Þjóðarbúskapurinn

Issue

Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Page 21

Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Page 21
19 cinnig, þótt í minna mæli væri. Heimsmarkaðsverð á fiskmjöli og lýsi var orðið afar hátt í júní, en í júlí og ágúst lækkaði verðið tals- vert, en hefur svo hækkað aftur. Yerðlag ýmissa mikilvægra frysti- afurða hefur einnig hækkað enn frekar. I heild er útflutningsverð sjávarafurða nú að nýju orðið jafnliátt og það varð hæst í júní, eða um 19% liærra en ársmeðaltalið 1976. Þetta er svipuð hækkun og nú er búizt við fyrir meðaltal þessa árs. Verð annarrar út- flutningsvöru mun hækka heldur minna í ár en útflutningsverð sjávarafurða, og er því gert ráð fyrir, að verðlag útflutningsins alls hækki að meðaltali um 17—18% í erlendri mynt á árinu 1977. Gengi krónunnar hefur farið lækkandi þetta ár, einkum nú síðustu vikurnar eftir gengislækkun mynta Norðurlandanna í september, og er því reiknað með, að útflutningsverðið í krónum hækki um nálægt 30% á árinu. Tekjur og verðlag. Fyrir undirritun kjarasamninga ASÍ og vinnuveitenda um míðbik þessa árs voru kauptaxtar allra launþega þegar orðnir 25—26% hærri en að meðaltali árið 1976. Neyzluvöruverð hafði hækkað að sama skapi, þannig að kaupmáttur kauptaxta fyrri hluta ársins var mikið til óbreyttur frá meðaltali ársins 1976. Nýir kjarasamningar Alþýðusambands íslands og vinnuveitenda voru sem kunnugt er undirritaðir hinn 22. júní s. 1. Samningarnir ná til allra stéttarfélaga innan ASl nema sjómannasamtakanna, og gilda fyrir tímabilið 22. júní 1977 til 1. desember 1978. Meginatriði samn- inganna eru þessi: Hækkun samningsbundinna mánaðarlauna: 22. júní 1977 ............................... kr. 18 000 1. desember 1977 .............................. — 5 000 1. júní 1978 .................................. — 5 000 1. september 1978 ............................. — 4 000 Fyrir undirritun kjarasamninganna voru lægstu mánaðarlaun fyrir dagvinnu innan ASÍ 70 þús. krónur, en þau hækkuðu í 88 þús. krónur eða um 26% í fyrsta áfanga samninganna. Meðalmánaðarlaun innan ASÍ voru u. þ. b. 83 þús. krónur fyrir samningana, en hækkuðu með samningunum um 22% að frátöldum áhrifum sérsamninga. Hér ber að hafa í huga, að samningsbundnir kauptaxtar kveða á um lágmarks- laun án nokkurra aukagreiðslna og án alls annars launakostnaðar. 1 flestum tilfellum má hins vegar gera ráð fyrir, að ofan á hina samn- ingsbundnu taxta komi launaskrið og aðrar aukagreiðslur, auk vakta-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Þjóðarbúskapurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.