Þjóðarbúskapurinn

Útgáva

Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Síða 23

Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Síða 23
21 anum, og fólu þeir einkum i sér gagngera breytingu á greiðslu kauptryggingar og aflahluta á bátaflotanum og minni skuttogurum. Samkvæmt samningunum skulu aflahlutir sjómanna og kauptrygging reiknast út og greiðast mánaðarlega, en aflahlutir voru skv. fyrri samningum reiknaðir út og gerðir upp til fulls þrisvar sinnum á ári í lok liverrar vertíðar. Þessi breyting er talin liafa liæklcað laun sjómanna að meðaltali um 2—3%. Samningarnir kváðu ennfremur á um hækkun kauptryggingar um 24% í samræmi við júnísamn- ingana. Samhliða þessum samningum var algengt fiskverð hækkað um 20% að meðaltali og iiækkuðu þvi sjómannalaun að meðaltali um 23%, eða heldur minna en laun landverkafólks i júnísamn- ingunum. Kjarasamningum og' kjaraákvörðunum opinberra starfsmanna er ekki fulllokið. Aðalkjarasamningur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og fjármálaráðberra gekk úr gildi hinn 30. júní s. 1. en samn- ingaumleitunum var frestað þangað til um miðjan ágúst. Eftir að BSRB hafði boðað til vex-kfalls samkvæmt heimild i lögum um kjara- samninga BSRB frá 1976, lagði sáttanefnd í kjaradeilunni fram sáttaboð, sem borið var undir allsherjaratkvæði í BSRB. Sáttaboðið var hins vegar fellt og hófst verkfall BSRB 11. október og stóð unz samkomulag tókst hinn 25. október. Samkvæmt samningunum hækka laun i áföngum á samningstímanum, 1. júlí 1977—30. júní 1979, fyrst um 18% að meðaltali 1. júlí 1977, 3% 1. september og 1%% 1. desember 1977, og 3% 1. júní og 1. september 1978 og 1. apríl 1979. Verðtryggingarákvæði samningsins voru hin sömu og í júnísamn- ingunum að öðru leyti en því, að verðbæturnar verða alltaf hlut- fallslegar. Sé þess gætt, að launahækkunin í fyrsta áfanga samnings- ins kom til viðbótar 4% grunnkaupsbækkun 1. júlí og' 6,7% vísi- töluhækkun launa opinberra starfsmanna 1. júní, má ætla, að meðal- hækkun launataxta BSRB í fyrsta áfanga hafi verið um 5% umfram júnísamningana. Hækkunin er þó misjöfn eftir launaflokkum, þar sem samningunum var öðrum þræði ætlað að aðlaga launakjör opinberra starfsmanna launum á almennum vinnumarkaði, þar sem samanburði varð við komið. I kjölfar samninga BSRB tókust samn- ingar bankamanna — liinir fyrstu skv. samningsréttarlögum þeirra frá maí s. 1. — og voru samningarnir í aðalatriðum svipaðir samn- ingum BSRB. Eftir hina almennu kjarasamninga á miðju ári sömdu Bandalag háskólamanna og fjármálaráðherra um endurskoðun gildandi aðal- kjarasamnings þessara aðila. Endurskoðunin fól í sér almenna hælckun launataxta um 7,5%, sem þá kom til viðbótar 6,7% visitölu-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Þjóðarbúskapurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.