Morgunblaðið - 04.04.2019, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Marta María
mm@mbl.is
„Árið 2016 bað kúnni mig að hanna
borðstofuborð fyrir sig og hún vildi
hafa það úr gleri. Úr varð að ég
hannaði borð úr svertu messing,
bæsuðum við og gráu gleri. Ég var
svo ánægð með útkomuna að ég
ákvað að prufa mig áfram með ein-
faldari og ódýrari útgáfu af svipuðu
borði og notaði þá pólýhúðað stál og
grátt gler og í framhaldinu gerði ég
einnig sófaborð með „emperador
brown“-marmara og stálfótum. Öll
þessi efni eru í miklu uppáhaldi hjá
mér og mér finnst gaman hversu
auðvelt er að breyta þessum borðum
með því að blanda mismunandi út-
gáfum af efnum saman. Til dæmis
nota messingfót við marmaratopp
og svo framvegis,“ segir Sæja og
bætir við:
„Eftir þetta fór ég að vinna með
Granítsmiðjunni. Hugmyndin var að
reyna að nýta efnisafganga þar sem
oft verða til afgangar úr borðplötum
sem eru ekki nógu stórir í aðra
plötu. Þessu efni er því bara fargað,
sem er algjör synd. Ég hannaði því
þríhyrnd og ferköntuð borð þar sem
ég leik mér að því að blanda saman
mismunandi marmara og graníti.
Nýjasta viðbótin er svo í vinnslu en
þar heldur útlitið sér nema topp-
urinn er hringur. Ég hef einnig
gengið svo langt að nota efnis-
afganga af marmara, kvartsi og
graníti sem flísar í forstofu. Það
heppnaðist ótrúlega vel,“ segir hún.
Sæja segir að það sé gaman að
eiga eitthvað sem hinir eiga ekki.
„Þegar ég hanna hjá fólki þykir
mér gaman þegar við gerum eitt-
hvað sérsniðið sem kannski ekki all-
ir eru með og hef því leikið mér að
því að búa til húsgögn eins og
gangaborð, sófaborð, hillur og
fleira.“
Sæja segir að það að blanda mis-
munandi tegundum saman við
marmara henti vel inn í heimilist-
ísku dagsins í dag.
„Í dag er allt svolítið leyfilegt og
gaman að sjá þegar mismunandi lit-
um, efnum og áferðum er blandað
saman. Mér þykir fallegast að of-
hlaða ekki, frekar leyfa einstökum
hlutum, málverkum og húsgögnum
að njóta sín. Grunnurinn er því frek-
ar einfaldur en annað fær að njóta
sín. Það er samt alltaf skemmtilegt
að sjá bara hvernig fólk gerir heim-
ili sitt að sínu án þess að vera of fast
í einhverri tísku.“
Sæja hannar
húsgögn
Sæbjörg Guðjónsdóttir innanhússhönnuður, eða
Sæja eins og hún er kölluð, hefur hlotið mikla at-
hygli fyrir störf sín við að fegra heimili landsmanna.
Nú er hún farin að teygja sig örlítið lengra og búin
að hanna nokkur húsgögn sem fegra umhverfið.
Smart Borðin eru
búin til úr af-
gangsmarmara.
Einfalt og fallegt
Fæturnir koma vel út.
Fer vel Borðin passa
vel við húsgögnin sem
fyrir eru í íbúðinni.
Stílhreint Borðin eru
ákaflega smekkleg og
passa við allskonar stíla.
Heillandi Hér má sjá
tvö marmaraborð sem
Sæja hannaði fyrir við-
skiptavin sinn.
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Við notum Neauvia Organic, efni sem
byggir upp og eykur kollagen framleiðslu.
Tímapantanir í
síma 533 1320 Við tökum vel ámóti ykkur
Ert þú að íhuga að
prófa fyllingarefni?
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Öflugar og
notendavænar
sláttuvélar