Ófeigur - 01.05.1946, Blaðsíða 39

Ófeigur - 01.05.1946, Blaðsíða 39
Ó F E I G U R 39 jafnan að verða, eftir eðli málsins, úr því bændur eru í minnihluta f landinu. Auk þess hlaut alltaf að orka tví- mælis og leiða til baráttu, ef bændur áttu að fá stríðsfé til stéttabaráttunnar lögfest af pólitískum keppinautum sín- um. Á þingi í vetur stóðu aðeins tveir vegir opnir fyrir bændur. Að hafa sjóðinn áfram undir yfirstjórn keDpi- nauta sinna, eða að héruðin fengju sitt fé aftur, líkt og viðskiptamaður í kaupfélagi fær tekjuafgang greiddan eftir viðskiptamagni sínu í félaginu. Héraðasamböndin eru fátæk og hafa þörf fyrir fjármagn í sambandi við rækt- unarmálin. Meðan þessi skattur er innheimtur af bænd- um, mun hann verða að mestum notum við ræktunarmál héraðanna. En hvenær, sem bændur koma á stofn félögum til að taka þátt í baráttunni um verðlagið á innanlands- markaðinum, þá verður að stofna slíkt félag í hverju hér- aði nákvæmlega eins og kaupfélögin hafa farið að. Félags- menn taka höndum saman af frjálsum vilja, setja sér sam- þykktir, leggja á sig félagsgjöld, velja sér stjórn og búa svo um hnútana, að hvert félag geti gert sitt verkfall á skipu- legan og vel undirbúinn hátt. Aðferð búnaðarþings- manna, að ætla að skapa landssamband bænda á einum skyndifundi, er jafn fráleitt eins og ef Hallgrímur Krist- insson hefði ætlað að búa S.Í.S. til vorið 1902, þegar hann tók við pöntunarfélaginu á Akureyri, þar sem ársveltan var 8000 krónur. Nú vil ég gera Ólafi Jónssyni á Akureyri kostaboð. Ég býð að greiða honum 500 krónur í heiðursverðlaun 1. júlí n.k., ef hann getur komið með sannanir fyrir því, að í nokkru frjálsu landi sé til stéttarfélagsskapur, sem nær yfir fjölmenna stétt og hefir það skipulag, að láta löggjaf- arsamkomuna útvega rekstursfé, félagsmannagiöld og fjár- magn í verkfallssjóði með landslögum. En ef Ólafur Jóns- son finnur hvorki fordæmi né rök fyrir málstað sínum, þá tapar hann bæði verðlaununum og málinu. Jónas Jónsson. Akureyri • Prentverk Odds Björnssonar • 1946

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.