hefur töluverða
þekking í geiranum en PAR hefur
einnig fjárfest „sem gerir þetta að
enn þá betri fjárfestingu. Enda tók
markaðurinn vel við sér í morgun,“
segir Sveinn en Icelandair hækkaði
um 8,24% í Kauphöll í gær.
Í gærdag birtust einnig fréttir af
því að Icelandair Group hefði ákveð-
ið að ganga til lokasamningavið-
ræðna um sölu á dótturfélagi sínu,
Icelandair Hotels. Byggjast viðræð-
ur aðila á viljayfirlýsingu sem hefur
verið undirrituð af samningsaðilum
um helstu skilmála. Gert er ráð fyrir
að Icelandair Group muni eiga 20%
hlut í hinum seldu eignum. Ekki er
hægt að greina frá væntum kaup-
anda að svo stöddu en stefnt er að
því að viðskiptin eigi sér stað við lok
annars ársfjórðungs 2019.
Morgunblaðið/Eggert
Fjárfesting Sjóðurinn verður næststærsti hluthafi í Icelandair Group.
Sjóðurinn situr
ekki aðgerðalaus
Lokaviðræður um sölu hótela hafnar
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Átján fjörutíu feta gámar, sex
hinn 16. apríl og 12 gámar til við-
bótar 22. apríl, með samtals um
720 þúsund flöskum af Stella
Artois-bjór, koma til landsins á
næstu þremur vikum, til að mæta
eftirspurn eftir drykknum vin-
sæla, sem ítrekað hefur selst upp
í Vínbúðunum eftir að verðið
lækkaði skyndilega 1. mars sl. Að
auki bíða tveir bjórgámar af-
greiðslu á hafnarbakkanum.
Eins og sagt var frá í Við-
skiptaMogganum í gær varð
verðlækkunin í kjölfar svokall-
aðs verðboðs þar sem Costco
vildi fá að taka við sölu á Stella
Artois í 330 ml glerflöskum í
Vínbúðunum. Niðurstaðan varð
að Vínnes, sem hefur flutt inn og
selt Stella Artois undanfarin ár,
bauð lægra en Costco, eða 219
krónur, og ekkert varð því af
innkomu Costco í vínbúðirnar
með þennan tiltekna bjór. Um
tæplega 40% verðlækkun er að
ræða.
Stella Artois er vinsælasti
flöskubjórinn í ríkinu, og í fyrra
seldust tæplega milljón flöskur,
eða þrefalt meira en af næst-
vinsælasta flöskubjórnum. Í mars
frá framleiðanda bjórsins, og bætti
við að tilboðið héldist út mánuðinn
[marsmánuð].
Halldór Ægir segir um þetta í
samtali við Morgunblaðið, þ.e. að
verðlækkunin sé vegna góðs verðs
frá birgja, en ekki vegna þess að
fyrirtækinu hafi verið skylt að
lækka verðið vegna verðboðsins,
að vissulega hafi þeim verið skylt
samkvæmt reglunum að lækka
verðið á einni tegund af Stella
Artois-bjór í þrjá mánuði, en
fyrirtækið hafi ákveðið að lækka
verð á öllum Stella Artois-bjórum,
bæði litlu flöskunum, sem og 330
ml og 440 ml dósum og 660 ml
glerflöskum. Það skýri svar hans
á sínum tíma. „Við fengum mjög
gott verð frá framleiðanda. Ég sá
enga ástæðu til að minnast á
verðboðið í þessu samhengi, því
við erum þarna með lækkun á
allri Stella-línunni, og vonum að
neytendur njóti vel,“ útskýrir
Halldór.
Í fréttinni frá því mars er talað
um að tilboðið standi út þann
mánuð, en verðið er enn óbreytt.
Verður framhald á tilboðinu í apr-
íl á allri línunni?
„Öll tilboðsverðin standa út
aprílmánuð hið minnsta,“ segir
Halldór.
Hann segir að Vínnes hafi verið
með 30 ára afmæli bjórsins í
undirbúningi óháð verðlækkuninni
á Stellu-bjórnum, en hann viður-
kenni að útfærsla afmælisins hafi
breyst eftir að verðboði mótaðil-
ans hafi verið svarað.
En hvað gerist eftir 1. júní þeg-
ar verðfestunni á 330 ml flösku-
bjórnum lýkur?
„Við verðum að sjá og meta við-
brögðin við þessum kjörum og sjá
hvort hægt er að fara einhvern
milliveg. Eftirspurnin hefur verið
mun meiri en við bjuggumst við.
Við höfum lent í vandræðum með
allar Stellu-vörurnar í mars.
Stóru dósirnar kláruðust fyrst,
svo litlu dósirnar og loks litlu
flöskurnar.“
18 Stellu-gámar á leiðinni
Morgunblaðið/Ómar
Bjór Tveir gámar af Stellu bíða á hafnarbakkanum og 18 eru á leiðinni.
Viðurkenna að útfærsla afmælis bjórsins á Íslandi hafi breyst vegna verðboðs
hinsvegar seldist 200% meira af
bjórnum en í mars árið 2018.
Spurningar vakna
Samkvæmt reglum ÁTVR þarf
verð á bjór sem lendir í verðboði
að standa óhreyft í þrjá mánuði
eftir að verðið lækkar í hillum Vín-
búðarinnar. Því vakna spurningar
um útskýringar Halldórs Ægis
Halldórssonar, vörumerkjastjóra
Vínness, í Morgunblaðinu 19. mars
sl. þegar mátti skilja á honum að
verðlækkunin væri í tilefni 30 ára
afmælis bjórsins á Íslandi, og ein-
göngu tilkomin vegna tímabund-
inna góðra kjara sem fengist hefðu
● Bréf Arion
banka lækkuðu
um 7,17% í
Kauphöll Ís-
lands í gær. Við-
skipti með fé-
lagið námu
tæpum 6,8
milljörðum
króna. Eftir lok-
un markaða í
fyrradag var tilkynnt að Kaupþing, sem
er stærsti hluthafi Arion banka, hefði
ákveðið að selja 10% hlut í bankanum.
Önnur félög á aðallista sem einnig
lækkuðu voru HB Grandi um 0,32%,
Marel um 1,98%, Skeljungur um 1,59%
og Sýn um 0,66%.
Mest hækkuðu bréf Icelandair Gro-
up um 8,24%. Þá hækkuðu bréf Regins
og Reita um tæp 3,2% og Eikar um
2,4%.
Arion banki lækkaði um
7,17% í Kauphöllinni
Tilboðsblöð og nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lodir
Bergþórugata 18
Lóð til sölu
Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í byggingarrétt við Bergþórugötu 18,
samtals 216 m2.
Gamall virðulegur hlynur
Við lóðarmörk stendur gamall
og virðulegur hlynur með hátt
varðveislugildi og er hann mikilvægur
hluti af ásýnd götunnar. Tréð skal
standa og við framkvæmdir á lóðinni
skal tryggja að tréð beri ekki skaða af.
Skilafrestur tilboða til þjónustuvers Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 12-14, er til kl. 14:00 þann 10. apríl 2019.
FA
R
04
19
-0
4