Morgunblaðið - 16.05.2019, Page 52

Morgunblaðið - 16.05.2019, Page 52
Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is „Það er mikil hefð fyrir grillveislum í Ísrael,“ segir Ólöf. „Fólk grillar mik- ið úti í garði og ekki er óalgengt að sjá heilu fjölskyldurnar og vinahóp- ana að grilla í almenningsgörðum í borgunum. Það er mjög dæmigert að sitja úti í garði allt kvöldið og borða grillmat. Grillið logar og það er endalaust verið að setja meira kjöt og margar tegundir af því, á grillið ásamt grænmeti. Allt sett á langborð ásamt helling af meðlæti, hummus, tahini, brauði, salötum og fleira góðgæti.“ Grillveisla fyrir 6-8 manns Steik (Entrecote) á teini með Chimmichurry grillsósu: Steikin skorin í rúmlega munnstóra bita. Blandið 2-3 tsk. af Steikar- kryddi frá Kryddhúsinu í 1-2 msk. af ólífuolíu og nuddið á kjötið. (Við vor- um með 500 gr af kjöti) Þræðið upp á grillspjót og geymið í kæli í a.m.k. 2 klst. Saltið og piprið áður en spjót- in eru sett á heitt grill. Chimmichurry grillsósa: 1 hluti af Chimmichurry krydd- blöndu Kryddhússins á móti 3-4 hlutum af ólífuolíu. ½ tsk. vinegear og aðeins salt til að skerpa bragðið. Hrærið allt saman og látið standa í a.m.k. 20 mín. áður en borið fram. Þessi grillsósa geymist vel í lokuðu íláti inni í kæli. Miðausturlanda-kjúklingur á spjóti: 1 bakki úrbeinuð kjúklingalæri 2 tsk. Miðausturlanda-kjúklingakrydd frá Kryddhúsinu blandað saman við u.þ.b. 1 msk. ólífuolía Skerið lærin í 3-4 bita hvert og penslið kryddinu á. Þræðið upp á grillspjót. Geymið í kæli í a.m.k. 2 klst. Saltið og piprið áður en spjótin eru sett á heitt grill. Grillsalat: 3 tómatar 1 rauð paprika 1 ferskt chili 1 laukur 1-2 hvítlauksgeirar ólífuolía, salt og pipar. Grillveisla að hætti ísraela Ef það er einhvertíma tilefni til að skella í almennilegt ísraelskt grillpartý þá er það þessa dagana meðan Eurovison-ævintýrið stendur sem hæst. Hjónin Ólöf Einarsdóttir og Omry Avraham, eigendur Kryddhússins, slógu upp mikilli veislu um helgina og leyfðu okkur að deila uppskriftunum. Omry er frá Ísrael sem þau hjón segja að sé þekkt fyrir frábæra matarmenningu. Sterk grillhefð Það er mikil hefð fyrir grillveislum í Ísrael. Fólk grillar mikið úti í garði og ekki er óalgengt að sjá heilu fjölskyldurnar og vinahópana að grilla í almenningsgörðum í borgunum. Skemmtilegt bragð Grænmeti er áberandi í matargerðinni og þetta ofnbakaða blómkál er einstaklega bragðgott. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17. JAPANSKIR HNÍFAR Allt fyrir eldhúsið Hágæða hnífar og töskur Allir velkomnir Einstaklingar og fyrirtæki Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.