Morgunblaðið - 16.05.2019, Side 31
FRÉTTIR 31Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019
STEFNDU HÆRRA
NÁÐU LENGRA
HAGNÝTT MEISTARANÁM
MBA-námið við Háskóla Íslands er tveggja ára hagnýtt meistaranám
með vinnu, ætlað þeim sem hafa reynslu af stjórnunarstörfum og
vilja auka þekkingu sína og hæfni til að takast betur á við núverandi
og framtíðar forystuhlutverk í viðskiptalífinu.
SAMSTARF VIÐ YALE OG IESE
Háskóli Íslands hefur gert samninga við The Yale School of Management
í Bandaríkjunum og IESE Business School í Barcelona, sem báðir eru í allra
fremstu röð í heiminum á sviði MBA-náms. Með þessu skrefi mun MBA-nám
við Háskóla Íslands, fá alþjóðlegri blæ en samningurinn felur í sér að
MBA-nemar Háskólans munu sitja afar krefjandi og öflug námskeið,
eitt í hvorum samstarfsskóla á námstímanum.
MBA-námið við
Háskóla Íslands er vottað af
Association of MBAs (AMBA).
Þessi vottun er eingöngu veitt að
undangengnu umfangsmiklu mati
á umgjörð og innihaldi námsins
þar sem meðal annars er horft til
skipulags þess og gæða.
Háskóli Íslands hefur
undanfarin fimm ár verið á lista
Times Higher Education yfir
bestu háskóla heims.
MBA nám Háskóla Íslands, stendur fyrir kynningarfundi
föstudaginn 17. maí kl. 12.00-13.00 í Veröld - Húsi Vigdísar
Skráning fer fram á mba.hi.is
Miðstjórn ASÍ harmar viðbrögð
þeirra atvinnurekenda sem í kjölfar
nýgerðra kjarasamninga hafa grip-
ið til uppsagna á launakjörum
starfsmanna sinna að sögn vegna
þess kostnaðarauka sem til kemur
vegna gildistöku þeirra.
Þetta kemur fram í ályktun frá
miðstjórninni í gær þar sem skorað
er á atvinnurekendurna að draga
uppsagnirnar til baka.
„Jafnframt áskilur ASÍ öllum að-
ildarsamtökum sínum rétt til þess
að lýsa yfir einhliða riftun ný-
gerðra kjarasamninga við þessa
sömu atvinnurekendur vegna þess
ásetnings þeirra að ætla sér ekki að
virða þá og hrinda í framkvæmd,“
segir í ályktuninni.
„Jafnframt er samtökunum áskil-
inn réttur til þess í kjölfarið að
hefja aðgerðir til þess að knýja á
um gerð nýs kjarasamnings við við-
komandi aðila og til þess að beita
öllum tiltækum og lögmætum
þvingunaraðgerðum til þess að
knýja á um gerð þeirra, þar með
talið með verkföllum.“
ASÍ áskilur
sér rétt til
aðgerða
Harmar viðbrögð
atvinnurekenda
Morgunblaðið/HAri
Kjarabarátta Frá kröfugöngu
verkalýðsfélaganna 1. maí.
TINNA, fjölskylduefling í Breið-
holti á vegum velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar, hlaut í gær
Fjölskylduviðurkenningu SOS
Barnaþorpanna á Íslandi á alþjóð-
legum degi fjölskyldunnar.
Félags- og barnamálaráðherra,
Ásmundur Einar Daðason, afhenti
viðurkenninguna sem veitt er til að
heiðra og vekja athygli á framúr-
skarandi góðu starfi hér á landi í
þágu barnafjölskyldna.
„TINNA endurspeglar gildi SOS
Barnaþorpanna um mikilvægi fjöl-
skyldunnar og að börn geti alist
upp í ástríku og öruggu umhverfi.
Starfsfólk TINNU vinnur persónu-
legt og óeigingjarnt starf, oft utan
hefðbundins vinnutíma, í þágu
barnafjölskyldna í Breiðholti. Fjöl-
skylduefling er einn af stærstu
þáttunum í starfsemi SOS Barna-
þorpanna og hefur komið í veg fyr-
ir aðskilnað hundraða þúsunda
barna frá foreldrum sínum í 126
löndum,“ segir í umsögn valnefnd-
ar. TINNA er tilraunaverkefni sem
sett var á laggirnar árið 2016 í sam-
vinnu við velferðarráðuneytið.
Verkefnið heyrir undir þjónustu-
miðstöð Breiðholts og er staðsett í
fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi.
Tilgangur TINNU-verkefnisins
er að auka lífsgæði foreldra og
barna, rjúfa vítahring fátæktar og
um leið félagslega arfinn, þ.e. að
auka líkurnar á að börnum þessara
foreldra vegni betur í framtíðinni
en foreldrunum.
TINNA fékk viðurkenningu
á alþjóðadegi fjölskyldunnar
Viðurkenning Ásmundur Einar Daðason ráðherra ásamt fulltrúum verk-
efnisins TINNU, f.v. þeim Þuríði Sigurðardóttur verkefnisstjóra , Mörtu Joy
Hermannsdóttur, Hildigunni Magnúsdóttur og Diljá Kristjánsdóttur.
Rannsókn á eldsupptökum í Selja-
skóla stendur enn yfir. Reiknað er
með að niðurstöður liggi fyrir á
næstu dögum, vonandi fyrir helgi,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu.
Tæknideild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu tók við vettvangi á
sunnudaginn. Eldur kom upp í
Seljaskóla aðfaranótt sunnudags
síðastliðins. Eldurinn kviknaði í þaki
í einu húsi skólans sem er 400 fer-
metra rými með sex kennslustofum.
Rannsaka
eldsupptök í
Seljaskóla
Seljaskóli Miklar skemmdir urðu.