Ófeigur - 01.05.1946, Side 35
ÓFEIGUR
35
ingu í vetur sem leið, og lagði vald jarðarmatsnefndar
beint undir stjórnarráðið. Þeir þremenningar og blöð
þau er þeir ráða yfri steinþögðu. Af hverju? Af því að
Bjarni og Páll eru undirmenn ríkisstjórnarinnar og láta
ekki til sín heyra svo mikið sem angistarstunu, þótt svo
harkalega sé að þeim búið.
4. Að lokum kemur Ólafur Jónsson. Hann er reiður
mjög út af búnaðarmálasjóði, en snýr gremju sinni að
mér en ekki flokksmönnum sínum í ríkisstjórninni, sem
ráðið hafa öllum meiriháttar aðgerðum í málinu. Ólafur
beygir sig fyrir fjármálaráðherra. Hann er þjónn stjórnar-
innar. Frá ríkissjóði fær hann laun sín. Þess vegna þorir
hann ekki að ganga fram þar sem stjórnin og fjárvaldið
er fyrir.
XXIX.
. Þessi dæmi geta verið til glöggvunar fyrir athugula
bændur. Allt skipulag Búnaðarfélags íslands, stéttarsam-
bands bænda og Ræktunarfélags Norðurlands er bundið
við framlag úr ríkissjóði og háð ríkisstjórninni. Þess vegna
mega bændur aldrei láta blekkja sig til að binda kaup-
kröfusamtök sín á þann klafa. Jafnvel mestu hetjur á
vegum bændaskipulagsins, eins og þeir sem nú hafa verið
tiloreindir eru um laun og atvinnu, svo háðir forráða-
mönnum ríkisvaldsins, að þeir halda ekki til streitu mal-
um, þó þeim sé persónulega misboðið og um verulegt
hagsmuna- og álitstjón sé að ræða .En úr því að forráða-
menn Búnaðarfélagsins skjálfa eins og espilauf í vindi við
gustinn úr stjórnarherbúðunum, er varla að búast við því
að „almúgi“ Hermanns Jónassonar verði harður í sókn.
gegn ríkis- og bæjarvaldinu þegar búið er að leggja á Ffánn
þrefalda herfjötra.
XXX.
Á fundarboði mínu til flokksfunda í Suður-Þing-eyjar-
sýslu fyrir skörnmu lét ég ræðutíma vera deilt jafnt milli
Framsóknarmanna, sem hafa, eða vilja enn vinna saman
við hina austrænu lífsstefnu ,og íslenzk byltingarlið og