Skessuhorn


Skessuhorn - 25.11.2015, Síða 10

Skessuhorn - 25.11.2015, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 201510 Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er. Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar: Starf forstöðumanns í búsetuþjónustu• Starf byggingarfulltrúa• Starf kennara í Grundaskóla• Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 5 Laus störf hjá Akraneskaupstað Norðurál á Grundartanga er eitt 103 fyrirtækja og stofnana sem hafa skuldbundið sig til draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs, auk þess að mæla árangur og miðla upplýsingum um stöðu mála. Forsvarsmenn fyrir- tækjanna undirrituðu yfirlýsinguna í Höfða í Reykjavík en ætlunin er að afhenda hana á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París sem áætlað er að fram fari í desember. Þar verður Rammasamningur Sam- einuðu þjóðanna vegna loftslags- breytinga (UNFCCC) samþykktur, en markmið hans er að sporna við hnattrænni hlýnun og draga úr los- un gróðurhúsalofttegunda. „Síðustu ár hefur Norðurál náð góðum árangri við að draga úr los- un gróðurhúsalofttegunda og erum við í hópi þeirra álvera sem best standa sig á heimsvísu. Undirskrift yfirlýsingarinnar miðar að því að ná enn frekari árangri sem samræmist vel rekstraráætlun og markmiðum fyrirtækisins,“ segir Ragnar Guð- mundsson forstjóri Norðuráls. mm Mikil samstaða um aðgerðir í loftslagsmálum Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðurðáls, ásamt Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra Festu og Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Það voru Reykja- víkurborg og Festa sem efndu til samstarfsins og markar undirskriftin formlegt upphaf verkefnisins. Snæfellsbær vann stórsigur á Rangár- þingi eystra í Útsvari Ríkissjónvarps- ins síðastliðið föstudagskvöld. Viður- eignin endaði 103-32 og setti Snæ- fellsbær um leið stigamet í keppninni í vetur. Lið Snæfellsbæjar skipa þeir Sigfús Almarsson, Örvar Marteins- son og Guðmundur Reynir Gunn- arsson. Var þetta ekki fyrsta stiga- met þess síðastnefnda í ár því hann bar fyrirliðaband Víkings Ólafsvíkur í sumar þegar liðið setti stigamet í 1. deild karla í knattspyrnu. Snæfellsbær tók forystuna í þætt- inum strax í upphafi og lét hana aldrei af hendi. Piltarnir fóru mik- inn í stóru spurningunum í lok þátt- ar en þar áður höfðu þeir m.a. ítrek- að „stolið“ svarrétti af andstæðing- um sínum. Í stóru spurningunum tóku þeir hvorki meira né minna en 40 stig og rufu hundrað stiga múr- inn í lokaspurningunni. Þar með hafa bæði liðin af vestanverðu land- inu tryggt sér þátttökurétt í annarri umferð keppninnar; en auk Snæfells- bæjar er Reykhólahreppur stigahæsta taplið vetrarins og heldur því áfram. kgk Snæfellsbær sigraði og sló um leið stigamet Útsvarslið Snæfellsbæjar rauf hundrað stiga múrinn í viðureigninni gegn Rangárþingi eystra. F.v. Örvar Marteinsson, Sigfús Almarsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.