Morgunblaðið - 04.04.2019, Side 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Guðrún Nordal fjallar um bók sína
Skiptidaga – nesti handa nýrri kyn-
slóð, sem kom út á síðastliðnu
hausti, í Hannesarholti í kvöld kl.
20. Guðrún fær til sín gesti til sam-
ræðu um efni bókarinnar, þau Sig-
ríði Hagalín rithöfund, Tatjönu
Latinovich, formann innflytj-
endaráðs, og Óttar Proppé, versl-
unarstjóra Bóksölu stúdenta og
tónlistarmann.
„Hvað verður um íslenska menn-
ingu?“ er spurt í tilkynningu vegna
þessa og segir þar að kynslóðin sem
nú vex úr grasi horfi inn í framtíð
sem verði gjörólík okkar samtíma
og rof verði jafnvel til milli kynslóð-
anna. „Umbylt-
ingar síðustu ára
breyta ekki að-
eins samfélagi
okkar og um-
hverfinu, heldur
okkur sjálfum og
sambandi okkar
hvert við annað
og þar með við
fortíðina og for-
mæður okkar og forfeður. Sam-
setning þjóðarinnar breytist líka
ört. Hvernig munum við skilgreina
okkur sem þjóð? Hvernig verður
samfélag okkar, menning og tunga
eftir 30 ár?“ segir þar.
Hvað verður um íslenska menningu?
Guðrún Nordal
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í
Reykjavík hefst í Bíó Paradís í
kvöld og stendur yfir fram til 14.
apríl. Verða þar sígildar íslenskar
myndir í fyrirrúmi og hæfir því
hátíðinni vel að opnunarmynd
hennar sé Benjamín dúfa í endur-
bættri útgáfu. Alls eru sýndar
þrettán myndir á
hátíðinni, þar af
fimm íslenskar,
en nærri allar
myndirnar eiga
það sameiginlegt
að hafa komið út
fyrir seinustu
aldamót.
Fyrsta barna-
kvikmyndahá-
tíðin var haldin
árið 2013 og
verður hátíðin haldin í sjötta sinn í
ár. Hún hefur til þessa verið með
best sóttu viðburðum Bíós Para-
dísar og fest sig rækilega í sessi
hér á landi að sögn Arons Víg-
lundssonar, dagskrárstjóra hátíð-
arinnar.
Benjamín dúfa í
auknum gæðum
Benjamín dúfa var frumsýnd ár-
ið 1995 og verður sýnd í fullum
stafrænum gæðum á opnunar-
hátíðinni í Bíó Paradís í kvöld. Að-
alleikari myndarinnar, Sturla Sig-
hvatsson, sem fór með hlutverk
Benjamíns dúfu, verður viðstaddur
sýninguna ásamt Friðriki Erlings-
syni, höfundi bókarinnar, sem
skrifaði einnig handrit kvikmynd-
arinnar.
Aron segir að kvikmyndafólki sé
umhugað um að gefa út útgáfu af
myndinni sögufrægu í miklum
gæðum. Myndin hefur verið skönn-
uð inn að nýju, litir lagaðir og
hljóð bætt. „Í leit okkar að ís-
lensku efni var Benjamín dúfa til-
valinn kostur og það eru mikil tíð-
indi að stórmynd eins og Benjamín
dúfa sé gefin út á ný í svona mikl-
um gæðum,“ segir Aron og bætir
við að ef myndin yrði sýnd í sinni
upprunalegu mynd frá árinu 1995
yrðu gæðin svipuð og á seg-
ulbandsspólu.
Sagan af Benjamín dúfu er ein
sú vinsælasta síðari tíma og átti
sinn þátt í barnæsku margra sem
gætu ef til vill lagt leið sína á kvik-
myndahátíðina í ár. „Það er nos-
talgía að sjá þessar gömlu myndir.
Þetta eru myndir sem við fullorðna
fólkið sáum í barnaskóla og nú er
hægt að fara á þessar myndir aft-
ur með börnunum,“ segir hann.
Hagamús og lirfa
Á hátíðinni eru sýndar fimm ís-
lenskar myndir en þar af eru tvær
stuttmyndir, Litla lirfan ljóta og
Hagamús – með lífið í lúkunum.
Litla lirfan ljóta fjallar um litlu
ljótu lirfuna Kötu sem lendir í
ýmsum ævintýrum í garðinum sín-
um og hlaut myndin frábærar við-
tökur þegar hún kom út árið 2002 í
kvikmyndastjórn Gunnars Karls-
sonar. Hún vakti athygli erlendis
og hlaut einnig Edduverðlaun í
flokki stuttmynda 2002.
Japönsk skrautskrift
og slímgerð
Erlendar myndir sem sýndar
verða á barnakvikmyndahátíðinni
vekja ekki síður fortíðarþrá. Á
meðal þeirra er Ronja ræningja-
dóttir í endurbættri útgáfu með
meiri myndgæðum, sem kom út í
Svíþjóð síðasta haust. Myndin
verður sýnd á hátíðinni með ís-
lenskri talsetningu á laugardag.
Á sunnudaginn næstkomandi
verður hin sívinsæla Ghostbusters
sýnd með íslenskum texta en þar
að auki verður haldið námskeið í
slímgerð áður en sýningin hefst,
þar sem slím kemur við sögu í
myndinni. Þá verður einnig sér-
viðburður haldinn samhliða sýn-
ingum japönsku myndanna Mirai
og My neighbour Totoro, en það
er sýnikennsla í japanskri skraut-
skrift sem japanska sendiráðið á
Íslandi býður upp á í samstarfi við
kvikmyndahátíðina.
„Japanska sendiráðið kom að
hátíðinni í fyrra og í ár og þess
vegna koma japönsku áhrifin inn,“
segir Aron, en japönsku kvikmynd-
irnar eru tvær í ár.
Nánari upplýsingar má finna á
bioparadis.is.
Nostalgían allsráðandi
Sígildar íslenskar kvikmyndir verða í fyrirrúmi á Alþjóðlegri barnakvik-
myndahátíð Benjamín dúfa í endurbættri útgáfu sýnd við opnun hátíðarinnar
Opnunarmyndin Benjamín dúfa hefur verið betrumbætt og verður sýnd við opnun hátíðarinnar.
Aron
Víglundsson
Annar gestur ársins 2019 í röðinni
Umræðuþræðir er listfræðing-
urinn og sýningarstjórinn dr.
Gabriele Knapstein. Hún mun í
kvöld kl. 20 halda fyrirlestur á
ensku í Hafnarhúsi sem ber yf-
irskriftina „Confirming and Ques-
tioning the Canon. On Exhibiting
the Collection of the Nation-
algalerie at Hamburger Bahnhof –
Museum für Gegenwart – Berlin“.
Knapstein býr og starfar í Berl-
ín og útskrifaðist með dokt-
orsgráðu árið 1999 og fjallaði
doktorsverkefni hennar um af-
burðatónlist eftir flúxuslistamann-
inn George Brecht. Knapstein hef-
ur frá árinu 2003 sinnt
sýningarstjórn hjá samtíma-
listasafninu Hamburger Bahnhof í
Berlín. Í byrjun árs 2012 varð hún
yfirsýningarstjóri þar og 2016 tók
hún svo við stöðu safnstjóra.
Gabriele Knapstein í Umræðuþráðum
Safnstjóri Gabriele Knapstein.
Una Stef syngur vel valin lög eftir
föður sinn, Stefán S. Stefánsson
saxófónleikara, á tónleikaröðinni
Djass í hádeginu í Borgarbóka-
söfnunum í Grófinni í dag kl.
12.15, Gerðubergi á morgun kl.
12.15 og Spönginni á laugardag
kl. 1315. Aðgangur er ókeypis.
Með Unu og Stefáni koma fram
Agnar Már Magnússon á píanó og
Leifur Gunnarsson á kontrabassa.
„Stefán hefur í gegnum tíðina
samið sönglög, djasstónlist og
stórsveitartónlist og hefur nú tek-
ið saman safn laga í anda söngva-
skálda Broadway,“ segir í tilkynn-
ingu.
Feðgin Stefán og Una Stef.
Djass í hádeginu
með Unu Stef
Stjórn Sinfóníu-
hljómsveitar
Íslands (SÍ) hef-
ur ákveðið að
ráða Láru Sól-
eyju Jóhanns-
dóttur í stöðu
framkvæmda-
stjóra SÍ frá og
með 1. ágúst.
Lára Sóley er
fiðluleikari að
mennt. „Á árunum 2010-14 var
hún verkefnastjóri við Menningar-
húsið Hof og gegndi starfi fram-
kvæmdastjóra Hofs í afleysingum.
Hún hefur verið konsertmeistari
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
(SN) og framkvæmdastjóri Sum-
artónleika í Akureyrarkirkju. Hún
er með BMus-próf frá Royal Welsh
College of Music and Drama og er
að ljúka meistaranámi í lista-
stjórnun við sama skóla. Hún hef-
ur setið í stjórn og verkefnavals-
nefnd SN og stjórn KÍTÓN,“ segir
í tilkynningu. Ráðið er í stöðuna
til fjögurra ára í senn.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Lára Sóley
Jóhannsdóttir