Morgunblaðið - 04.04.2019, Qupperneq 60
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
SÓFADAGAR
AF ÖLLUM SÓFUM
HÆGINDASTÓLUM
OG SVEFNSÓFUM
28. MARS - 15. APRÍL
20-50%
Nýtt lag við ljóðið „Til eru fræ“ er
meðal fimm nýrra kórverka sem
Hymnodia frumflytur á tónleikum í
Akureyrarkirkju í kvöld kl. 20. Tón-
skáldin sem samið hafa verkin á
efnisskránni eru frá eyjum úti í reg-
inhafi, þ.e. Íslandi og Færeyjum.
Tónskáldin eru Anna Þorvaldsdóttir,
Kári Bæk, Sigurður Sævarsson og
Þorvaldur Örn Davíðsson. Öll kór-
verkin eru flutt án meðleiks.
Eyjar í reginhafi
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 94. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Ég býst ekki við neinu öðru en að
mönnum verði heitt í hamsi. Það
verður mikill barningur og vonandi
verður ráðin almennileg örygg-
isgæsla. En við erum spenntir fyrir
þessu og kunnum vel við okkur í
svona látum og barningi,“ segir
Matthías Orri Sigurðarson körfu-
boltamaður úr ÍR sem mætir
Stjörnunni í undanúrslitum Ís-
landsmótsins í kvöld. »4
Kunnum vel við okkur
í látum og barningi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinunn Sigurðardóttir og Fríða
Ísberg spyrja hvor aðra um allt
sem þeim leikur forvitni á að vita
og velja ljóð til upplesturs hvor
fyrir aðra á Bókakaffi Borgar-
bókasafnsins í Kringlunni í dag kl.
17.30. Á þessu ári eru 50 ár síðan
Steinunn sendi frá sér ljóðabókina
Sífellur, þá 19 ára að aldri. Fyrstu
þrjár bækur hennar voru ljóða-
bækur, en frá og með Tímaþjófn-
um 1986 hefur hún gef-
ið út jöfnum höndum
ljóð og skáldsögur.
Fríða sendi frá sér
sína fyrstu ljóða-
bók, Slitförin,
2017 og hefur
vakið verðskuld-
aða athygli fyrir
skrif sín.
Skáldatal í Kringlunni
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Hinn tólfta apríl næstkomandi hefst
átta daga rallkeppni í Marokkó þar
sem ekið verður þrjú þúsund kíló-
metra í Sahara-eyðimörkinni. Ásgeir
Örn Rúnarsson verður meðal þátt-
takenda en hann hefur verið að und-
irbúa sig fyrir keppnina í nú að verða
tvö ár. „Keppnin byrjar tólfta með
skoðun keppnistækja en fyrsta sér-
leiðin er 13. apríl. Við keyrum í 8 daga
samtals og aldrei sömu leiðina tvisv-
ar. Það er byrjað í Agadír og stefnt til
suðurs og þar í vesturhluta Sahara.
Það verður síðan gist í tjaldbúðum á
milli keppnisdaga,“ segir Ásgeir í
samtali við Morgunblaðið. „Við hjól-
um síðan í norðaustur meðfram
landamærum Alsír og Marokkó,
Marokkómegin, og endum við Mið-
jarðarhafið.“
Rall en líka ratleikur
Keppnisformið er rall form og er
ræst með tímatöku. „En í bland við
það er þetta hálfgerður ratleikur. Við
megum ekki nota GPS-tæki til þess
að rata. Þeir sem keyra bíla eru með
pappírsbækur. Við sem erum á mót-
orhjólunum erum með sérstakt box
sem er rafdrifið. Þar er pappírsrúlla
sem rúllar frá einu kefli yfir á annað
kefli eftir því sem okkur miðar áfram.
Það sem við notum til stuðnings er
kílómetrateljari og kompás með
stefnu í tölum og kílómetrateljara í
hundurðum metra. Þetta á að vera í
samræmi við rúllubókina sem rúllar
bara eftir því sem okkur gengur.“
Keppendur þurfa á leiðinni að
finna ákveðna staðfestingarpunkta. Á
mótorhjóli Ásgeirs verður GPS- tæki
sem keppnisstjórn skoðar eftir hvern
keppnisdag og staðfestir að hann hafi
verið á öllum réttu stöðunum. GPS-
tækið gerir í raun lítið annað, segir
Ásgeir, það mun hins vegar láta vita
þegar hann er í um 800 metra fjar-
lægð frá staðfestingarstað.
Keppir án þjónustuliðs
„Ég er skráður í mótorhjólaflokk
sem er atvinnumannaflokkur og heit-
ir Malli moto. Það er þekkt form þar
sem þú ert ekki með neitt þjónustulið
í kringum þig. Þú verður að þjónusta
keppnistækið og sjálfan þig sjálfur,“
segir Ásgeir. Keppnisstjórn mun þó
fara á milli staða með tvo kassa fyrir
keppendur. Einn með varahlutum og
verkfærum og annan með persónu-
legum búnaði.
Landslag áþekkt og á Íslandi
Mótorhjól Ásgeirs hefur verið sér-
útbúið fyrir ferðina. Þá hefur hann
þurft að sérvelja öryggisbúnað sem
andar vel í hitanum. Keppendur
mega heldur ekki leggja af stað í
neina sérferð nema með þrjá lítra af
vatni á bakinu. „Þegar maður er á
mótorhjóli í Afríku þarf maður að
vera léttur og öryggisbúnaðurinn
þarf að anda vel,“ segir Ásgeir.
Að sögn Ásgeirs er Marokkóleiðin
ekki bara sandur heldur mikið grjót
og hart undirlendi sem er mjög
áþekkt og á Íslandi, og gæti komið
sér vel fyrir Ásgeir. Sem félagsmaður
í ferða- og útivistarfélaginu Slóðavin-
ir hefur hann farið í ótal ferðir um há-
lendi Íslands.
Rall Ásgeir hefur sl. tvö ár verið á þol-, hlaupa-, og reiðhjólaæfingum til að undirbúa sig fyrir álagið í eyðimörkinni.
Í mótorhjólarall yfir
Sahara-eyðimörkina
Ásgeir keppir í 3.000 km mótorhjólakeppni í Afríku