Þjóðarbúskapurinn - 01.10.1977, Síða 57
55
samræmis við launahækkun samkvæmt samkomulagi ASÍ og vinnu-
veitenda frá 26. marz, og mikla hækkun tekjutryggingar, annars
vegar til samræmis við kauphækkanir, en hins vegar til þess að
skattbreytingarnar frá april nýttust einnig skattlausum lífeyrisþeg-
um. Um önnur ákvæði laganna, um launajöfnunarbætur og láns-
kjör fjárfestingarlánasjóða, er fjallað í köflunum um launamál og
peningamál.
Júní.
Til að greiða fyrir kjarasamningum í júnímánuði voru niðurgreiðsl-
ur búvöruverðs auknar sem nam 100 m.kr. á mánuði, þannig að
tekið var fyrir verðlagsáhrif 13,3% hækkunar verðlagsgrundvallar
búvöru frá 1. júní.
Niðurgreiðslur áburðarverðs ákveðnar sem nam um 600 m.kr. á árinu
1975, vegna tvöföldunar áburðarverðs frá fyrra ári.
Áfengis- og tóbaksverð hækkað um 30%.
Júlí.
Samkvæmt heimild í lögum um ráðstafanir i efnahagsmálum og
fjármálum (nr. 11/1975) ákvað ríkisstjórnin að tillögu fjárveitinga-
nefndar 2 000 m.kr. lækkun ríkisútgjalda, þar af 660 m.kr. vegna
opinberra framkvæmda, 860 m.kr. vegna rekstrar og tilfærslna og
480 m.kr. lækkun framkvæmdaframlaga af ýmsu tagi.
Hinn 16. júlí voru gefin út bráðabirgðalög um sérstakt tímabundið
vörugjald. Samkvæmt lögunum skal á tímabilinu 17. júlí til ársloka
1975 leggja 12% sérstakt vörugjald til ríkissjóðs á söluskattstofn inn-
lendrar og erlendar vöru, þó ekki mikilvægrar neyzluvöru og rekstr-
arvöru. Tekjuauki ríkissjóðs af vörugjaldinu áætlaður 1 850 m.kr.
Október.
Fjárlagafrumvarp 1976 lagt fram á Alþingi.
Desember.
Fjárlög ársins 1976 afgreidd frá Alþingi 20. desember og voru þau
m, a. byggð á eftirfarandi ákvörðunum, sem teknar voru um svipað
leyti:
1) Söluskatti var breytt (lög nr. 76/1975) án þess þó að skatturinn í
heild væri hækkaður. Viðlagagjald, 2%, var fellt niður, 4% sölu-
skattsauki varð 1%, en hinn almenni söluskattur var í staðinn
hækkaður um 5 stig. Söluskatturinn í heild varð því áfram 20%,