Ófeigur - 01.05.1946, Side 34

Ófeigur - 01.05.1946, Side 34
34 ÓFEIGUR gerir í öllum slíkum félögum. Þegar skipulagið eflist, gera hin einstöku félög með sér landssamband, kjósa sér stjórn og ákveða verkföll þegar þeim þykir henta og þeir eru undirbúnir í því skyni. Með þessu eina móti geta bændur haldið hlut sínum í skiptum við stéttafélög bæj- anna. Séu liins vegar til svokölluð stéttarfélög bænda, sem eru bundin á höndum og fótum um fé og forráð, þá eru þau meira en einskis virði. Þau standa í vegi fyrir samtök- um, sem gagn er að. XXVIII. Til frekari skýringar hverfu Búnaðarfélag íslands er háð ríkisvaldinu vil eg nefna þessi dæmi: 1. Stjórn félagsins lætur Árna Eylands hverfa frá rit- stjórn Freys, þrátt fyrir meðmæli nálega allra búnaðar- þingsmanna, og gerðu upptækt eitt eintak af blaðinu, af því að Árni hafði birt þar grein eftir einn af trúnaðar- mönnum félagsdeildar, sem heyra undir Bjarna Ásgeirs- son. Ríkisstjórnin gerði Árna rétt á eftir að eins konar að- stoðarráðherra í landbúnaðarmálum, hátt hafinn yfir sína fyrri yfirmenn. Búnaðarfélagið beygði sig í hlýðni í sam- bandi við þessa ráðstöfun af því að það er ekkert nema stjórnardeild. 2. Ríkisstjórnin fær Steingrím Steinþórsson til að starfa í Nýbyggingarráði í heilt ár. Hermann og Eysteinn láta Tímann deila hart á þessa stofnun en þar situr búnaðar- málastjóri meðábyrgur um allar aðgerðir en í vonlausum minnihluta. Að lokum varð Steingrímur að vitna hvað eftir annað opinberlega gegn forráðamönnum Tímans, sem höfðu sagt ósatt um störf nefndarinnar. Að búnaðar- málastjóri skyldi fara í þessa nefnd, eins og flokksástæður hans eru, er ekk skiljanlegt nema út frá því, að hann telji sig eins konar skrifstofustjóra undir landbúnaðarráðherra og verði að taka mikið tillit til óska hans. 3. Bjarni'Ásgeirsson, Páll Zophoníasson og Hannes Pálsson voru allir í lögskipuðum störfum sem jarðamats- menn. Það verk kostaði um eina og hálfa miljón. Núver- andi ríkisstjórn lagði nefnd þessa niður með lagabreyt-

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.