Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Side 55
I. Fjármál — skattamál.
1975.
Febrúar.
Innflutningsgjald af bifreiðum hækkað úr 35% í 50% af c. i. f.-
verði fólksbifreiða og úr 20% í 25% af c. i. f.-verði annarra bila.
Áfengisverð hækkað um 15—25% og tóbaksverð hækkað um 15%.
Marz.
Viðlagagjald á söluskattstofn hækkað úr 1% í 2% á tímabilinu
1. marz 1975 til 31. desember 1975 (lög nr. 5/1975). Tekjur af við-
lagagjaldi (áætlaðar 1750 m.kr.) skulu skiptast þannig, að 32%
renna til Norðfjarðardeildar til að bæta tjón af völdum snjóflóðanna
í Neskaupstað í desember 1974 og til björgunar og viðreisnarstarfs
þar, en 68% renna til að mæta skuldbindingum Viðlagasjóðs vegna
eldgossins í Vestmannaeyjum.
Álagning 1% olíugjalds á söluskattstofn framlengd tímabilið 1. marz
1975—29. febrúar 1976 (lög nr. 6/1975). Verðhækkanir af völdum
þessara gjalda, viðlagagjalds og olíugjalds, skulu ekki valda hækk-
un kaupgreiðsluvísitölu. Söluskattur verður nú samtals 20%, þ. e.
13% almennur söluskattur, 4% söluskattsauki samkvæmt lögum nr.
10/1974 um skattkerfisbreytingu, auk 2% viðlagag'jalds og 1% olíu-
gjalds.
Niðurgreiðslur landbúnaðarafurða auknar sem nemur 200 m.kr. á
heilu ári, eða sem svarar til lækkunar F-vísitölu um Iþo stig.
Apríl.
Lög um ráðstafanir í efnahagsmálum og fjármálum samþvkkt á Al-
þingi 28. apríl (lög nr. 11/1975). Meginákvæði laganna eru þessi:
1) Heimild fyrir ríkisstjórnina til lækkunar ríkisútgjalda um 3 500
m.kr. á árinu 1975.
2) Tekjuskattur einstaklinga og tekjuútsvar: a) Öll barnaívilnun til
framfæranda, þ. e. fjölskyldubætur, persónufrádráttur vegna barna
og afsláttur frá tekjuskatti vegna barna, sameinuð í einn afslátt
frá álögðum tekjuskatti, barnabætur, til greiðslu til framfæranda
ef barnabætur nýtast ekki til greiðslu á tekjuskatti hans eða
öðrum opinberum gjöldum. Fjárhæð barnabóta ákveðin 30 000 kr.
fyrir fyrsta barn, 45 000 kr. fyrir annað og fleiri börn. b) Persónu-